Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Hæðist að viðbrögðum Bjarna Ben: „Þessi þáttur kallar ekki eftir svona froðufellandi árás“

Hæðist að viðbrögðum Bjarna Ben: „Þessi þáttur kallar ekki eftir svona froðufellandi árás“
Athugið, myndin er sam­sett. Mynd­vinnsla: Lára Garð­ars­dóttir

Atli Þór Fanndal hneiklasta á „van­still­ingu“ Bjarna Bene­dikts­sonar í við­brögðum sínum við umfjöllun Kveiks um íslensku krón­una.

Kveikur fjall­aði um stöðu íslensku krón­unnar í gær en þar kom fram að fjöldi stór­fyr­ir­tækja á land­inu not­ist við aðra gjald­miðla á meðan heim­ilin í land­inu neyð­ist til að nota óstöðuga krón­una. Bjarni Bene­dikts­son utan­rík­is­ráð­herra brást illa við og sagði þetta árás Kveiks á íslensku krón­una. Atli Þór Fanndal, fram­kvæmd­ar­stjóri Íslands­deildar Transparency International, skrif­aði Facebook-færslu þar sem hann hneiksl­ast á við­brögðum Bjarna Bene­dikts­sonar. „Jesús minn, því­lík van­still­ing í ráð­herra,“ skrifar hann og heldur áfram: „Það er bara næstum eins og Bjarni höndli ekki annað en umfjöllun sem gengur í takt við hann. Þessi þáttur kallar ekki eftir svona froðu­fellandi árás. Þarna var nú bara tals­vert meira sam­hengi en t.d. flestu sem Bjarni skrifar og segir. Þetta tal um áróður gegn krón­unni er bara kjána­læti.“

Segir Atli Þór að Bjarni viti hvað hann sé að gera. „Bjarni veit alveg hvað hann er að gera. Þetta hefur alltaf verið hans taktík. Tryll­ings­leg gagn­rýni á alla sem ganga ekki í takt til kæl­ingar. Sér­stak­lega fjöl­miðla, hann á jú tals­verða sögu þegar kemur að því að grafa undan fjöl­miðlum.“ Í næstu orðum sínum hæð­ist hann að ráð­herr­anum. „Eitt er þó satt í máli Bjarna og það er að kannski er krónan gagn­rýnd heldur mikið og það vantar svo­lítið sam­hengi eins og að rík­is­stjórnin ræður ekki við neitt og ætlar ekk­ert að bregð­ast við. Þessi sama rík­is­stjórn hefur til dæmis ekki fjár­magnað skatta­lækk­anir upp á 54 millj­arða á ári og skellt í alls­konar þenslu­kvetj­andi aðgerðir eins og að nið­ur­greiða raf­magns­bíla fyrir ríkt fólk og bíla­leigur, end­ur­greiða vsk á fram­kvæmdum á tíma þar sem stór­kost­legur skortur er á hús­næði. Já og svo réðu þau auð­vitað seðla­banka­stjóra sem allir gátu sagt sér að ekki myndi ráða við starfið. Þannig að ég tek undir með ráð­herra það vantar kannski smá sam­hengi sem er auð­vitað rík­is­stjórn sem segir bara end­ur­tekið og opin­ber­lega að þau beri ekki ábyrgð á verð­bólgu.“

Að lokum seg­ist Atli Þór vera með lausn sem gæti fallið í kramið hjá Bjarna. „Ég er því með lausn sem Bjarna gæti líkað. Legg til að Kveikur íhugi að gera fram­halds­þátt um hvernig rík­is­stjórnin ýkjir alla veik­leika krón­unnar með dóg­ma­tík og incompetance. Þar væri nú tæki­færi til að koma með krón­unni alls­konar til varnar enda barnapían hrein­lega ekki á staðnum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina