Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Lögreglumaður rifjar upp erfiðasta útkallið: „Hún er fíkill og hún á tvö börn í íbúðinni“

Lögreglumaður rifjar upp erfiðasta útkallið: „Hún er fíkill og hún á tvö börn í íbúðinni“
Jökull Gíslason Mynd: Trausti Hafsteinsson

Jökull Gíslason rann­sókn­ar­lög­reglu­maður segir í við­tali að það líti aldrei vel út þegar lög­reglan lendir í átökum. Þá lýsir hann einu erf­ið­asta útkall­inu.

Í við­tali við Frosta Logason í þætti hans Spjallið með Frosta Logasyni, segir Jökull Gíslason rann­sókn­ar­lög­reglu­maður frá ýmsu sem við­kemur lög­reglu­starf­inu en hann segir íslenska lög­reglu­menn illa varða í rétt­ar­kerf­inu þar sem árásir á lög­reglu­menn séu ekki litnar eins alvar­legum augum og í lönd­unum í kringum okkur. „Við viljum hafa það þannig að við séum við stjórn og vitum alveg hvað við erum að gera og séum ekki að missa stjórn á skapi okkar eða rugla saman, að þetta sé eitt­hvað per­sónu­legt eða ekki. En á móti kemur hins vegar að ef það kemur til átaka, þá eru flest átök þannig að þau líta illa út, það er bara þannig.“

Jökull segir svo Frosta frá mjög efiðu augna­bliki í starfi hans hjá lög­regl­unni: „Við komum á stað þar sem kona er að deyja, er í raun og veru dáin. Og hún er fík­ill og hún á tvö börn í íbúð­inni. End­ur­lífg­unin var reynd rosa­lega lengi. Það eru komnir tveir sjúkra­bílar á stað­inn, það er kom­inn læknir á stað­inn og það er í raun allt gert til þess að reyna að bjarga þess­ari konu en það er of seint. Og það gengur ekki. Og við tekur þá ákveðið ferli þar sem þú ert með börnin og ert að bíða eftir að afi og amma komi á stað­inn til að taka börnin. Ég myndi segja að það, í minn­ing­unni, sé eitt af verri til­fell­unum. Þú vilt gera allt sem þú getur fyrir börnin en þú getur ekki bjargað þeim á þann hátt sem þau virki­lega vilja.“

Aðspurður um aldur barn­anna sagði Jökull að eldra barnið hafi verið um 10 ára en hitt of lítið til að upp­lifa atburð­inn eins og það eldra. „Ég man þegar við vorum komin með börnin til afa og ömm­unar út í bíl, þá biður hún, þetta var sem sagt stúlka, biður mig um að sækja gælu­dýrið hennar. Ég verð bara klökkur á að tala um þetta,“ sagði Jökull og beygði aðeins af.

Frosti spurði hann hvort hann hefði ekki komið heim eftir þetta, bug­aður. „Alveg klár­lega,“ svar­aði Jökull og hélt áfram: „Eða þú kemur svona þurrausa. Svona svo­lítið tómur.“

Hægt er að horfa á brot úr þætt­inum hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina