Glæfralegur akstur náðist á myndband.
Forritarinn Matthías Ásgeirsson birti í gær myndband á Twitter-síðu sinni sem sýnir glæfraakstur ökumanns á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar. Þar fer ökumaður bíls yfir á eldrauðu ljósi og verður að teljast heppni að engin slys urðu á fólki.
Matthías birtir reglulega myndbönd, af ökuníðingum í umferðinni, á Twitter-síðu sinni.
Hægt er að sjá myndbandið hér fyrir neðan.































Athugasemdir