Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Jóhann Hlíðar lýsir hrikalegri reynslu af svartklæddum manni: „Hann klæddi mig úr nærbuxunum“

Jóhann Hlíðar lýsir hrikalegri reynslu af svartklæddum manni: „Hann klæddi mig úr nærbuxunum“

„ÞESSI SÁRA ÆSKUMINNING (SEM VIÐ EIGUM ÞVÍ MIÐUR SVO MÖRG) Ég er sex ára. Ég er á fót­bolta­æf­ingu í Þrótti. Við æfðum í gamla Háloga­landi Og eins og alltaf þá var ég síð­astur í sturtu og síð­astur að klæða mig í fötin.“ Þannig hefst frá­sögn Jóhanns Hlíðars Harð­ar­sonar, frétta­manns en hann opnar sig um afar sára æskuminn­ingu í nýrri Facebook-færslu.

Fjöl­miðla­mað­ur­inn Jóhann Hlíðar Harð­ar­son skrif­aði gríð­ar­lega sterka en sára frá­sögn niður og birti á Facebook en þar segir hann frá minn­ingu frá því hann var aðeins sex ára gam­all.

Jóhann Hlíðar

Í færsl­unni segir hann frá því er hann var sex ára gam­all í íþrótta­klefa ásamt vini sínum Svenna. Inn kom maður í svörtum jakka­fötum með bindi og biður Svenna að fara út svo hann geti rætt við Jóhann. Svenni hlýddi og beið frammi. Á meðan mis­not­aði svart­klæddi mað­ur­inn Jóhann, allt þar til vinur hans kall­aði til hans. Fjórum árum síðar end­ur­tók níð­ing­ur­inn glæp­inn en á öðrum dreng í það skiptið, í sund­klefa.

Jóhann Hlíðar seg­ist stíga fram núna með frá­sögn­ina vegna þess að honum finnst sem fólk trúi ekki alltaf fólki og telur það vera skyldu sína að segja frá „ofbeldi skrímsl­anna í okkar sam­fé­lagi.“

Færsluna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan en við­kvæmir eru varaðir við lestr­inum.

„ÞESSI SÁRA ÆSKUMINNING (SEM VIÐ EIGUM ÞVÍ MIÐUR SVO MÖRG) Ég er sex ára. Ég er á fót­bolta­æf­ingu í Þrótti. Við æfðum í gamla Háloga­landi Og eins og alltaf þá var ég síð­astur í sturtu og síð­astur að klæða mig í fötin. Ég þurfti alltaf að tala svo mikið, spjalla við strák­ana. Svenni, besti vinur minn, beið samt alltaf eftir mér. Svo voru allir farnir. Nema Svenni, sem bara beið, full­klæddur og þol­in­móður, á meðan ég þus­aði og rétt kom­inn í nær­bux­urnar. Þá kom hann inn. Full­orð­inn maður. Í svörtum jakka­fötum, hvítri skyrtu og með bindi. „Eruð þið einir hérna strákar?“ „Já, nei, hús­vörð­ur­inn er hérna ein­hvers staðar.“ „Heyrðu vinur,“ sagði mað­ur­inn í jakka­föt­unum við Svenna, „farðu aðeins út fyrir, ég ætla að spjalla við vin þinn.“ Og Svenni hlýddi. Í hönd fóru 100 ár. Lengstu augna­blik ævi minnar. „Leyfðu mér að hjálpa þér að klæða þig.“ Svo tók mað­ur­inn í svörtu jakka­föt­unum til við að klæða mig. Hann þreif­aði á typp­inu á mér og hann þreif­aði á rass­inum á mér. Hann stakk fingrinum upp í rass­inn mér. Hann girti mig upp og hann girti mig niður. Hann klæddi mig úr nær­bux­unum og hann klæddi mig í nær­bux­urnar. Hann strauk mér alls staðar. Ég missti alla til­finn­ingu í lík­am­anum. Hann var alls staðar. Ég vissi að ég var að deyja. Og það tók svo langan tíma. Og það var svo vond lykt af honum. Hættu. Hættu. Hættu. En ég sagði ekki orð. Ég var bara sex ára. 100 árum síðar kom Svenni í dyra­gætt­ina: „Jói, ertu ekki að koma?“ Það kom fát á svart­klædda mann­inn í jakka­föt­unum, hann stóð upp frá því sem hann var að gera litlu barni og þusti út. Ég klæddi mig í þögn, og við gengum út, Svenni besti vinur minn og ég. Fyrir utan sat maður í hvítum Volkswagen í svörtum jakka­fötum og horfði á okkur. Það er fárán­legt að muna eftir þessu, en sumu man barn bara eftir. FJÓRUM ÁRUM SÍÐAR Ég var á sund­nám­skeiði í Aust­ur­bæj­ar­skóla, hjá Jóni Inga, sem margir af minni kyn­slóð muna eftir. Með góðum vini. Eftir nám­skeiðið fórum við niður í Sundhöll, bara til að hanga. Svona eins og 10 ára strákar gera. Hvítur Volkswagen ekur upp að Sund­höll­inni. 4 ár verða að 100 árum. Hann stígur út. Og það er svo skrýtið, ég þekkti hann um leið. Hann labbar að okkur. „Eruð þið einir?“ „Já.“ „Komdu aðeins með mér,“ segir hann við vin minn. Vinur minn hlýðir og eltir hann inn í bún­ings­klef­ann. Ég ákveð að elta. „Nei, þú skalt bíða frammi, vinur.“ Og ég hlýði. Eins og Svenni um árið. Og ég varð svartur í hug­anum. Í 100 ár. Við þögðum alla leið­ina heim í strætó. Ekki eitt orð. Ekki eitt orð í mörg ár. Ekki eitt orð. Svo fórum við drekka brenni­vín á ung­lings­ár­unum. Eitt kvöldið segi ég við vin minn: „Manstu þegar við vorum á sund­nám­skeiði og mað­ur­inn fór með þig inn í bún­ings­klef­ann í Sund­höll­inni?“ „EF ÞÚ MINNIST Á ÞETTA EINU SINNI ENN ÞÁ DREP ÉG ÞIG!“ Skila­boðin voru skýr og ég ræddi þetta aldrei aftur. Svo liðu árin, ég ræddi atvikið í Háloga­landi einu sinni við Svenna, besta vin minn, og hann sagð­ist muna þetta eins og gerst hefði í gær. En þar við sat. Þegar ég var 22ja ára kynnt­ist ég konu sem síðar varð móðir 2ja eldri barna minna. Eitt það fyrsta sem ég gerði var að segja henni frá þessu. Það fólst í því gríð­ar­leg frelsun, án þess þó að mér fynd­ist þetta hafa plagað líf mitt gríð­ar­lega, eða ég veit það ekki. Af hverju segi ég frá þessu núna? Ég hef aldrei sett neitt niður á pappír um þetta áður og ég finn núna hvað það er sárs­auka­fullt, ef þetta væri blað en ekki tölvu­skjár, þá væri það renn­andi blautt í tárum sem ég hef þurrkað úr and­lit­inu á mér á meðan ég hef hamrað þetta inn. En það er svo oft sem mér finnst að við trúum ekki fólki og það eru svo margir af minni kyn­slóð og af svo mörgum kyn­slóðum sem er ekki trúað og það hefur verið níðst á svo mörgum að það er bein­línis skylda mín, og allra þeirra sem hafa mátt þola pínslir og ofbeldi skrímsl­anna í okkar sam­fé­lagi að segja frá því sem við þurftum að þola og upp­lifa og bera harm okkar í hljóði. Og ég fór alls ekki verst út úr því, en við eigum að segja frá. Mér finnst verst að ég skyldi ekki hafa haft hug­rekki til að bera til að segja frá því fyrr. Mér finnst ósegj­an­lega sárt að segja frá þessu en ég fer inn í nýtt ár með því að rífa plást­ur­inn af þessu sári.“

Jóhann Hlíðar segir í sam­tali við Mannlíf að hann ætli ekki að ræða málið frekar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina