Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Segir móður sína illa svikna af Húnaþingi vestra: „Gjörsamlega siðlaust þó það sé kannski löglegt“

Segir móður sína illa svikna af Húnaþingi vestra: „Gjörsamlega siðlaust þó það sé kannski löglegt“
Hvamms­tangi

Mikil ólga er á Hvamms­tanga sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs, vegna óánægju með fram­komu sveit­ar­stjórnar Húna­þings vestra gagn­vart starfs­mönnum sveit­ar­fé­lags­ins.

Mannlíf hafði sam­band við Grétu Róberts­dóttur eftir ábend­ingar um umræðu sem í gangi á sam­fé­lags­miðlum en hún segir að sveit­ar­stjórn Húna­þings vestra hafi komið illa fram við móður hennar, rétt fyrir and­lát hennar. Móðir hennar hafði unnið fyrir sveit­ar­fé­lagið í yfir 20 ár, bæði sem gæslu­maður í íþrótta­húsi skól­ans á Laug­ar­bakka og sem stuðn­ings­full­trúi í grunn­skól­anum á Hvamms­tanga en hún var ómenntuð. Fyrir nokkrum árum var móðir Grétu sett yfir náms­ver­inu þar sem hún hjálp­aði nem­endur frá 3ja til 10. bekk en starf­inu sinnti hún af heil­indum og af metn­aði að sögn Grétu.

Launahækkunin

„Árið 2021 fór mamma fram á launa­hækkun því hún taldi sig vera að vinna umfram það sem hún fékk borgað fyrir. Svarið hjá þáver­andi skóla­stjóra var nei,“ segir Gréta í sam­tali við Mannlíf og bætti við: „Þá bað hún um starfs­mat sem að skóla­stjór­inn mátti ekki neita því um nýtt starf var að ræða. Hún fékk launa­hækkun umfram það sem hún bað um.“ Segir Gréta að mamma hennar hafi velt því fyrir sér hvort þessi launa­hækkun hefði farið fyrir brjóstið á þáver­andi skóla­stjór­anum en ári síðar var hann byrj­aður að vinna hjá sveit­ar­fé­lag­inu sjálfu. Um haustið 2022 var hún boðuð á fund hjá honum. „Hún vissi þegar hún fékk boðið að hann væri að ná sér niður á henni,“ segir Gréta og að hún hefði fengið þær upp­lýs­ingar að „sveit­ar­stjórnin hafi falið honum það verk­efni að vasast í þessum samn­ingum“ og að sveit­ar­stjór­inn hafi sam­þykkti síðan „þennan gjörn­ing“.

Fundurinn

„Hún fékk tölvu­póst hausti 2022 þar sem hún ásamt annarri konu var boðuð á fund niður í ráð­húsi. Þar var henni til­kynnt að þau ætl­uðu að breyta starfs­samn­ingi hennar.“ Gréta sagði að breyt­ing­arnar hafi haft í för með sér umtals­verðar breyt­ingar á vinnu­tíma og launa­kjörum. Það hafi verið álit mömmu hennar og stétt­ar­fé­lags­ins Samstöðu, sem hún leit­aði til, að um upp­sögn væri að ræða. „En nei! Þau vildu meina að þetta væri ekki upp­sögn heldur bara breyt­ing á starf­samn­ingi og ef hún myndi ekki skrifa undir þennan samn­ing þá þyrfti hún að segja upp sjálf! Þar með myndi hún tapa öllum sínum veik­inda­rétti og til dæmis rétti til atvinnu­leys­is­bóta næstu 3 mán­uði,“ segir Gréta. Mamma Grétu hafði verið með starf­samn­ing sem gerði henni kleift að taka launa­laust leyfi frá störfum frá 1. maí til 1. sept­em­ber, svo hún gæti sinnt bústörfum en hún var sauð­fjár­bóndi. „Með þess­ari breyt­ingu á starfs­samn­ingi átti að gera henni ókleift að geta sinnt sínu búi, því henni var bannað að taka launa­laust leyfi í maí.“

Gréta segir að orð mömmu hennar hafi verið tekin úr minnis­p­unktum um þá fundi sem hún sótti um málið hjá sveit­ar­fé­lag­inu en þau voru eft­ir­far­andi: „Í gegnum tíð­ina hef ég afsakað þáver­andi skóla­stjóra bæði í hug­anum og orði að hann sé svo klaufa­legur í sam­skiptum en er eig­in­lega komin á þá skoðun að þetta sé ekk­ert annað en ein­elti. Og hvert á maður að snúa sér í því? Jú sam­kvæmt ein­elt­is­stefnu Húna­þings er það til yfir­manna. Senni­lega erfitt þegar það er um einn af æðstu yfir­mönnum sem um ræðir.“

„Mamma tal­aði um það að verið væri að losa sig við hana. Hún hafði sinnt sínu starfi af metn­aði og aldrei gerst brot­leg í sínu starfi. Kom vel fram við sína skjól­stæð­inga og átti gott sam­band við þá og for­eldra þeirra. En ekk­ert var metið. Hvorki hún né vinnan sem hún lagði fram,“ segir Gréta í sam­tali við Mannlíf og bætti við að á einum fundi um málið hafi starfs­maður sveit­ar­fé­lags­ins sem um, að „nýta tæki­færið til að gera lítið úr henni og hennar starfi.“. „Á einum fund­inum vog­aði þessi ein­stak­lingur sér að segja við hana: „Maður kemur í manns stað og það verður auð­velt“.“ Enn í dag er ekki búið að ráða starfs­mann í náms­ver skól­ans að sögn Grétu. „Greini­lega ekki jafn auð­velt og hann full­yrti að fylla í hennar skarð!“

Mamma Grétu lést 23. júlí úr hjarta­á­falli en sam­kvæmt Grétu tókst ein­stak­lingnum sem um er rætt, ásamt sveit­ar­stjórn­inni að gera síð­asta árið í lífi hennar „ömur­legt“. „Jákvæð­ari og hress­ari konu var ekki hægt að finna en þeim tókst að brjóta hana niður. Hún var gjör­sam­lega nið­ur­brotin yfir því hvernig væri verið að fara með hana og tal­aði um þetta í hvert sinn sem ég hitti hana. Þvílíkt álag að þurfa að standa í þessu stappi við sveit­ar­fé­lagið og ekk­ert metið!“ Bætti hún við: „Og til að toppa ömur­leg­heitin þá barst aldrei nein sam­úð­ar­kveðja eða neinn stuðn­ingur frá sveit­ar­fé­lag­inu til okkar við and­lát hennar.“

Fjölskyldustefna fyrir sumar fjölskyldur

Segir Gréta að þegar farið var fram á útskýr­ingu á þess­ari breyt­ingu, hafi sveit­ar­fé­lagið borið fyrir sig jafn­launa­vottun, sem Gréta segir að stand­ist enga skoðun. „Því jafn­launa­vottun felur í sér að ekki sé óút­skýrður launa­munur  hjá starfs­mönnum fyrir sömu vinn­una. Skrítið að setja það fram því að mamma var eini umsjón­ar­maður náms­vers í sveit­ar­fé­lag­inu og því ekki að sinna sömu vinnu og aðrir starfs­menn skól­ans.“

Bætti Gréta því við að sveit­ar­fé­lagið „monti“ sig af því að vera með fjöl­skyldu­stefnu sem felur meðal ann­ars í sér hag­ræð­ingu á vinnu­tíma starfs­fólk í sam­ræmi við fjöl­skyldu­að­stæður. „En það á greini­lega ekki við um allar fjöl­skyldur,“ segir Gréta og hélt áfram. „Mamma og pabbi voru svo sann­ar­lega fjöl­skylda og með sauð­fjar­bú­skap. Hún var ráðin inn í vinnu með til­liti til fjöl­skyldu­að­stæðna þeirra og erils í sauð­burði og myndi það kall­ast fjöl­skyldu­vænt. En að taka það ákvæði í burtu fellur svo sann­ar­lega ekki undir þessa fjöl­skyldu­stefnu.“

Gréta er, eins og aðrir í fjöl­skyld­unni, afar ósátt við þessa fram­komu gagn­vart mömmu hennar. „Þetta ofbeldi að þvinga starf­mann til að sam­þykkja breyt­ingu á samn­ing þegj­andi og hljóð­laust eða þá að vera þving­aður til að segja upp sjálfur er til skammar!

Gjör­sam­lega sið­laust þó það sé kannski lög­legt.“

Full­yrðir hún að mál mömmu hennar sé ekki eins­dæmi hjá sveit­ar­fé­lag­inu. „Sami leikur hefur verið leik­inn aftur og aftur af þessum sama ein­stak­ling og sveit­ar­stjór­in­inni virð­ist vera sama, því þau virð­ast við­ur­kenna þessa ofbeldis og ein­elt­is­menn­ingu sem er hér. Og það sorg­lega við þetta er að fólk þorir ekki að stíga fram. Því að ekk­ert er gert, öllu stungið ofaní skúffu og málin bara þögguð niður.“

Segir Gréta að lokum að hún hafi nýverið fengið þær upp­lýs­ingar að und­ir­skrift­ar­listi sem skilað var inn á skrif­stofu Húna­þings vestra um að mamma hennar héldi þessum samn­ingi og þar af leið­andi vinn­unni, hefði aldrei borist frá skól­anum og í ráð­húsið en að starfs­fólk ráð­húss­ins hafi fengið upp­lýs­ingar um hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina