Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Telur líklegt að samstarfsflokkarnir verji Svandísi: „En það er ekki lengur traust í samstarfinu“

Telur líklegt að samstarfsflokkarnir verji Svandísi: „En það er ekki lengur traust í samstarfinu“
Dr. Eiríkur Bergmann

Eiríkur Bergmann Ein­ars­son stjórn­mála­fræð­ingur segir lík­legt að sam­starfs­flokkar Vinstri grænna verji Svandísi Svav­ars­dóttur van­trausti.

Inga Sæland hefur boðað van­traus­s­til­lögu á Svandísi Svav­ars­dóttur mat­væla­ráð­herra eftir að umboðs­maður Alþingis komst að þeirri nið­ur­stöðu að ráð­herr­ann hafi brotið lög er hann setti á tíma­bundið hval­veiði­bann síð­ast­liðið sumar, rétt áður en veiði­tíma­bilið átti að hefj­ast. Mikils titr­ings gætir í Sjálf­stæð­is­flokknum vegna þessa og hafa þing­menn flokks­ins á borð við Jón Gunn­ars­son gagn­rýnt Svandísi harð­lega. Mannlíf heyrði í Eiríki Berg­manni Ein­ars­syni stjórn­mála­fræð­ing og spurði hann út í ástandið á stjórn­ar­heim­il­inu.

„Það er mjög aukin úlfúð í þessu sam­starfi og það eru komið um hálft ár síðan brest­irnir í stjórn­ar­sam­starf­inu fóru að koma í ljós. Og úlfúðin hefur bara magn­ast á þessu rúm­lega hálfa ári. Það er alveg ljóst að flokk­arnir eru smá saman að missa trúna á fram­haldið en það þýðir ekki að rík­is­stjórnin geti ekki hökt út kjör­tíma­bilið. En það er ekki lengur traust í sam­starf­inu sem áður ein­kenndi þessa rík­is­stjórn og mis­klíðin á milli stjórn­ar­flokk­anna á ráð­herra jafn­vel, eru orðin miklu meiri en áður. Það er komin veru­leg þreyta í þetta sam­starf. Það gerir það að verkum að öll svona mál verða rík­is­stjórn­inni mjög erfið. Fyrir ein­hverju síðan hefði stjórn­ar­meiri­hlut­inn ein­fald­lega þjappað sér að baki hverjum þeim ráð­herra sem fengið hefði á sig van­traus­s­til­lögu og það væru í raun engjar refjar með það. Það að það sé slegið svona í og úr meðal þings­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins til dæmis, það er nýtt.“

Aðspurður hvort lík­legt sé að sam­starfs­flokkar Vinstri grænna muni verja Svandísi van­trausti segir Eiríkur að rík­is­stjórn­ar­sam­starf feli í sér það að stjórn­ar­meiri­hlut­inn verji ráð­herra van­trausti. „Í sjálfu sér hefur ekk­ert komið fram sem okkur fram á að þarna hafi orðið breyt­ing á. Þess vegna verður að telj­ast lík­legra en ekki að stjórn­ar­meiri­hlut­inn ein­fald­lega verji ráð­herr­ann van­trausti. En það að komin sé upp ein­hvers­konar efa­semdir um það að sá stuðn­ingur sé öruggur, segir gríð­ar­stóra sögu. Ef staðan er raun­veru­lega orðin þannig að þing­maður eða þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans treysti sér ekki til að segja það skil­yrð­is­laust, að þeir verji alla ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar van­trausti, þá er sú rík­is­stjórn varla á vetur setj­andi.“

Mannlíf spurði Eirík hvort lík­legt sé að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn verji Svandísi van­trausti en heimti að hún skipti um ráð­herra­stól. „Nei, þeir geta það í raun­inni ekki. Hingað til hefur verið litið svo á að þing­flokk­arnir ráði því hver úr þeirra röðum setj­ist á stóla sem við­kom­andi flokkur hefur til ráð­stöf­unnar. Og það er fáheyrt að þing­flokkur eins flokks sé að skipta sér að ráð­herra­vali hjá öðrum flokkum.“

En telur Eiríkur að það sé þá eng­inn þrýst­ingur á Vinstri græna á að skipta Svandísi út? „Það er eflaust ein­hver þrýst­ingur en það er í raun­inni engin hefði fyrir slíku og ég myndi halda að Vinstri grænir myndu ekki taka neinum leið­bein­ingum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina