Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

BakaBaka sakað um blekkingar – Gestir þurfa borga aukalega fyrir að borða inni

BakaBaka sakað um blekkingar – Gestir þurfa borga aukalega fyrir að borða inni
Ágúst er ekki sam­mála við­skipta­vinum um að verð­merk­ing­arnar hjá honum séu vill­andi – Myndin er sam­sett

Það eru fáir mat­sölu­staðir sem hafa fengið jafn mikið lof und­an­farin ár en BakaBaka. Stað­ur­inn er bak­arí og kaffi­hús að morgni til en breyt­ist í pít­sa­stað þegar líður á dag­inn og þykir mat­ur­inn vera góð­gæti. Ágúst Fannar Ein­þórs­son rekur stað­inn ásamt því að vera einn eig­anda en Ágúst hefur í gegnum árin verið einn fremsti bak­ari lands­ins og opn­aði meðal ann­ars Brauð og co. árið 2016 og hlaut mikið lof fyrir.

Þrátt fyrir góðan mat eru ekki allir sáttir en við­skipta­vinir stað­ar­ins höfðu sam­band við Mannlíf til að benda á vill­andi verð­merk­ingar stað­ar­ins. Í glugga stað­ar­ins eru góð­gæti á borð við vín­ar­brauð aug­lýst til sölu á 790 krónur en ákveði við­skipta­vinir að borða vín­ar­brauðið inni þarf að borga 400 krónur auka­lega fyrir vín­ar­brauðið. Samkvæmt við­skipta­vin­unum gildir þetta um hvern hlut sem er keyptur og kemur það ekki fram á verð­inu í glugg­anum eða við afgreiðslu­borðið. Kaupi ein­stak­lingur því tvö vín­ar­brauð og þrjú „Cinnamonbun“ þarf við­kom­andi að borga rúmar 2000 krónur auka­lega til að fá borða inni á staðnum. Þegar afgreiðslu­fólkið var spurt út í þetta þá feng­ust þau svör að það væri ítrekað kvartað undan þessu en svona væru regl­urnar.

Dæmi um verð­merk­ingu í glugga. Ekki að er tekið fram að verðið hækki ákveði við­skipta­vinir að borða inni

Mannlíf hafði sam­band við Ágúst Fannar til að spyrj­ast fyrir um málið. „Þetta er mjög skýrt. Þegar við­skipta­vinur sest niður fær hann mat­seð­ill sem öll verð eru alveg skýr. Það er alveg „clear“ að við erum að selja „take away“ á „counternum“ og þjóna til borðs inni á staðnum,“ sagði Ágúst þegar hann var spurður út í hvort þetta væri vill­andi. „Ef við­skipta­vinur kýs að borða inni þá kostar það bara meira. Við­kom­andi er að taka sæti sem kostar og fá þjón­ustu sem kostar líka. Er þá eitt­hvað óeðli­legt við að borga meira?,“ spyr Ágúst á móti. Aðspurður seg­ist Ágúst ekki vita til þess að aðrir staðir á Íslandi hafi álíka verð­lags­reglur og hann sé lítið að spá í því.

Mannlíf sendi fyr­ir­spurn á Neyt­enda­stofu til að spyrj­ast fyrir um þessi tvö mis­mun­andi verð hjá BakaBaka, hvort það væri lög­legt og hvernig ætti þá að merkja það. Í svari Neyt­enda­stofu kemur fram að það sé vissu­lega lög­legt að hafa tvö mis­mun­andi verð en „að því sögðu er krafa um verð­merk­ingar mjög skýr og skal ávallt gefa upp end­an­legt verð. Selj­endur þurfa þess vegna að gæta sér­stak­lega vel að því hvernig verð­merk­ingar er settar fram ef verð er skil­yrt eða ólík verð gilda við ólíkar aðstæður.“

Þá vissi Neyt­enda­stofa ekki um aðra veit­inga­staði sem not­ast við slíkar verð­lags­reglur.

Annað dæmi um verk­merk­ingu í glugga
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina