Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Reykjavíkurborg sökuð um kaup á svartri vinnu fyrir tugi milljóna: „Aldrei greitt með peningum“

Reykjavíkurborg sökuð um kaup á svartri vinnu fyrir tugi milljóna: „Aldrei greitt með peningum“

Reykja­vík­ur­borg hefur keypt „svarta“ þjón­ustu af tón­list­ar­mönnum á und­an­förnum ára­tug fyrir tugi millj­óna sam­kvæmt heim­ild­ar­mönnum Mannlífs sem hafa starfað í félags­mið­stöðvum og skólum borg­ar­innar á und­an­förnum ára­tug. Helgi Grímsson, sviðs­stjóri Skóla- og frí­stunda­sviðs Reykja­vík­ur­borgar, vísar þessu á bug.

Í félags­mið­stöðvum og skólum um allt land eru reglu­lega haldin böll, árs­há­tíðir og ýmiss konar skemmt­anir. Á þessar skemmt­anir eru fengnir margir af þekk­ustu og dýr­ustu tón­list­ar­mönnum Íslands. Heim­ild­ar­menn sem Mannlíf ræddi við, sem hafa starfað í félags­mið­stöðvum og skólum í Reykja­vík und­an­farin ára­tug, segja það heyra til und­an­tekn­inga að ekki sé borgað með seðlum og að gerður sé reikn­ingur fyrir við­skipt­unum. Þeir hafi sjálfir talið seðla og afhent tón­list­ar­mönn­unum þá í umslögum.

Helgi Grímsson, sviðs­stjóri Skóla- og frí­stunda­sviðs Reykja­vík­ur­borgar, segir í svari til Mannlífs að þetta sé rangt.

„Engar svartar greiðslur eru á vegum borg­ar­innar. Hart gengið eftir lög­mætum gögnum/reikn­ingum. Allir reikn­ingar sem ber­ast borg­inni fara í gegnum tvö­falt sam­þykkt­ar­ferli. Greiðslu­frestur er 30 dagar almennt og greitt í gegnum banka­línu. Allt sem borgin greiðir fer í gegnum greiðslu- og sam­þykkt­ar­kerfi bók­halds og er því rekj­an­legt. Aldrei greitt með pen­ingum. Allt á vegum borg­ar­innar fer þessa leið. Launa-/verk­taka­miðar eru sendir út fyrir öllu slíku í jan. ár hvert.“. Helgi segir að svar sitt bygg­ist á fyr­ir­spurnum til grunn­skóla­stjóra, fram­kvæmda­stjóra frí­stunda­mið­stöðva, fjár­mála­stjóra skóla- og frí­stunda­sviðs, borg­ar­bók­ara og borg­ar­gjald­kera um málið.

„For­eldra­fé­lög grunn­skóla hafa eigin fjár­hag og kenni­tölu. Í nokkrum til­vikum hafa nem­enda­fé­lög eigin fjár­hag og kenni­tölu. Hafi tón­list­ar­menn tekið við greiðslu frá nem­enda­fé­lögum eða for­eldra­fé­lögum með eigin kenni­tölu, þau eru ekki fram­tals- eða skatt­skyld, það er þá tón­list­ar­manns að telja þær tekjur fram hjá sér og skila sköttum af þeim. Það er því athafn­leysi tón­list­ar­manna sem í slíkum til­vikum gerir tón­list­ar­greiðslur „svartar“ og varðar ekki Reykja­vík­ur­borg,“ sagði Helgi að lokum.

Heim­ild­ar­menn Mannlífs segja að nem­endur standi fyrir margs konar fjár­öfl­unum undir umsjón og hvatn­ingu starfs­manna félags­mið­stöðva og skóla á hverju skóla­ári til að eiga efni á því að fá þekkta tón­list­ar­menn til að spila á böllum. Meiri­hluti vinnu sem fer í skipu­lagn­ingu og fram­kvæmd fjár­afl­anna sé í höndum starfs­manna borg­ar­innar. Yfir­leitt sé ein­ungis hægt að greiða fyrir hinar ýmsu fjár­öfl­un­ar­leiðir með seðlum eða klinki og gildi slíkt hið sama um miða á böll. Þó hafi í ein­hverjum til­fellum á und­an­förnum árum verið hægt að borga með Aur í nokkrum félags­mið­stöðvum. Þá hafi starfs­menn borg­ar­innar yfir­um­sjón með nem­enda­fé­lögum í skólum Reykja­víkur. Hóflegt mat heim­ild­ar­manna Mannlífs er að hver og ein félags­mið­stöð í Reykja­vík sé að borga 200 þús­und krónur að með­al­tali fyrir tón­list­ar­menn á hverju ári. Samkvæmt heima­síðu Reykja­vík­ur­borgar eru starf­andi 25 félags­mið­stöðvar í dag. Því má áætla að kringum fimm millj­ónir séu greiddar svart af hálfu Reykja­vík­ur­borgar á ári hverju til tón­list­ar­manna á vegum félags­mið­stöðva.

Mannlíf hafði sam­band við tón­list­ar­menn sem eru vin­sælir hjá ungu fólki í dag til að spyrj­ast fyrir hvað þeir myndu taka fyrir að spila á balli í hálf­tíma. Verðin sem Mannlíf fékk upp­gefin voru allt frá 300 þús­und krónum upp í 600 þús­und krónur. Tón­list­ar­mað­ur­inn sem nefndi 600 þús­und sagði þó að hann væri lík­lega til að taka lægri upp­hæð fyrir ball í félags­mið­stöð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina