Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sósíalistaflokkurinn vill brjóta upp Samherja: „Kvótakerfið hefur þróast upp í óskapnað“

Sósíalistaflokkurinn vill brjóta upp Samherja: „Kvótakerfið hefur þróast upp í óskapnað“
Samherji. Þor­steinn Már. Myndin er sam­sett.

Sós­í­alista­flokkur Íslands vill „brjóta upp Samherja“ og aðra „auð­hringi“ til að end­ur­heimta auð­lind­irnar.

Í nýlegri ályktun sem sam­þykkt var á sam­eig­in­legum fundi fram­kvæmd­ar­stjórnar og mál­efna­stjórnar Sós­í­alista­flokks­ins, kemur fram að brjóta þurfi upp stór­út­gerðir sem hagn­ast hafa á kvóta­kerf­inu, sem flokk­ur­inn kallar „lokað, ófrjálst spill­ing­ar­kerfi“. Flokk­ur­inn ályktaði einnig að þjóð­inni yrði færð eign sín, fisk­inn í sjónum.

Hér fyrir neðan má lesa yfir­lýs­ingu frá Sós­í­alista­flokknum:

Eft­ir­far­andi ályktun var sam­þykkt á sam­eig­in­legum fundi fram­kvæmda­stjórnar og mál­efna­stjórnar Sós­í­alista­flokks­ins, sjá hér á vef flokks­ins,

Kvóta­kerfið er rót spill­ingar og ójöfn­uðar

Sam­eig­in­legur fundur fram­kvæmda- og mál­efna­stjórna Sós­í­alista­flokks­ins varar við ráða­gerðum Svan­dísar Svav­ars­dóttur mat­væla­ráð­herra um að festa kvóta­kerfið í sessi undir yfir­varpi end­ur­skoð­unar og lag­fær­inga.

Eins og fram kemur í skýrslu nefndar ráð­herr­ans telur mik­ill meiri­hluti almenn­ings sjáv­ar­út­veg­inn á Íslandi spilltan og að undir kvóta­kerf­inu færi hann auð til fárra, ekki fjöld­ans.

Í erindi Sós­í­alista Brjótum upp Samherja – end­ur­heimtum auð­lind­irnar segir meðal ann­ars:

„Kvóta­kerfið sem upp­haf­lega var sett á til að vernda fiski­stofn­ana hefur þró­ast í óskapnað sem hefur í reynd einka­vætt fiski­mið almenn­ings. Kerfið hefur brotið niður byggðir og safnað upp auð örfárra, svo miklum að hann ógnar lýð­ræð­inu og frelsi almenn­ings. Sós­í­alista­flokk­ur­inn hefur þá stefnu að leggja niður þetta kerfi og byggja rétt­lát­ari umgjörð utan um fisk­veiðar og vinnslu. Ný umgjörð þarf að reisa við það sem kvóta­kerfið braut niður og brjóta upp þá auð­hringi sem kvóta­kerfið bjó til.“

Það á ekki að festa spillt og órétt­látt kvóta­kerfi í sessi með því að plástra það með veik­burða lag­fær­ingu. Kerfi sem mik­ill meiri­hluti lands­manna er andsnú­inn ber að leggja niður. Og það leggja Sós­í­alistar til:

Þessar eru til­lögur Sós­í­alista:

  • Auð­hringir brotnir upp
    Kvóta­kerfið hefur búið til lokað, ófrjálst spill­ing­ar­kerfi stór­út­gerða sem verður að brjóta upp. Stærstu útgerð­irnar ráða yfir of stórum hluta veið­anna og þær stjórna allri virð­is­keðj­unni, allt frá því að fisk­ur­inn er veiddur og þar til afurðin er seld erlendis. Marg­sinnis hafa komið fram vís­bend­ingar um að þessi kerfi séu notuð til að halda niðri fisk­verði við löndun og fela síðan arð­inn af auð­lind­inni erlendis.

Sós­í­alista­flokk­ur­inn mun leggja til að tak­mark­anir verði settar á umfang stór­út­gerða svo stærstu útgerð­irnar verði brotnar upp langsum, að þær verði að kljúfa sig upp í tvö eða fleiri félög. Þetta er gert til að draga úr ægi­valdi stór­út­gerð­anna yfir byggð­unum og til að tryggja fjöl­breyti­leika og nýliðun.

Þá leggja Sós­í­alistar til að útgerðar- og fisk­vinnslu­fyr­ir­tækin verði brotin upp þversum, þannig að sama fyr­ir­tækið geti ekki veitt fisk­inn og selt sjálfu sér afl­ann, unnið fisk­inn og selt sjálfu sér afurð­irnar og selt síðan sjálfu sér afurð­irnar í útlöndum og falið þar gróð­ann.

Kvóta­kerfið bjó til ógn­ar­auð, ekki síst þegar leyfi var gefið til að veð­setja veiði­heim­ildir ókom­inna ára. Sá auður var not­aður til að mylja undir örfá fyr­ir­tæki megnið af afla­heim­ild­unum og síðan til að brjóta undir sig fyr­ir­tæki í óskyldum greinum og í öðrum löndum. Þetta ógn­ar­vald auðs og valda hefur sýnt sig að vera skað­valdur í sam­fé­lag­inu. Og ekki bara hér­lendis heldur víða um heim. Það er því eðli­leg sjálfs­vörn almenn­ings að brjóta þessi fyr­ir­tæki upp. Ísland er ein­fald­lega of lítið fyrir fyr­ir­tæki af þess­ari stærð.

Ef við tökum dæmi af Samherja, sem er stærsta og vold­ug­asta stór­út­gerðin, þá myndi það verða klofið upp vegna stærðar sinnar langsum og þversum vegna þess að það drottnar yfir allri virð­is­keðj­unni. Yfir­gangur og frekja þessa fyr­ir­tækis ætti ekki að koma neinum á óvart. Þegar stór­fyr­ir­tækjum er leyft að vaxa sam­fé­lag­inu yfir höfuð þá verða þau að skað­valdi og það ber að bregð­ast við þeim sem slíkum. Það er löngu tíma­bært að þjóðin sýni Samherja hver hefur völdin.

  • Þjóðinni færð eign sín
    Sós­í­alista­flokk­ur­inn leggur til að bundið verði í stjórn­ar­skrá að fisk­veiði­auð­lindin sé eign þjóð­ar­innar og að þjóðin ákveði sjálf hvernig nýt­ingu hennar er háttað. Flokk­ur­inn leggur til fiski­þing í hverjum lands­hluta þar sem sjó­menn, fisk­verka­fólk og almenn­ingur allur sest niður og mótar fisk­veiði­stefn­una til lengri tíma. Til að losna við yfir­gang útgerða og ann­arra hags­muna­að­ila fer best á því að notað yrði slembival til að velja full­trúa á þessi þing, annað hvort að öllu leyti eða að stærstu leyti.

Fiski­þingin geta kallað eftir upp­lýs­ingum og skýrslum sér­fræð­inga, kallað eftir rann­sóknum á áhrifum kvóta­kerf­is­ins á ólíkar byggðir og stéttir, metið hag­ræn, vist­væn og félags­leg áhrif mis­mun­andi aðferða við stjórn fisk­veiða og sótt allar þær upp­lýs­ingar sem nauð­syn­legar þykja.

Ekkert segir að öll fiski­þingin þurfi að kom­ast að sömu nið­ur­stöðu og hvert þeirra þarf ekki að leggja til eina lausn. Nið­ur­staðan getur orðið daga­kerfi, afla­mark, leiga heim­ilda eða upp­bygg­ing sam­vinnu­fé­laga, frjálsar hand­færa­veiðar eða hvað svo sem þing­full­trúar telji að muni nýta afl auð­lind­anna best svo þær geti byggt upp blóm­legt atvinnu­líf.

  • Kvóta­kerf­inu lokað
    Sós­í­alistar gera kjós­endum til­boð um að loka kvóta­kerf­inu strax og taka upp daga­kerfi fyrir tog­ara og báta þar til fiski­þingin hafa mótað fram­tíð­ar­stefnu. Það er mik­il­vægt að höggva strax á afla­marks­kerfið og þá spill­ingu sem þrífst innan þess.
    Kostir daga­kerf­is­ins umfram afla­marks­kerfið er að innan þess er ekki brott­kast, fram­hjálöndun og svindl á vigt. Með því að setja ófrjá­v­íkj­an­lega reglu um allan afla á markað má girða fyrir launa­þjófnað, skatt­svik og svindl á hafn­ar­gjöldum sem sala á afla innan sama fyr­ir­tækis býður upp á.

Verðmæti und­ir­máls­fiska sem er landað rennur í rík­is­sjóð. Úthlut­aðir dagar á skip og báta verða ófram­selj­an­legir.
Það er mik­il­vægt að hreinsa fisk­veiðar og -vinnslu af þeirri spill­ingu sem kvóta­kerfið hefur inn­leitt.

  • Veiði­gjöld inn­heimt við bryggju
    Veiði­gjöld verða inn­heimt við löndun, inn­heimt á jafn ein­faldan máta og virð­is­auka­skattur. Það má meira að segja vel hugsa sér að veiði­gjaldið sé það sama og virð­is­auk­inn í dag, eða 24%. Það myndi gefa um 35 millj­arða króna á ári í veiði­gjöld miðað við verð afla á síð­asta ári, en reikna má með að afla­verð hækki þegar allur fiskur fer á markað. Veiði­gjöldin renni jafnt til sveit­ar­fé­laga og ríkis.
  • Hand­færa­veiðar gefnar frjálsar
    Hand­færa­veiðar verða gefnar frjálsar fimm veiði­daga í viku að eigin vali frá mars til októ­ber. Miðað er við þrjár rúllur þar sem er einn maður um borð en fjórar þar sem eru tveir. Þessar veiðar verða að lúta veð­ur­við­vörun Veð­ur­stof­unnar.
  • Afla­heim­ildir boðnar upp
    Afla­heim­ildir í Barents­hafi, í Smugunni og ann­ars staðar í úthaf­inu verða boðnar upp. Í upp­boð­inu sé gætt jafn­ræðis og hin fáu stóru geti ekki keypt allt upp og lokað fyrir nýrri og smærri útgerðir. Kaup­and­inn greiðir verðið fyrir afla­heim­ild­irnar eftir sölu á fisk­mark­aði. Sé skipið sem fiskar þessar afla­heim­ildir að stunda veiðar í daga­kerf­inu má ef þurfa þykir nýta hugs­an­lega stopp­daga fyrir þessar veiðar.
  • Stór­út­gerðin sæti rann­sóknum
    Í ljósi Sam­herj­a­máls­ins verði fimm stærstu útgerð­ar­fyr­ir­tækin rann­sökuð til að kanna hvort þar hafi mútum verið beitt, fisk­verð falsað, sjó­menn hlunn­farnir, skotið undan skatti, arður af rekstr­inum og auð­lind­inni fal­inn í aflöndum eða brotið með öðrum hætti gegn sam­fé­lag­inu. Ef stór­felld svik koma í ljós við þessar rann­sóknir verður efnt til rann­sóknar á næstu fimm útgerð­ar­fyr­ir­tækjum.

Í nið­ur­stöðum Lýð­ræðiskönn­unar sós­í­alista sem birtar voru á Sós­í­alista­þingi síð­ast­liðið vor kemur glögg­lega fram hversu gríð­ar­lega mikla áherslu sós­í­alistar leggja á upp­stokkun Kvóta­kerf­is­ins. Bæði í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og Norð­aust­ur­kjör­dæmi settu sós­í­alistar Kvóta­kerfið í fyrsta sæti um mál sem þyrfti að leggja aðal­á­herslu á í bar­átt­unni fram undan. Í öðrum kjör­dæmum rað­að­ist Kvóta­kerfið líka í efstu sætin. Líkt og meiri­hluti þjóð­ar­innar vilja sós­í­alistar færa arð­inn af sjáv­ar­auð­lind­inni til þjóð­ar­innar. Þannig verði meðal ann­ars hægt að fjár­magna heil­brigð­is­kerfið og hús­næð­is­kerfið sem einnig voru þau mál sem röð­uð­ust hæst í Lýð­ræðiskönn­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina