Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ungur Íslendingur bjargaði palestínskum krökkum frá grjótkasti – Færður til yfirheyrslu

Ungur Íslendingur bjargaði palestínskum krökkum frá grjótkasti – Færður til yfirheyrslu
Hebron á Vest­ur­bakk­anum

Í mars 2007 var ungur íslenskur aðgerð­ar­sinni færður til yfir­heyrslu í Hebron, eftir að hann forð­aði palest­ínskum skólakrökkum frá grjót­kasti ísra­el­skra jafn­aldra sinna.

Haukur Hilm­ars­son, einn mesti hug­sjóna­maður Íslands­sög­unnar að margra mati, var færður til yfir­heyrslu á lög­reglu­stöð í Hebron, Vest­ur­bakk­anum í Palest­ínu í mars árið 2007. Hafði hann verið með danskri vin­konu sinni á gangi í palest­íngu borg­inni Hebron, og séð hvar ísra­elskir ung­lingar grýttu palest­ínsa jafn­aldra sína sem voru á leið í skól­ann. Kom þá að ísra­elsk kona, en í Hebron býr fjöl­margt land­töku­fólk, og veitt­ist að Hauki og vin­konu hans. Kallaði hún þau meðal ann­ars Hitler og nas­ista. Veg­far­endum leist ekki á blik­una og köll­uðu á lög­regl­una. Voru þau látin dúsa fyrir utan lög­reglu­stöð­ina í vetr­ar­kuld­anum í þrjár klukku­stundir. Haukur hafði tekið allt saman upp á mynd­band­stöku­vél en þrátt fyrir það var þeim ekki sleppt fyrr en sex, sjö klukku­stundum síðar.

DV fjall­aði um málið á sínum tíma:

Haukur Hilm­ars­son beið í kuld­anum í þrjá tíma á palest­ínskri lög­reglu­stöð:

Íslend­ingur til yfir­heyrslu á Vest­ur­bakk­anum

Haukur Hilm­ars­son, tví­tugur Hafn­firð­ingur, lenti í lög­reglu­máli í Palest­ínu á sunnu­dags­kvöld þegar dönsk vin­kona hans skarst í leik­inn þar sem ísra­elskir ung­lingar grýttu palest­ínska jafn­aldra sína. Ísraelsk kona, sem bar að þegar þetta gerð­ist, veitt­ist því næst að Hauki og Önnu Maríu, vin­konu hans, með böl­bænum og reiði­lestri á hebr­esku. Veg­far­endum hætti að lít­ast á blik­una og kvöddu lög­reglu til. Haukur og Anna María sam­þykktu af fúsum og frjálsum vilja að fylgja lög­reglu­mönn­unum á stöð­ina til að gefa skýrslu en máttu bíða úti í vetr­ar­kuld­anum í þrjá tíma áður en þau komust að hjá lög­reglu­mönn­unum.

Kallaði þau nasista

Konan brást hin reið­asta við því að Norð­ur­landa­bú­arnir skyldu skipta sér af. „Hún sak­aði Önnu Maríu um að ráð­ast á sig,“ segir Haukur. „Við þurftum samt að hringja á ein­hvern sem gæti túlkað fyrir okkur og fengum þá nasa­sjón af ljótri ræðu.“ Meðal fúk­yrð­anna sem hún jós yfir Hauk og Önnu Maríu var „nas­istar, Hitler og hypjið ykkur aftur til Auschwitz.“ Haukur hélt áfram að mynda atgang­inn á mynd­bands­upp­töku­vél sem hann á og var hann beð­inn um að skila upp­tök­unni inn til lög­regl­unnar lög­regl­unnar sem sönn­un­ar­gagni.

Grjótkast algengt í Hebron

Sveinn Rúnar Hauksson, for­maður félags­ins Ísland-Palest­ína kann­ast vel við bæinn Hebron og segir grjót­kast þar algengt. „Land­töku­byggð­irnar í Hebron eru sér­stak­lega ill­kynj­aðar. Þetta er svo sem ekki stór hópur en þetta eru sér­stak­lega börn land­töku­mann­anna sem kasta grjóti í palest­ínsku börnin og í útlend­inga. Það hafa líka orðið slys út af þessu, það var til dæmis einn Skand­in­avi sem lenti í grjót­kasti nýlega. Sá fékk hnull­ung í haus­inn og var fluttur á sjúkra­hús. Þess vegna hafa veg­far­end­urnir lík­lega kallað á lög­regl­una.“ Sveinn Rúnar var í Hebron síð­ast í jan­úar og segir ástandið þar sífellt fara versn­andi. „Herinn horfir yfir­leitt bara á. Hjálp­ar­stofn­anir hafa meðal ann­ars það verk­efni að fylgja palest­ínskum börnum í skól­ann, þar sem þau þora sum ekki að labba ein. Mjög margir Palest­ínu­menn hafa séð sér þann kost vænstan að flytja burt.“

Blessuð sé minn­ing Hauks Hilm­ars­sonar

Hér má svo sjá við­tal við Hauk hjá Stöð 2, eftir að hann kom heim úr svað­il­för­inni í Palest­ínu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina