Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Kona í Ísrael sigaði íslensku lögreglunni á Kristinn: „Þarna var mér eiginlega öllum lokið“

Kona í Ísrael sigaði íslensku lögreglunni á Kristinn: „Þarna var mér eiginlega öllum lokið“
Kristinn Hrafns­son

„Löggan hringdi í mig hingað til London í gær, ekki Scotland Yard heldur lög­reglan á íslenska höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Lík­leg­ast hefur upp­hringj­and­inn haldið að ég færi í hnút yfir sím­tal­inu svo hann tók skýrt fram í upp­hafi, eftir að hafa kynnt sig, að hann væri nú ekki að hringja í mig útaf neinu alvar­legu.“ Svona byrjar Facebook-færsla Kristins Hrafns­sonar en hann lenti í því að kona í Ísrael sig­aði íslensku lög­regl­unni á hann.

Rit­stjóri Wikileaks segir frá því á Facebook í morgun að hann hafi fengið ansi sér­stakt sím­tal frá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Erindið voru sam­skipti Kristins við konu á Facebook, í kjöl­far skrifa hans um það gengd­ar­lausa ofbeldi sem Palest­ínu­menn mega þola um þessar mundir, af hendi ísra­elska hers­ins. „Forsagan er sú að yfir helg­ina fékk ég yfir mig frekar dóna­leg skila­boð á facebook frá ein­stak­lingum sem sam­hliða höfðu sent mér vina­beiðni – svo und­ar­legt sem það nú er. Þetta voru allt skila­boð sem snéru að því að ég færi villu vegar í færslum mínum um mál­efni Gaza og helst að það færi fyrir brjóstið á við­kom­andi að ég for­dæmdi barna­slátr­un­ina í linnu­lausum loft­rárásum Ísra­els­hers. Málfarið var allt keim­líkt.“

Kristinn seg­ist hafa grennsl­ast fyrir um prófíla við­kom­andi, hafi þeir reynst bera þess merki að vera gerfi­menn en við þá vill Kristinn ekki tala. „Tel það hámark hug­leys­is­ins að fela sig á bak við gerf­inöfn, sér­stak­lega ef til­efnið er aðal­lega að ráð­ast á mína per­sónu (sem ég er ann­ars ekk­ert sér­stak­lega við­kvæmur fyrir). Ég eyddi ein­hverjum af þessum ummælum og blokk­aði gerfi­menn­ina.“

En það dugði ekki til. „Loks dúkkar upp kona sem virt­ist vilja halda áfram sama þrá­stagli en nú undir nafni sem virt­ist alvöru. Engu að síður vildi ég ganga úr skugga um að við­kom­andi væri ekta og fletti því við­kom­andi upp í íslend­inga­bók, síma­skrá og þjóð­skrá. Eftir stutta skoðun kom aðeins ein kona til greina og var við­kom­andi skráð með heim­il­is­festu erlendis, nánar til­tekið í Ísrael.“

Rit­stjór­inn tók í kjöl­farið skjá­skot úr þjóð­skránni og póstaði á Facebook auk þess sem hann lét spurn­ingu fylgja, þar sem hann spurði hvort konan væri á launum við að skrifa athuga­semdir um hans „vonda inn­ræti og meinta skoð­ana­villu.“ Bætti hann við: „Sú birt­ing olli slíku hug­ar­víli hjá Íslensku kon­unni í Ísrael að hún hringdi lang­línusím­tal til lög­regl­unnar á íslenska höf­uð­borg­ar­svæð­inu með kvörtun eða kæru. Og lög­reglan hringdi beint í mig.“

Þegar Kristinn spurði lög­reglu­mann­inn hver hinn meinti glæpur væri svar­aði hún: „Tja hún heldur því fram að þú hafir brotið per­sónu­vernd­ar­lög. En ég held að þetta sé ekki lög­reglu­mál.“ Benti hann lög­reglu­mann­inum á að það væri frekar ein­kenni­legt að tala um brot á per­sónu­vernd­ar­lögum þegar um er að ræða opnar og aðgengi­legar upp­lýs­ingar fyrir almenn­ing að skoða í Þjóðskrá, kennitala, nafn og heim­il­is­fang, „sem í til­felli kon­unnar var nú ekki nákvæmara en svo að það til­greindi bara landið: Ísrael.“Segir Kristinn lög­reglu­mann­inn hafa virst taka undir það sjón­ar­mið og ítrek­aði að hann teldi þetta ekki lög­reglu­mál. „Við það stækk­aði spurn­inga­merkið mín megin; „En þú ert nú engu að síður að hringa í mig. Frá emb­ætti lög­regl­unnar“?“ skrif­aði Kristinn og bætti við: „Ef hægt er að tví­stíga í síma var löggan byrjuð á því þarna og sagði eitt­hvað að þá leið að þetta væri nú bara gert fyrir íslensku kon­una – sko, koma þessu á fram­færi, og svona – og sko lög­reglan væri nú bara að reyna að stuðla að friði milli manna. (Þarna stillti ég mig um þá ábend­ingu að það væru aðrar leiðir fyrir lög­regl­una ef hún teldi frið­elsk­andi lög­sögu sína ná til botns Mið­jarð­ar­hafs, til að stuðla að friði í nágrenni við íslensku kon­una í Ísrael, t.d. gæti lög­reglan fjöl­mennt á sam­stöðu­göngu með Palest­ínu­mönnum og kraf­ist vopna­hlés strax og stöðvun þess­ara ógeðs­legu barna­slátr­unar sem stendur nú yfir á Gaza).“Kristinn segir þá lög­regl­una hafa svarað því til að konan vildi einnig meina að sam­skiptin stang­ist á við notk­un­ar­skil­mála Facebook. „Þarna var mér eig­in­lega öllum lokið og þó að sam­skipti mín og lög­reglu­manns­ins væru öll á hinum vin­sam­leg­ustu nótum spurði ég hann hvort það væri virki­lega í verka­hring lög­regl­unnar á Íslandi að fylgj­ast með að farið væri að notk­un­ar­skil­málum á sam­skipta­vef í eigu banda­rísks fyr­ir­tækis – til að gæta hags­muna konu sem borg­aði skatta og skyldur í Ísrael.“Og lög­reglu­mað­ur­inn svar­aði: „Nei, eins og ég segi þá er þetta ekki lög­reglu­mál“, sagði lög­reglu­mað­ur­inn, enn og aftur – sá sem gerði sér það ómak í sínu starfi sem lög­reglu­maður að hringja í mig til London.Við kvödd­umst kurt­eis­lega eftir þetta og mig grunar að hann hafi verið dauð­feg­inn að sím­talið varð ekki lengra.“

Að lokum seg­ist Kristinn ætla að gera eft­ir­far­andi, næst þegar ein­hver vill héreftir eiga við hann orða­stað á opin­berum vett­vangi: „a) næst þegar ein­hver sakar mig um gyð­inga­hatur fyrir það eitt að gagn­rýna hel­stefnu stjórn­valda gagn­vart Palest­ínu­mönnum mun ég til­kynna það form­lega til lög­reglu sem gyð­inga­hatur. Ég tel að ásökun um sam­jöfnuð af slíku tagi sé alvar­leg aðför gegn öllum gyð­ingum heims­ins, þeir allir sagðir sam­sekir í voða­verkum sem nú eru framin á Gaza og telj­ist það því hat­urs­orð­ræða. b) næst þegar ein­hver sakar mig um gyð­inga­hatur og/eða stuðn­ing við Hamas mun ég líta á það sem æru­meið­andi aðdrótt­andi ummæli og íhuga að leita réttar míns með það að leið­ars­ljósi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina