Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Vinnueftirlitið viðurkennir lögbrot

Vinnueftirlitið viðurkennir lögbrot
Vinnu­eft­ir­lit rík­is­ins

Enginn læknir hefur verið starf­andi hjá Vinnu­eft­ir­lit­inu síð­ast­liðin fjögur ár, þrátt fyrir að skýrt sé kveðið á um það í lögum.

Vinnu­eft­ir­lit Ríkisins hefur ekki haft lækni á stofn­un­inni frá því að Kristinn Tómasson hætti þar árið 2019. Skýrt er kveðið á um í lögum að Vinnu­eft­ir­litið hafi lækni í sinni þjón­ustu.

Hér má sjá 68. gr. laga um aðbúnað, holl­ustu­hætti og öryggi á vinnu­stöðum:

68. gr.

[Vinnu­eft­ir­lit rík­is­ins skal hafa í þjón­ustu sinni lækni sem hefur sér­þekk­ingu er teng­ist starf­inu.] 1)

Verkefni hans er:
a. að vera tengiliður Vinnu­eft­ir­lits rík­is­ins við heil­brigð­is­yf­ir­völd,
b. að veita for­stöðu atvinnu­sjúk­dóma- og heilsu­gæslu­deild, sbr. 73. gr. laga þess­ara,
c. að sjá um, að haldin sé skrá yfir atvinnu­sjúk­dóma, vinnu­slys og eitr­anir, sbr. 78. gr., staf­lið f og 81. gr. laga þess­ara,
d. að vinna að þeim málum öðrum, er snerta heil­brigði og heilsu­vernd starfs­manna, eftir nán­ari ákvörðun [for­stjóra] 1) Vinnu­eft­ir­lits rík­is­ins.

Mannlíf sendi fyr­ir­spurn um málið á Vinnu­eft­ir­litið og Vera Ein­ars­dóttir upp­lýs­inga­full­trúa stofn­un­ar­innar svar­aði. Við­ur­kenndi hún í svari sínu að Vinnu­eft­ir­litið færi ekki að lögum hvað varðar það að hafa starf­andi lækni á stofn­un­inni. Auglýst hafi verið eftir lækni í tvígang, 2020 og 2021 en að umsókn­ar­ferlunum hafi lokið án ráðn­ingar. „Í kjöl­far þess var ákveðið að leita út fyrir stofn­un­ina til sér­fræði­lækna og heil­brigð­is­stofn­ana, þegar þörf væri á.“

Vera sagði einnig að félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hafi árið 2022 lagt til laga­breyt­ingu „um að ekki yrði kveðið á um í lögum hvers konar sér­fræði­þekk­ing stofn­unin hefði yfir að ráða hverju sinni“ en að frum­varpið hafi ekki hlotið braut­ar­gengi. Bætti hún við: „Það er þó enn vilji til að gera umrædda breyt­ingu og þykir það vera í betra sam­ræmi við nútíma­skipu­lag stofn­ana að kveða ekki á um innra skipu­lag þeirra í lögum. Þetta fyr­ir­komu­lag hefur reynst vel hjá stofn­un­inni en ekki hafa komið upp mál að und­an­förnu sem hafa kallað á að vera með lækni inn­an­borðs.“

Um hlut­verk Vinnu­eft­ir­lits­ins sagði Vera eft­ir­far­andi:

„Hlutverk Vinnu­eft­ir­lits­ins er fyrst og fremst að hafa for­ystu um for­varnir og fræðslu um vellíðan og öryggi á vinnu­stöðum, svo og að sinna vett­vangs­at­hug­unum og skoð­unum á vinnu­vélum. Þver­fag­leg teymi starfa að þessum verk­efnum innan stofn­un­ar­innar.“

Samkvæmt heim­ild­ar­mönnum Mannlífs nýtti Vinnu­mála­stofnun sér­fræð­inga utan stofn­un­ar­innar á þeim árum sem Kristinn Tómasson starf­aði þar enda ekki hægt að ætl­ast til þess að hann hefði sér­fræði­þekk­ingu á öllu sem kæmi á borð hans. Það sé því ekki nýtt en að læknir sé nauð­syn­legur til að sinna öðrum verk­efnum sem honum ber, lögum sam­kvæmt, að gera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina