Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ingunn lýsir árásinni sem kostaði hana næstum því lífið: „Þetta virtist vera heil eilífð“

Ingunn lýsir árásinni sem kostaði hana næstum því lífið: „Þetta virtist vera heil eilífð“
Ingunn Björns­dóttir stuttu eftir árás­ina. Mynd: Ingunn Björnsdóttir

Ingunn Björns­dóttir er enn að glíma við eft­ir­köst hnífs­stungu­árás­ar­innar sem hún varð fyrir í Ósló­ar­há­skóla fyrir tveimur og hálfum mán­uði síðan.

Ingunn Björns­dóttir, dós­ent í lyfja­fræði við Ósló­ar­há­skóla, var í við­tali við TV2 í Noregi. Þar kemur fram að hún haltri eilítið og sé til­finn­inga­laus á nokkrum stöðum í hand­leggj­unun – eins og hún hafi fengið deyf­ingu. „Það er gott að vera komin til baka, en líka svo­lítið sér­stakt,“ segir hún í upp­hafi við­tals­ins en hún hefur starfað við háskól­ann síð­ast­liðin 10 ár. „Ég ákvað ung að árum að ég myndi aldrei starfa við eitt­hvað sem þætti leið­in­legt.“

Árásin

Dagurinn 24. ágúst hófst eins og hver annar vinnu­dagur. Ingunn fór í hverf­is­búð­ina og keypti sér árbít. Hún sótti fyrsta kaffi­bolla dags­ins í mötu­neytið hjá skrif­stof­unni í Mari­en­lyst. „Þetta var eins og hver annar dagur,“ segir hún.

Klukkan rúm­lega tvö und­ir­bjuggu hún og vinnu­fé­lagi hennar fund sem átti að halda með einum nem­anda. Þegar þau sett­ust and­spænis hvort öðru á skrif­stof­unni átti hún ekki von á atviki sem myndi ger­breyta lífi hennar.

Áður en hún vissi af barð­ist hún fyrir lífi sínu á gólf­inu eftir að hafa verið stungin sextán sinnum með hnífi.

Fyrsta stungan lenti á hálsi Ingunnar. „Það fyrsta sem flaug gegnum hug­ann var undrun. Ég skildi ekki hvað var að ger­ast.“

Síðan kom ótt­inn.

„Það var greini­legt að hann vildi ná mér. Og hann stakk mig í háls­inn og ég hugs­aði að þetta myndi ég ekki lifa þetta af. Svo kom skelf­ingin.“

„Hvað gerðir þú þá?“ var Ingunn spurð í við­tal­inu.

„Ég öskr­aði. Það er það sem maður gerir þegar maður verður hræddur.“

Ingunn reyndi að verja sig með hönd­unum. Hún fékk djúpa skurði, en fann ekki sárs­auk­ann. Adrena­línið var á fullu.

„Þetta virt­ist vera heil eilífð“, segir hún.

Síðan kom hnífs­stunga í lík­amann.

„Það var þá sem ég hugs­aði: „Ég mun deyja“.“

En þá var dyr­unum var hrundið upp.

Vinnu­fé­lagar þustu inn til að hjálpa henni. Einhver hringdi á lög­reglu og sjúkra­bíl.

Svo náðu vinnu­fé­lagar að yfir­buga árás­armann­inn.

Ingunn náði að staul­ast á fætur.

„Ég fór fram. Samtímis fann ég að annar fót­ur­inn virk­aði ekki. Hann bara dingl­aði.“

Hún haltr­aði inn í ljós­rit­un­ar­her­bergið við hlið­ina og hneig þar niður. Þar sem hún lá á gólf­inu horfði hún upp á and­lit starfs­fé­laga sinna.

„Ég man þetta nán­ast allt. Ég man hvað gerð­ist í kringum mig og hvað ég hugs­aði um. En ég var örugg­leg við að missa með­vit­und á ein­hverjum tíma­punkti.“

Búið var um hand- og fót­leggi og fót­leggj­unum haldið hátt til að stöðva blæð­ing­una.

„Ég fann engan sárs­auka. Það kom mér á óvart og var reyndar svo­lítið áhuga­vert. Ég skynj­aði engan sárs­auka fyrr en ég var komin á sjúkr­húsið,“ segir hún.

Óskiljanlegt

Enn þann dag í dag á Ingunn erfitt með að skilja orsakir árás­ar­innar. 

„Hver ert þú sem kenn­ari fyrir nem­endur þína?“

Hún hlær.

„Það er erfið spurn­ing.“

Síðan hugsar hún sig um.

Ingunn situr í fund­ar­her­bergi á Thon-hót­eli í Ullevaal.

Und­an­farna mán­uði hefur hún dvalið á Íslandi með fjöl­skyldu sinni til að jafna sig eftir árás­ina. Núna er hún komin aftur til Óslóar þar sem hún tekur meðal ann­ars þátt í ráð­stefnu.

„Það fer senni­lega eftir því hvern þú spyrð. Sumir telja eflaust að ég sé of ströng, aðrir að ég sé of und­an­lát. Ein­hverjum finnst kannski líka að hreimur minn sé erf­iður að skilja.“

Hægt er að lesa við­talið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina