Kristinn Hrafnsson hæðist að nýju frumvarpi um að kristinfræði verði aftur tekin upp í grunnskólum landsins.
Ritstjóri Wikileaks, Kristinn Hrafnsson deildi í dag frétt DV um nýtt frumvarp sem þingmenn úr röðum Sjálfstæðisflokksins, Flokki fólksins og Vinstri grænna, lögðu fram nú á nýhöfnu haustþinginu. Frumvarpið snýst um að kristinfræði verði aftur kennd í grunnskólum Íslands.
„Þá eru komin nöfn og númer á biblíubeltið á þingi. Ægilega er erfitt að kveða niður þann draug að börn geti ekki fengið fróðleik um siðleg gildi án þess að pakka því inn í óþarfa umbúðir og fornar ævintýrasögur,“ skrifar Kristinn í byrjun færslunnar.
Því næst vitnar Kristinn í frétt DV:
„Segir að nám í kristinfræði sé mikilvægt til skilnings á hugtökum eins og kærleik, umhyggju og umburðarlyndi.“ Og svo hélt hann áfram: „Það er þvert á móti mikilvægt að sleppa umbúðunum því hættan er sú að fólk alist upp í þeirri villu að umbúðirnar séu innihaldið. Það sést t.d. á þeirri hatursspýju sem undanfarið hefur gengið upp úr sanntrúuðum. Þar fer lítið fyrir fallegum gildum, kærleik, umhyggju og umburðarlyndi.“































Athugasemdir