Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sigga var aðeins sex ára þegar pabbi hennar dó: „Það var rosalegt högg fyrir fjölskylduna“

Sigga var aðeins sex ára þegar pabbi hennar dó: „Það var rosalegt högg fyrir fjölskylduna“
Sigríður Guðna­dóttir Mynd / Kazuma Takigawa

Sigríður Guðna­dóttir, Sigga Guðna, sótti frá unga aldri sam­komur í Fíla­delfíu og síðar Kross­inum og segir að bænin sé það sterkasta í lífi sínu. Skóla­fé­lagar lögðu hana í ein­elti þar sem hún gekk í pilsum eins og aðrar stúlkur og konur sem til­heyrðu Kross­inum. Tón­listin er henni í blóð borin og með lag­inu Freedom með Jet Black Joe sem hún söng sló lagið og hún í gegn og það tók á að vera þekkt og kjafta­sög­urnar grass­er­uðu. Í dag er Sigga mikil fjöl­skyldu­kona sem vinnur sem fast­eigna­sali og nýtur þess að syngja. Hún hefur fundið sína rödd í fleiri en einum skiln­ingi.

Sigríður Guðna­dóttir, Sigga Guðna, fædd­ist og ólst upp í Hafn­ar­firði og er yngst átta systk­ina og þar af er ein hálf­systir sem er elst.

„Ég átti rosa­lega góða æsku og á bara góðar minn­ingar frá því ég ólst upp. Pabbi og mamma voru með sæl­gæt­is­gerð sem hét Valsa og var mamma heima­vinn­andi. Hún var lærður kenn­ari en fór að hugsa um börn og bú. Pabbi dó þegar ég var sex ára. Það var rosa­legt högg fyrir fjöl­skyld­una. Hann var mik­ill pabbi og hélt vel utan um allt og allt í einu þurfti mamma að fara að vinna úti, en hún seldi verk­smiðj­una, og þurfti hún oft­ast að vera í fleiri en einu starfi til þesss að halda þessu öllu gang­andi enda með fimm börn heima þegar pabbi dó. Mamma var dug­leg­asta, öfl­ugastsa og kær­leik­ríkasta kona sem ég hef nokkurn tíma hitt á minni ævi og stóð hún sig eins og hetja við að halda öllu gang­andi. Aldrei skorti okkur neitt.“

Sigga er spurð um sorg­ina. Sorg lít­illar stelpu.

„Ég held ég hafi ekki gert mér grein fyrir sorg­inni þá en ég gerði mér grein fyrir henni seinna í líf­inu. Ég vann aldrei úr því þegar pabbi dó og fór kannski að treysta á fólk sem var ekki treystandi. Karlí­myndir í mínu lífi brugð­ust mér af því að ég var að reyna að leita að þess­ari pabbaí­mynd, öryggi, þegar ég var krakki. Og ég finn að ég er ennþá svo­lítið að díla við það; það er ekk­ert langt síðan ég fór í raun­inni að díla við þessa sorg. Það eru kannski 10 – 12 ár síðan og ég finn það alveg að þetta er mesta sjokk sem barn getur orðið fyrir. Ég var mikil pabbastelpa og allt í einu hvarf ein mik­il­væg­asta mann­eskja úr lífi mínu og maður situr eftir með tóm­leik­ann. Til að vinna í svona sorg þarf að feisa það og í mínu til­felli hef ég verið að vinna í því með Guðs hjálp og góðra manna. Það hefur hjálpað mér að vera trúuð.“

Hún seg­ist hafa upp­lifað höfn­un­ar­til­finn­ingu í gegnum tíð­ina og tengir það við föð­ur­miss­inn. „Ég held ég hafi upp­lifað alls konar höfn­un­ar­til­fin­ingar í gegnum lífið á svo­lítið sterk­ari hátt heldur en þeir sem hafa ekki upp­lifað missi svona ungir.“

Hún fór ekki í jarð­ar­för­ina.

„Ég var ofboðs­lega mikil skotta og það gustaði af mér þannig að mér var ekki treyst til þess að fara í jarð­ar­för­ina. Ég var mjög aktívt barn.“

Hún tal­aði um að karlí­myndir í líf­inu hafi brugð­ist sér.

„Barn var að leita að við­ur­kenn­ingu hjá karlí­myndum. Þá varð maður upp­á­þrengj­andi. Það er eng­inn sem getur fyllt skarð pabba manns sem deyr. Ég leit­aði eftir öryggi hjá körlum í fjöl­skyld­unni sem þeir gátu ekki veitt mér. Það voru allir ynd­is­legir við mig en það var ekk­ert skarð fyllt, enda gat það eng­inn. Litla stelpan var bara að öskra á athygli. Ég held ég hafi oft farið yfir strikið með athygl­is­sýk­ina á þessum tíma. Ég er með athygl­is­sýki í dag en er meira „down to earth“,“ segir Sigga og hlær.

Hana fór snemma að dreyma um að verða söng­kona eða fjöl­miðla­kona.

„Ég held að hluti af því að vilja verða söng­kona teng­ist föð­ur­miss­inum af því að mér fannst gott að fá athygl­ina og að fólk væri að hrósa mér. „Vá hvað þú syngur vel.“ Maður var alltaf að leita eftir við­ur­kenn­ingu. Ég hef oft hugsað um hvort þessi þörf fyrir athygli sé hluti af því.“

Hægt er að lesa allt við­talið með því að smella hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina