Bragi Páll Sigurðarsson þýddi ljóð eftir palestíska skáldið Refaat Alareer, sem var myrtur ásamt allri fjölskyldu sinni í loftárásum ísraelska hersins í gær. Birti Bragi ljóðið á Facebook í dag.
Refaat Alareer var ljóðskáld, rithöfundur, aktivisti og prófessor frá Gaza, Palestínu en hann var drepinn ásamt allri fjölskyldu sinni, eiginkonu og sex börnum, í loftárásum ísaelska hersins í gær. Alareer fæddist 23. september árið 1979 í Gaza-borg og var því 44 ára er hann var drepinn. Kenndi hann bókmenntir og ritlist við Íslamska háskólans á Gaza.
Rithöfundurinn og ljóðskáldið Bragi Páll Sigurðarson birti í dag þýðingu sína á ljóði eftir Alareer. Ljóðið heitir Ef ég verð að deyja. Við færsluna skrifað rithöfundurinn: „Palestínska ljóðskáldið Refaat Alareer var myrtur, ásamt allri fjölskyldu sinni, af Ísraelska hernum í gær. Hér er þýðing mín á ljóðinu hans If I must die.“
Hér má lesa þýðinguna:
—Ef ég verð að deyjaEf ég verð að deyjaverður þú að lifatil að segja söguna mínatil að selja hlutina mínatil að kaupa efnisbútog tvinna(hafðu hann hvítan með löngum hala)svo að barn, einhvers staðar í Gazaþar sem það horfir í auga himinsinsbíðandi eftir pabba sínum sem hvarf í eldhnetti –og kvaddi ekki neinnekki einu sinni eigið holdekki einu sinni sjálfan sig –sjái flugdrekann, flugdrekann minn sem þú bjóst til, fljúgandi fyrir ofan sigog haldi í smá stund að þar fari engillsem komi með ástef ég verð að deyjaláttu það færa vonláttu það verða sögu































Athugasemdir