Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fjölbrautarskólinn í Garðabæ mun ekki reka Pál: „Viðurkenni fúslega að skólinn er í vandræðum“

Fjölbrautarskólinn í Garðabæ mun ekki reka Pál: „Viðurkenni fúslega að skólinn er í vandræðum“
Kristinn Þor­steins­son, skóla­meist­ari FG

Páll Vil­hjálms­son verður ekki rek­inn úr starfi, að svo stöddu.

Blogg­ar­inn og kenn­ar­inn Páll Vil­hjálms­son verður ekki rek­inn fyrir skrif sín um trans fólk og Samtökin 78. Skrif hans hafa verið harð­lega gagn­rýnd fyrir að ala á for­dómum í garð trans fólks. Kristinn Þor­steins­son, skóla­meist­ari Fjöl­braut­ar­skól­ans í Garðabæ, sendi í dag nem­endum og for­eldrum þeirra bréf þar sem skrif Páls eru rædd en Páll vinnur sem kenn­ari í skól­anum. Skóla­meist­ar­inn segir skrif Páls setja skól­ann í slæma stöðu. Páll verður ekki rek­inn að svo stöddu en nem­endum verður ekki gert að sækja tíma sem hann kennir. 

Hægt er að lesa allt bréfið hér fyrir neðan

„Kæru nem­endur og for­eldrar

Það er erfitt að þurfa að bregð­ast við bloggskrifum kenn­ara í skól­anum í annað sinn. Almennt er það skoðun mín að vinnu­staðir eigi ekki að skipta sér af þátt­töku starfs­fólks af sam­fé­lags­um­ræðu. Mál­frelsi er mik­il­vægt og enn mik­il­væg­ara að fólk þurfi ekki að ótt­ast um atvinnu sína vegna þátt­töku í almennri umræðu.

En málið er ekki svona ein­falt. Fram­halds­skólum er falið að verja, vernda og mennta ungt fólk. Ungt fólk er alls­konar og hinseg­inn nem­endur eru mik­il­vægur hluti okkar nem­enda­hóps og eiga rétt á að ekki sé gengið á þeirra hlut. Það er ekki skrýtið að nem­endur og aðrir spyrji hvort eðli­legt sé að innan skól­ans sé kenn­ari sem full­yrði að trans­fólk sé haldið rang­hug­myndum og Samtökin 78 séu í hópi með aðilum sem aðhyllist barna­girnd. Þarna tekst á réttur borg­ar­anna til tján­ingar og réttur nem­enda til að njóta verndar innan skól­ans. Í þau átök bland­ast svo sam­starfs­fólk sem þykir miður að vinnu­staður þeirra sé dregin inn slíkt umtal.

Ég við­ur­kenni fús­lega að skól­inn er í vand­ræðum og þessi umræða kenn­ar­ans um hinseg­in­leik­ann skaðar skól­ann. Sá skaði er létt­vægur miðað við þá van­líðan sem skrifin geta valdið hinsegin nem­endum innan skól­ans og almennt í sam­fé­lag­inu. Sá hópur þarf svo sann­an­lega á því að halda að njóta verndar og sann­girni.

Rétt er að ítreka að stefna skól­ans er að styðja og vernda hinsegin nem­endur og virða í hví­vetna kyn­rænt sjálf­ræði. Innan skól­ans starfar hinsegin full­trúi og skól­inn er með stefnu í mál­efnum hinsegin nem­enda.

Þrátt fyrir stefnu skól­ans tel ég ekki unnt að hrófla við stöðu kenn­ar­ans við skól­ann. Réttur til tján­ingar er ríkur og ótt­ast ég að slagur um þá tján­ingu þjóni öðrum hags­munum en skól­ans eða hinsegin nem­enda. Það er hins­vegar alveg ljóst að nem­endur sem telja á sig hallað vegna skrifa kenn­ar­ans eiga fullan rétt á að þurfa ekki að sitja tíma hjá honum. Hvað áhrif það hefur til lang­frama á stöðu kenn­ar­ans verður að koma í ljós.

Kristinn Þor­steins­son, skóla­meist­ari.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina