Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Bergþóra um ríkisstjórnina og Gaza: „Sagan mun dæma viðbrögð ykkar, hugleysi og linkuhátt“

Bergþóra um ríkisstjórnina og Gaza: „Sagan mun dæma viðbrögð ykkar, hugleysi og linkuhátt“
Yfir 8.000 börn hafa verið drepin á Gaza frá 7. októ­ber.

Bergþóra Snæ­björns­dóttir segir yfir­völd ljúga því að landa­mæri séu lokuð fólki með palest­ínsk vega­fréf og vill fá þann hóp sem er með sam­þykkta fjöl­skyldu­sam­ein­ingur, til Íslands.

Rit­höf­und­ur­inn Bergþóra Snæ­björns­dóttir skrif­aði Facebook-færslu þar sem hún seg­ist hafa keypt jóla­gjafir fyrir þrjú lítil börn frá Palest­ínu en þau fái ekki pakk­ana því þau fá ekki enn að koma til lands­ins, þrátt fyrir að hafa fengið sam­þykki fyrir því að sam­ein­ast föður sínum sem býr á Íslandi.

„Við keyptum pakka fyrir þrjú lítil börn sem fá ekki pakk­ana sína af því að þau eru á Ga sa þrátt fyrir að vera komin með vernd á Íslandi og þrátt fyrir að eiga föður sem bíður þeirra hér. Þau til­heyra um 100-150 manna hóp palest­ínu­búa sem eru komin með sam­þykkta fjöl­skyldu­sam­ein­ingu. Lítil börn sem skilja ekki hvers vegna þau eru ekki sótt?“

Segir Bergþóra að það sé ekki satt að landa­mæri séu lokum þeim sem hafa palest­ínsk vega­bréf. „Ráðamenn segja landa­mærin lokuð fólki með palest­ínsk vega­bréf en það er ekki satt. Daglega eru 160-400 manns með palest­ínsk vega­bréf en visa til ann­arra landa sem fá að fara út af svæð­inu. Listinn er birtur á sam­fé­lags­miðlum Rafah landamær­anna. Þið getið skoðað þetta sjálf. Fólk með visa til Mexíkó, UK, USA, Belgíu, Rúmeníu, Venezuela (!), Tyrk­lands, Hollands, Ástralíu, Serbíu og fleiri, fleiri landa. Við landa­mærin eru full­trúar land­anna með gögn. Ísland hefur ekki einu sinni talað við Egypta­land. Hvað þá að senda full­trúa­nefnd út. Segja að hin Norð­ur­löndin vilji ekki setja þetta í for­gang – á þar við að sitja?“

Hvetur rit­höf­und­ur­inn ráða­menn til að gera betur. „Gerið betur. Sendið full­trúa út með tíma­bundin vega­bréf. Talið við Egypta­land, Katar. Borgið það sem þarf að borga. Gerið það sem þarf að gera.“ Og bætir við: „Væru þetta börn fædd á Íslandi væru þau komin heim. Það er stað­reynd. Aðstand­endur þeirra fá stutt­ara­leg og þurr svör, ef nokkur. Þeim mætir yfir­leitt bara lít­ils­virð­ing og þögnin. Þarna er ras­ism­inn. Væri mér mætt eins ef börnin mín væru þarna úti? Fjöl­miðlar – sendið fólk þarna út að landa­mær­unum, skoðið aðstæður, krefjið íslensk stjórn­völd um svör. (Takk þið sem eruð að reyna, þið vitið hver þið eruð).“

Lokaorð Bergþóru eru sterk en þar segir hún að sagan muni dæma við­brögð rík­is­stjórn­ar­innar. „

Svo eru það þið sem sitjið í rík­is­stjórn og getið gert eitt­hvað – en gerið ekki. Sagan mun dæma við­brögð ykkar, hug­leysi og linku­hátt. Þið sem vogið ykkur að segja Pal est ínu­búum hvað þeim sé fyrir bestu? Nei, við­skipta­bann er þeim ekki fyrir bestu. Þau vita það bara ekki sjálf, sjáið til. Vopnahlé var þeim ekki fyrir bestu. Svo breytt­ist það og í kjöl­farið birt­ist ein aum ályktun. Er núver­andi staða börnum á Ga s a fyrir bestu?Það er kom­inn tími til að þið sem getið gert eitt­hvað farið að hlusta og tala af heil­indum og síð­ast en ekki síst – fram­kvæma!Gerið betur!

Gerið eitt­hvað“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina