Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fjármálastjóri ráðinn til Ríkiskaupa án auglýsingar: „Er fremur lítil stofnun“

Fjármálastjóri ráðinn til Ríkiskaupa án auglýsingar: „Er fremur lítil stofnun“
Sara Lind Guð­geirs­dóttir er hætt hjá rík­inu – Mynd: Hringbraut – skjáskot

Hjörvar Steinn Grét­ars­son var ráð­inn í starf fjár­mála­stjóra Rík­is­kaupa án aug­lýs­ingar. Var upp­runa­lega ráð­inn sem sér­fræð­ingur í nýsköpun og við­skipta­þróun.

Skák­meist­ar­inn og lög­fræð­ing­ur­inn Hjörvar Steinn Grét­ars­son sótti um stöðu sér­fræð­ings í nýsköpun og við­skipta­þróun hjá Rík­is­kaupum en starfið var aug­lýst laust til umsóknar í des­em­ber 2022. Hóf hann störf við stofn­un­ina í febr­ú­ar­lok 2023 en nokkru síðar var tekin sú ákvörðun að gera hann að fjár­mála­stjóra Rík­is­kaupa en sú staða var aldrei aug­lýst.

Samkvæmt skrif­legu svari Söru Lindar Guð­bergs­dóttur, tíma­bundið setts for­stjóra Rík­is­kaupa, til Mannlífs, urðu breyt­ingar á starfs­manna­hópi Rík­is­kaupa frá því að starfið var aug­lýst og þar til Hjörvar Steinn kom til starfa. Af þeim sökum þurfti að end­ur­skoða verk­efni inn­a­húss og að mat stjórn­anda hefðu verið þau að bak­grunnur Hjörvars Steins gæti nýst vel í starfi fjár­mála­stjóra. Hann hafi því verið færður til í starfi og sinnir nú 50 pró­sent fjár­mála­stjórnun og 50 pró­sent umbóta- og við­skipta­þró­un­ar­verk­efnum.

Svar Söru Lindar:

„Hjörvar Steinn var ráð­inn til Rík­is­kaupa frá og með 1.5.2023 eftir að hafa sótt um starf sér­fræð­ings í nýsköpun og við­skipta­þróun sem aug­lýst var laust til umsóknar í des­em­ber 2022. Frá því að starfið var aug­lýst og þar til Hjörvar Steinn kom til starfa voru breyt­ingar á starfs­manna­hópnum sem höfðu m.a. í för með sér end­ur­skoðun á verk­efnum inn­an­húss, þar með talið hlut­verki fjár­mála- og rekstr­ar­stjóra. Það var mat stjórn­enda að Hjörvar Steinn byggi yfir þekk­ingu og reynslu sem gæti nýst vel í verk­efnum sem hvíla almennt á fjár­mála­stjóra en auk meist­ara­prófs í lög­fræði er hann með meist­ara­próf í reikn­ings­skilum og skatta­rétti og verð­bréfa­miðlun. Með vísan til 19. gr. laga nr. 70/1996 um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins voru gerðar breyt­ingar á störfum hans og verk­sviði á þann veg að hann sinnir í dag u.þ.b. 50 pró­sent fjár­mála­stjórn og 50 pró­sent umbóta- og við­skipta­þró­un­ar­verk­efnum.“

Aðspurð hvort hún teldi umsvifin hjá Rík­is­kaupum ekki meiri en svo að hún teldi að ekki væri þörf á fjár­mála­stjóra í nema 50 pró­sent starf svar­aði Sara Lind því til að stofn­unin sé frekar lítil stofnun og að 50 pró­sent starfs­hlut­fall fjár­mála­stjóra dugi til.

„Rík­is­kaup eru fremur lítil stofnun og það er mitt mat að vel dugi að vera með fjár­mála­stjóra í 50 pró­sent starfs­hlut­falli en eðli máls­ins sam­kvæmt er einnig bók­ari og launa­full­trúi í vinnu hjá okkur sem spilar á móti við­kom­andi.“ Bætti hún við:

„Við leggjum upp úr því að besta alla ferla og nota sjálf­virkni­væð­ingu í okkar störfum þar sem það er hægt. Auk þess notum við þjón­ustu Fjár­sýsl­unnar.“

Samkvæmt Söru Lind var það þáver­andi for­stjóri Rík­is­kaupa, Björgvin Vík­ings­son, sem ákvað að ráða Hjörvar Stein til Rík­is­kaupa, í lok febr­úar 2023 en samn­ing­ur­inn þó ekki und­ir­rit­aður fyrr en 14. apríl, af henni.

„Ákvörðun um ráðn­ingu var tekin í lok febr­úar 2023 af þáver­andi for­stjóra Rík­is­kaupa, Björg­vini Vík­ings­syni, en ekki var gengið form­lega frá skrif­legum ráðn­ing­ar­samn­ingi milli Hjörvars Steins og stofn­un­ar­innar fyrr en 14. apríl 2023 og er hann und­ir­rit­aður af settum for­stjóra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina