Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fjórir nemendur reknir úr Garðaskóla eftir mótmælagöngu – Köstuðu eggjum í menntamálaráðherra

Fjórir nemendur reknir úr Garðaskóla eftir mótmælagöngu – Köstuðu eggjum í menntamálaráðherra

Um miðjan febr­úar 1992 gengu fleiri hund­rað grunn­skóla­nemar í mót­mæla­göngu frá Mikla­túni að Lækj­ar­torgi en þar var Ólafi G. Ein­ars­syni, þáver­andi mennta­mála­ráð­herra, afhentur und­ir­skrift­ar­lista. Á list­anum voru grunn­skóla­nemar sem voru ósáttir við nið­ur­skurði í mennta­kerf­inu.

Þegar ráð­herr­ann hafði tekið við list­anum tóku sér nokkrir nem­endur sig til og köst­uðu eggi í hann. Brugðust aðrir nem­endur nokkuð ókvæða við og var Ólafur beð­inn afsök­unnar. Eggjakastið átti svo eftir að draga dilk á efir sér fyrir þá nem­endur sem köst­uðu þeim.

Morg­un­blaðið skrif­aði eft­ir­far­andi frétt um eggjakastið og mót­mælin en neðar má svo sjá frétt DV um eft­ir­köst eggjakasts­ins.

Mótmæli grunn­skóla­nem­enda á Lækj­ar­torgi:



Eggjum var kastað í mennta­mála­ráð­herra

NEMENDUR í 8., 9. og 10. bekkjum grunn­skóla í Reykja­vík fóru í mót­mæla­göngu frá Mikla­túni að Lækj­ar­torgi í gær, þar sem Ólafi G. Ein­ars­syni, mennta­mála­ráð­herra, var afhentur und­ir­skrifta­listi vegna mót­mæla grunn­skóla­nem­enda við nið­ur­skurði í mennta­kerf­inu. Þegar mennta­mála­ráð­herra hafði veitt list­unum við­töku varð hann fyrir eggjakasti nokk­urra úr hópnum en stjórn­endur fund­ar­ins báðu hann þegar

 afsök­unar á þessum verkn­aði. Á milli 500 til 700 manns tóku þátt í mót­mæl­unum.

í bréfi til ráð­herra, sem fylgir und­ir­skrift­ar­list­unum, segir m.a. að grunn­skóla­nem­endum finn­ist að í til­lögum til breyt­inga á mennta­kerf­inu felist nið­ur­skurður á þeim mann­rétt­indum sem grunn­skóla­nem­endur á íslandi hafi notið og eigi að njóta. Enn­fremur segir að nem­endur ótt­ist afleið­ingar þess ef kenn­ara­stöður verði stór­lega fækkað og ef sett verði lág­marks­ein­kunn til inn­göngu í fram­halds­skóla.

Eftir að skóla­fólkið hafði óskað eftir nær­veru ráð­herr­ans með hrópum í um hálfa klukku­stund kom hann til fund­ar­ins og voru honum afhentar um 4.000 und­ir­skriftir. Hann sagði að nið­ur­skurð­ar­að­gerð­irnar væru ekki eins slæmar og látið væri í ljós, þær væru aðeins tíma­bundnar og ekki væri hjá þeim kom­ist. Nokkrir ein­stak­lingar úr fjöld­anum köst­uðu eggjum í mennta­mála­ráð­herra er hann vék af fundi. Þorri nem­enda virt­ust þó vera reiðir vegna þessa og var ráð­herr­ann beð­inn afsök­unar. Á ekki að skera meira niður Þröstur Gestsson, nem­andi í 10. bekk Voga­skóla, tók þátt í mót­mæl­unum í gær. Hann sagði að nú þegar væru nem­endur í færri tímum en þeir vildu. „Það er mjög lítið val hjá okkur nú og það á eftir að verða miklu verra ástand ef meira er skorið niður, sér­stak­lega hjá minni skól­unum,“ sagði Þröstur. Hann sagði að það ætti frekar að sam­eina minni skóla í sömu hverfum en að minnka kennslu enn meira. „Nú þegar hefur sam­ræmdum prófum verið fækkað niður í aðeins tvö og við viljum vera betur und­ir­búin fyrir fram­halds­nám en þetta,“ sagði Þröstur.

Ólafur G. Ein­ars­son

Viljum hafa skól­ann eins og hann er

Lovísa Hann­es­dóttir og Helga Jóns­dóttir eru nem­endur í 8. bekk Snæ­lands­skóla. „Okkur fín­nst það ekki rétt að nið­ur­skurð­ur­inn bitni á okkur. Við viljum hafa skól­ann eins og hann er núna,“ sögðu þær. Þær sögðu að ef skóla­dag­ur­inn yrði styttur myndi heima­nám aukast. „Þá væru meiri líkur á að fólk næði ekki nógu góðum ein­kunnum og mennt­unin yrði ekki eins góð. Það á að gefa öllum tæki­færi á fram­halds­námi. Það er allt í lagi að hafa ein­hver skil­yrði til inn­göngu í fram­halds­skól­anna en þau mega heldur ekki vera of mikil,“ sögðu þær.

Lovísa og Helga tóku jafn­framt fram hversu leið­in­legt þeim þótti eggjakastið á mennta­mála­ráð­herra. „Svona fram­koma er ekki rétt og verður til þess að eyði­leggja fyrir öllum hinum. Það voru aðeins örfáir sem stóðu fyrir þessu,“ sögðu þær.

DV fjall­aði svo um eft­ir­mála mót­mæl­anna fyrir fjóra nem­endur Garða­skóla í Garðabæ. Tveir þeirra ját­uðu eggjakastið á ráð­herr­ann en Gunn­laugur Sig­urðs­son, þáver­andi skóla­stjóri Garða­skóla hafði fyrir mót­mæla­fund­inn varað ung­ling­ana við að fara á mót­mæla­fund­inn, sem hald­inn var á skóla­tíma. Rak hann því fjór­menn­ing­ana úr skól­anum.

Mót­mæla­fund­ur­inn: Fjórir reknir

Fjórum ung­lingum hefur verið vísað úr Garða­skóla í Garðabæ vegna óheim­illar fjar­veru úr skól­anum er þeir sóttu mót­mæla­fund grunn­skóla­nema 13. febr­úar sl. Tveir hinna brottreknu hafa játað að hafa kastað eggjum í Ólaf G. Ein­ars­son mennta­mála­ráð­herra. Skóla­stjór­inn í Garða­skóla, Gunn­laugur Sig­urðs­son, hafði fyrir mót­mæla­fund­inn varað ung­ling­ana í skól­anum við og sagt þeim að færu þeir á fund­inn á skóla­tíma yrði tekið hart á því. Nokkrir nem­endur skelltu skolla­eyrum við þessum til­mælum skóla­stjóra og fóru á fund­inn. Strax dag­inn eftir voru allir, sem skráðir höfðu verið fjar­ver­andi úr tímum dag­inn áður, kall­aðir á fund skóla­stjóra. Þá ját­uðu piltur og stúlka í hópnum að hafa hent eggjum í mennta­mála­ráð­herr­ann. Var þeim, ásamt tveim öðrum, vikið úr skól­anum. Þessir nem­endur höfðu allir verið áminntir áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina