Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Jakob Frímann rændur fornfrægri bifreið: „Hér kom maður mjög óhuggulegur, ógnandi og reiður“

Jakob Frímann rændur fornfrægri bifreið: „Hér kom maður mjög óhuggulegur, ógnandi og reiður“
Jakob Frímann Magn­ús­son. Mynd: Róbert Reynisson

„Ég lenti per­sónu­lega í því fyrir nokkrum miss­erum að forn­bíl var rænt sem var mér og fjöl­skyld­unni mjög kær og hann færður í úthverfi og allt hirt úr honum,“ sagði Jakob Frímann Magn­ús­son, þing­maður Flokks fólks­ins, í  umræðu á Alþingi um vopna­burð lög­reglu. Í ræðu sinni fjall­aði hann um sárs­auka­fulla reynslu sína af sam­skiptum við glæpaklíku á Íslandi og hræðslu lög­regl­unnar við að taka á málum. Bíl afa hans heit­ins, gamla kaup­fé­lags­stjóra­bílnum A 4 af gerð­inni Chevrolet Malibu 1979 var stolið. Bíllinn fannst og var bif­reið frá Vöku send til að sækja hann.  Þegar Jakob Frímann kom til að líta á bíl­inn tók á móti honum dauð­hræddur starfs­maður Vöku og var feg­inn að hitta hann.

„Hér kom maður mjög óhuggu­legur, ógn­andi og reiður í morgun yfir því að við hefðum fjar­lægt bíl­inn og hérna er nafnið hans. Ég vissi að þú ættir þennan bíl. Hér er nafn og kennitala en þú ferð ekki að tala við hann sjálfur, þetta er hættu­legur maður,“ hefur Jakob eft­tir starfs­mann­inum.

Jakob Frímann leit­aði í fram­hald­inu til lög­regl­unnar þar sem sami ótti og hjá starfs­manni Vöku mætti honum. Lög­reglu­mað­ur­inn ráð­lagði Jakobi að tala ekki sjálfur við mann­inn sem værti hættu­legur án þess að það væri skýrt nákvæm­lega hvað væri að baki. Lög­reglan sjálf gat ekk­ert gert. Þol­and­inn varð að leita til lög­manns.

„Enginn lög­maður vildi taka þetta mál að sér,“ segir Jakob Frímann í þing­ræð­unni.

Hann uypp­lýsti svo að þarna voru íslenskir krimmar á ferð og hvers kyns ofbeldi er að festa rætur í sam­fé­lag­inu.

„Hér eru komnar mafíur ýmissa landa, búnar að festa rætur í glæp­a­starf­semi af ýmsum toga. Við höfum því miður leyft þessu að ger­ast og við­gang­ast. Ég er ekki sér­fræð­ingur í teg­und vopna eða hvernig bregð­ast skuli við en með ein­hverjum mark­vissum og árang­urs­ríkum hætti þurfum við að berj­ast á móti þessu og bregð­ast við þessu hraðar og harðar en við höfum gert til þessa. Ég skora á dóms­mála­ráð­herra að hika ekki við að losa okkur undan þessu ástandi vegna þess að það er til­tölu­lega nýtil­komið og við þurfum að grípa til skjótra aðgerða gegn því,“ sagði Jakob Frímann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina