Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Hafsteinn rifjar upp Krossnesslysið: „Mjög erfitt að koma heim úr þessari ferð, án þriggja manna“

Hafn­ar­stjór­inn og fyrrum skip­stjór­inn Haf­steinn Garð­ars­son er nýj­ast við­mæl­andi Reynis Trausta­son í þætti Sjóarans.

Haf­steinn var skip­stjóri þegar Kross­nesið sökk. Þrír menn lét­ust í hásk­anum en það mark­aði Hafstein fyrir lífs­tíð en Reynir var stýri­maður á Slétta­nes­inu sem var fyrsta skip á vett­vang.

Reynir byrjar við­talið á að segja Haf­steini að það sé honum mik­ill heiður að fá hann í settið því að þeir hafi átt sam­leið á Vest­fjarða­miðum á sínum tíma þegar hinn hræði­legi atburður varð þegar Kross­nesið sökk en Haf­steinn var þá skip­stjóri skips­ins, 31 árs að aldri. Reynir var stýri­maður á fyrsta skip­inu sem mætti á slys­stað.

„Þetta var mikið áfall og eitt­hvað sem mann óraði fyrir að gæti skeð,“ svar­aði Haf­steinn. „Þetta var mjög erfitt og erfitt að koma heim úr þess­ari ferð, án þriggja manna.“

Reynir rifjar upp að þeir á Slétta­nes­inu hafi verið að kasta þegar það kemur neyð­ar­kall frá Kross­nes­inu. „Stýri­mað­ur­inn þinn kallar út og segir „Við erum að sökkva!“.“

„Já, ég var í koju,“ rifjar Haf­steinn upp og heldur áfram. „Þetta var rétt fyrir átta, sunnu­dags­morgun þann 23. febr­úar. Og ég rumska þegar þeir eru að byrja að hífa. Ég rumska og sný mér á hlið­ina eins og maður gerði alltaf en svo finn ég að það er eitt­hvað að. Það er eitt­hvað skrítið. Hreyf­ingar.“ Segir Haf­steinn að hann hafi svo byrjað að heyra köll og að það hafi einn úr áhöfn­inni komið í dyrnar hjá honum. „Þannig að ég rík fram, á buxum og bol. Og sé að það er að vera kom­inn sjór upp undir gang. Og hall­inn á skip­inu er orð­inn tölu­verður.“

Reynir: „Og þetta ger­ist bara á örskots­stundu.“

Haf­steinn: „Já, á örskots­stundu. Bara um leið og hann finnur að það er eitt­hvað að, reynir hann að slaka út vír og keyra bát­inn upp en það skeður bara ekki neitt.“

Reynir: „Þetta ger­ist það snöggt að ég heyri nátt­úru­lega neyð­ar­kallið frá stýri­mann­inum og ég kalla í honum og segi honum að gefa upp stað, ég sá hann nátt­úru­lega á rad­arnum. Ég held að það hafi verið 0,7 í ykkur þegar ég byrja að hífa aftur en svo sé ég hann bara dofna út. Maður horfir bara á þetta ger­ast á rad­arnum, hann kom aldrei aftur inn til að segja hvar hann væri.“

Haf­steinn: „Nei, hann fór nátt­úru­lega í það að ræsa alla út og útdeila göllum. Flot­göll­unum. Þegar svona ger­ist verður eig­in­lega hver að hugsa um sjálfan sig. En þeir gerðu þetta svo vel, alveg hár­rétt allt saman. Og þegar ég kem fram á gang­inn þá kemur einn á eftir mér, vél­stjór­inn. Og annar vél­stjór­inn er í stig­anum og er á leið­inni upp en stig­inn er orð­inn mjög brattur. Þannig að ég set bara haus­inn á mér undir rass­inum á honum og hjálpa honum upp. Hann fær galla og fer út. Og ég segi bara um leið og ég kem upp „Eru allir komnir, hef­urðu séð alla?“. Og þá sagði hann: „Nei, það vantar einn, hann er niðri“. Þá ætl­aði hinn að snúa við, sem kom upp á eftir mér og ég segi bara við hann „Nei. Nú verður hver og einn að hugsa um sjálfan sig og fara út“. Þetta voru senni­lega erf­ið­ustu orð sem ég hef sagt.“

Þegar upp var komið náði Haf­steinn að kom­ast í bux­urnar á flot­gall­anum en lenti þá í basli. „Við lentum í hel­vítis basli. Plastið sem var utan á gall­ana, það var svo þykkt. Og í sjó­próf­unum benti ég á það og það var öllu breytt eftir það. Það var varla að maður næði að taka utan af þessu með því að setja tenn­urnar í þetta og hend­urnar því þetta var bara þykkt glugga­plast.“ Haf­steinn sagði Reyni að áhöfnin hefði verið vel æfð og þarna nýkomin af æfingu hjá Stýri­manna­skól­anum og það hafi hjálpað. „Um leið og við tveir [stýri­mað­ur­inn og hann], förum út úr brú­ar­gluggan þá dettur hann bara á hlið­ina og við lendum á hlið­ina á stýr­is­hús­inu. Og stökkvum þaðan í sjó­inn.“

Þegar þarna var komið við sögu voru sjö áhafn­ar­með­limir Kross­ness­ins komnir í björg­un­ar­bát en fimm var saknað. „En þegar við sáum hinn bát­inn og að það væru ummerki í honum, þá var það dálítið mik­ill léttir. Þá vorum við bara alveg klárir á því að hinir væru þar um borð.“

Reynir: „Sem var nú aldeilis ekki.“

Haf­steinn: „Nei, þar var bara einn maður um borð.“

Sem sagt, þarna voru átta menn orðnir hólpnir en fjög­urra saknað. Reynir lýsti því fyrir Haf­steini að vél­stjór­inn á Slétta­nes­inu hefði verið kom­inn upp í brú til hans og beðið Reyni að snúa við því hann hefði séð tvo galla í sjónum. Í öðrum gall­anum var maður en hinn var tómur. Maðurinn í gall­anum var faðir Haf­steins, Garðar en hann hafði ekki náð að renna gall­anum alveg upp.

Reynir: „Hann hafði verið nálægt því að fara niður með skip­inu, hann flækt­ist í neta­dræsum.“

Haf­steinn: „En losn­aði þegar hann var kom­inn aðeins niður, sagði hann mér. En hann var fót­brot­inn. Báturinn sem við komumst í, hafði rúllað, vegna hall­ans, inn á dekkið og lenti á honum. Og kubb­aði í sundur á honum fót­inn.“

Reynir lýsti því hvernig pabbi Haf­steins hefði litið út, fljót­andi innan um dót úr bátnum í opnum galla. Hann hafi verið náhvítur og ekki að sjá að hann væri með lífs­marki. En svo lyfti hann hönd­inni aðeins og þá vissi Reynir að hann væri á lífi en það var mín­útu­spurs­mál, hvort hann hefði það af. „Og merki­legt að hann skuli hafa þetta af, nýkom­inn úr hjarta­að­gerð.“

Viðtalið má sjá í heild sinni hér á efn­isveitu Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina