Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Rannveig Borg: „Var orðin háð því að kasta upp þar til það leið yfir mig”

Rannveig Borg: „Var orðin háð því að kasta upp þar til það leið yfir mig”
Rannveig Borg Mynd: Trausti Hafsteinsson

Rannveig Borg, lög­fræð­ingur og rit­höf­undur segir hræði­legt að missa tökin á eigin lífi inn í heim fíknar. Rannveig, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar  glímdi í áraraðir við átröskun, sem bjó til mikla skömm og fór með hana á dimma staði:

„Mér finnst ennþá á ákveð­inn hátt erfitt að tala um átrösk­un­ina. Þetta er svo per­sónu­legt og það fylgir þessu skömm. Ég var ekki nema átta níu ára, þegar fyrstu merkin gerðu vart við sig. Svo varð þetta alvöru vanda­mál í kringum ferm­ing­ar­ald­ur­inn. Þá byrj­aði ég að þyngj­ast og fór að svelta mig og þróa með mér búlimíu. Svo náði þessi víta­hringur algjöru stjórn­leysi sem í raun tók alveg yfir líf mitt. Þetta verður að vana fyrst, en svo verður maður háður þessu og það er í raun eins og braut­irnar í heil­anum séu orðnar fastar og þörfin í að kasta upp verður svo sterk að ekk­ert kemur í veg fyrir að það ger­ist. Þegar ég var búin að taka stór köst og kasta mikið upp fékk ég hálf­gerða löm­un­ar­til­finn­ingu, enda er maður búinn að missa sölt og fleira úr lík­am­anum. Það var nán­ast eins og að það liði yfir mann þegar þessi köst voru sem verst og ég man eftir tíma­bili þar sem ég gat ekki sofnað öðru­vísi en að vera í þessu ástandi. Það hljómar skrýtið, en ég var á ákveð­inn hátt orðin háð því að kom­ast í þetta löm­unar­á­stand,“ segir Rannveig, sem er alveg sann­færð um að átrask­anir, sér­stak­lega búlimía séu án nokk­urs vafa fíkni­sjúk­dómur:

„Það eru ekki allir sam­mála mér um að átröskun sé fíkn en því meira sem ég læri í fíkni­fræð­unum er þetta alveg aug­ljóst í mínum huga. Ég upp­lifði stjórn­leysi, ég réði ekk­ert við þetta og reyndi end­ur­tekið að hætta og vissi að þetta hefði veru­lega  nei­kvæð áhrif á mig og mitt líf. Samt gat ég ekki hætt. Hvernig getur þetta verið annað en fíkn?“

Rannveig er búsett í Sviss, þar sem hún starfar sem lög­fræð­ingur. Hún hefur nú verið frjáls frá fíkn­inni í 25 ár og seg­ist vilja hjálpa til við að auka skiln­ing á þessum hlutum:

„Mig langar aldrei að upp­lifa þetta stjórn­leysi aftur og ég vil fræða fólk þannig að umburð­ar­lyndi gagn­vart fíkni­sjúk­dómum auk­ist. Það er algjört hel­víti að missa stjórn á sjálfum sér og það vill það eng­inn. Það velur eng­inn sjálfur að missa tökin og fólk sem glímir við fíkni­sjúk­dóma á ekki að þurfa að upp­lifa alla þessa skömm. Mitt mark­mið er að leggja lóð á þær vog­ar­skálar að skömmin sé ekki lengur til staðar.“

Rannveig fór ung í nám í Frakk­landi og það var eng­inn dans á rósum að fara ein í stóra borg glím­andi við átröskun og ótt­ast að hlut­irnir myndu ekki ganga upp. En hún var byrjuð að ná sér út úr því versta þegar hún flutti út og segir að það hve krefj­andi námið var hafi á end­anum verið hluti af því að koma sér á beinu braut­ina:

„Ég var ekki orðin nógu góð í frönsku þegar ég flutti og var ein í París, þó að ég hafi átt góðan kærasta á þessum tíma. En mér fannst það bara veru­lega erfitt að vera ein í lít­illi íbúð í París á þessum tíma og námið var mjög krefj­andi. Fyrstu tvö árin voru virki­lega krefj­andi og erfið. En ég þurfti að hafa svo mikið fyrir nám­inu til þess að eiga mögu­leika á að láta þetta ganga upp, þannig að ég varð að hafa líf mitt í jafn­vægi. Ég held að það hafi hjálpað mér að ná tökum á átrösk­un­inni og það var á þessum árum sem ég byrj­aði að ná mér upp úr átrösk­un­inni. Einhvern vegin vissi ég djúpt innra með mér að ég yrði að ná stjórn á lífi mínu ef ég ætti ekki að missa end­an­lega tökin á öllu.“

Í þætt­inum ræða Sölvi og Rannveig um bóka­skrif, ADHD, lög­fræði og fleira. Rannvegi seg­ist komin á mjög góðan stað í sínu lífi, þar sem hún hafi lært að lifa heil­brigðu lífi þar sem jafn­vægi ríki:

„Ég elska að vera úti í nátt­úr­unni, hreyfa mig og lifa heil­brigðu lífi. Það er það sem heldur mér í jafn­vægi og lætur hlut­ina ganga upp. Ég hef á und­an­förnum árum lært að fyr­ir­gefa mér fyrir bæði fíkn­ina, öll árin af ógreindu ADHD og fleiri hlutum. Það hvernig mitt líf hefur þró­ast á sér sínar skýr­ingar og erf­iðu tíma­bilin hafa markast af ójafn­vægi í heila­starf­semi og fleiri hlutum sem snúa ekki að því að ég sé ekki nógu góð mann­eskja. Ég sé að ég hef alltaf verið að gera mitt besta og skil sög­una mína betur núna. Það að líf mitt hafi verið óhefð­bundið á köflum er í lagi og ég hef lært að taka það í sátt.“

Hægt er að nálg­ast við­talið við Rann­veigu og öll við­töl og podcöst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina