Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hópur tónlistarfólks vill Ísland úr Eurovision „á sömu forsendum og Rússum í síðustu keppni“

Hópur tónlistarfólks vill Ísland úr Eurovision „á sömu forsendum og Rússum í síðustu keppni“
Stefán hlust­aði á yfir­lýs­ing­una í kuld­anum. Mynd: Þórdís Reynis

Hópur tón­list­ar­fólks afhentu Stefáni Eiríks­syni útvarps­stjóra, und­ir­skrift­ar­lista sinn í gær. Skorar hóp­ur­inn á Rík­is­út­varpið að taka ekki þátt í Eurovision í ár, nema Ísrael verði meinuð þátt­taka.

Daníel Ágúst Har­alds­son las upp yfir­lýs­ing­una fyrir hönd hóps­ins, við afhend­ingu und­ir­skrift­ar­list­ans en það var Lovísa Elísabet Sig­rún­ar­dóttir eða Lay Low sem afhenti Stefáni list­ann. Olga Guðrún Árna­dóttir söng lag sitt Myndin hennar Lísu, ásamt við­stöddum, en það lag er orðið eins­konar bar­áttu­söngur á sam­stöðu­fundum með Palest­ínu.

Daníel Ágúst las yfir­lýs­ing­una upp.

Að sögn hóps­ins eru 551 tón­list­ar­menn búnir að skrifa undir áskor­un­ina og er enn að bæt­ast við þann lista. Meðal fólks sem skrifað hefur nafn sitt við list­ann eru fjöl­margir  fyrrum kepp­endur Söngvakeppni sjón­varps­ins og Eurovision. Þar á meðal Pálmi Gunn­ars­son og Eiríkur Hauksson sem kepptu árið 1986 þegar Ísland tók þátt í keppn­inni í fyrsta sinn.

Frá afhend­ing­unni í gær.

Samkvæmt tölum Al Jazeera-frétta­stof­unnar hafa að minnsta kosti 24.987 verið drepnir í árásum Ísraela frá 7. októ­ber, þar af að minnsta kosti 9.695 börn og minnst 6,750 konur. Tölurnar eru minni í yfir­lýs­ingu tón­list­ar­fólks­ins enda hafa töl­urnar sjálf­sagt breyst frá því að yfir­lýs­ingin var skrifuð.

Hér fyrir neðan má lesa yfir­lýs­ing­una í heild sinni en 91 tón­list­ar­maður skrifar undir hana:

Þegar þetta er skrifað hafa 23.843 manns verið myrt af Ísra­els­her á Gasa­strönd­inni. Þar af 7,729 börn og 5,153 konur. Ríflega 60,317 manns eru særð sam­kvæmt opin­berum tölum og 8000 manns týnd. Að með­al­tali drepur Ísra­els­her 250 mann­eskjur á dag (skv fréttum Ruv). Þar er ekk­ert skjól að finna og mik­ill skortur á mann­úð­ar­að­stoð, mat­vælum og hreinu drykkj­ar­vatni. Ástandið er væg­ast sagt hræði­legt. Þrátt fyrir þjóð­ar­morð Ísra­els­ríkis á Palest­ínu er Ísrael þátt­tak­andi í Eurovision í ár. Rússland var ekki rekið úr Eurovision fyrr en Finnland hót­aði að draga sig úr keppni og önnur lönd fylgdu í kjöl­farið. RÚV hefur völdin til þess að þrýsta á stjórn EBU um að vísa Ísrael úr keppni og RÚV getur dregið Ísland úr keppn­inni ef svo verður ekki.  

Yfir­lýs­ing þessi er ekki sú fyrsta sem fram kemur í þessu máli. FTT – félag tón­skálda og texta­höf­unda hefur skorað á útvarps­stjóra og stjórn RÚV að taka ekki þátt í Eurovision árið 2024 nema Ísraelum verði meinuð þátt­taka í keppn­inni á sömu for­sendum og Rússum í síð­ustu keppni. FÁSES, félag áhuga­fólks um söngvakeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva, hefur einnig sent frá sér slíka yfir­lýs­ingu. 

Í net­könnun sem Prósent fram­kvæmdi dag­ana 17. til 21. Desember síð­ast­lið­inn kom svo fram að um 76 pró­sent þjóð­ar­innar telja að meina eigi Ísrael þátt­töku í Eurovision í ár Í sömu könnun lýstu um 60 pró­sent því sam­mála að Ísland eigi að draga sig úr keppni ef Ísrael tekur þátt.

Því er ljóst að almenn­ingur á Íslandi, helsta áhuga­fólk um Söngvakeppn­ina og fag­fólkið sem er for­senda þess að keppnin geti farið fram vill að Rík­is­út­varpið taki hér skýra afstöðu. Þau sitja hins vegar þögul hjá. Hvers vegna er það? Hvar er rétt­lætið í því? Við skorum á RÚV að gera betur og draga Ísland úr þátt­töku í Eurovision 2024 ef Ísrael verður ekki vísað úr keppn­inni. „Við erum stað­ráðin í að vernda gildi keppn­innar sem stuðlar að alþjóð­legum sam­skiptum og skiln­ingi, sam­einar fólk og hampar fjöl­breytni í gegnum tón­list­ina sem sam­einar Evrópu á einu sviði,“ segir í yfir­lýs­ingu fram­kvæmda­stjórar EBU í fyrra. Eru gildi keppn­innar önnur í ár? 

Hafið í huga að það er sterk póli­tísk afstaða að standa hjá og gera ekk­ert, að láta eins og við séum valda­laus and­spænis mann­úð­ar­krísu sem þess­ari.

Tón­list­ar­fólk sem hér skrifar undir skorar á RÚV að neita að taka þátt í Eurovision nema Ísrael verði vísað úr keppni.

Und­ir­ritað:

  1. Lovísa Elísabet Sig­rún­ar­dóttir
  2. Hildur Kristín Stef­áns­dóttir
  3. Bragi Valdimar Skúlason
  4. Adda Ingólfs Heiðrún­ar­dóttir
  5. Silja Rós Ragn­ars­dóttir
  6. Hallur Ing­ólfs­son
  7. Kristín Sesselja Ein­ars­dóttir
  8. Hafdís Huld Þrast­ar­dóttir
  9. Kjalar Mart­ins­son Kollmar
  10. Sóley Stef­áns­dóttir
  11. Ragn­heiður Gröndal
  12. Jónína Björg Magn­ús­dóttir
  13. Unnur Egg­erts­dóttir
  14. Árni Rúnar Hlöðvers­son
  15. Jón Ólafson
  16. Björn Krist­jáns­son
  17. Úlfar Viktor Björns­son
  18. Birgir Bald­urs­son
  19. Lóa Hlín Hjálmtýs­dóttir
  20. Arndís Árelía Hreið­ars­dóttir
  21. Benedikt Gylfason
  22. Margrét Kristín Blöndal
  23. Sigur Huldar Ellerup Geirs.
  24. Valgeir Skorri Vern­harðs­son
  25. Karl Pálsson 
  26. Halldór Ívar Stef­áns­son
  27. Tinna Þorvalds Önnu­dóttir
  28. Hildur Vala Ein­ars­dóttir
  29. Helga Ragn­ars­dóttir
  30. Aldís Fjóla Borg­fjörð Ásgeirs­dóttir
  31. Ylfa Marín Har­alds­dóttir
  32. Hrafn­kell Hugi Vern­harðs­son
  33. Sylvía Rún Guð­nýj­ar­dóttir 
  34. Andri Ólafsson
  35. Jakob Smári Magn­ús­son
  36. Margrét Örn­ólfs­dóttir
  37. Kristín Þóra Har­alds­dóttir
  38. Guðrún Edda Gunn­ars­dóttir      
  39. Björgvin Gíslason
  40. Ólöf Arnalds
  41. Skúli Sverr­is­son
  42. Jana María Guð­munds­dóttir
  43. Friðrik Mar­grétar Guð­munds­son
  44. Þórður Magn­ús­son
  45. Magnús Örn Magn­ús­son
  46. María Skúla­dóttir 
  47. Thelma Haf­þórs­dóttir Byrd
  48. Marína Ósk Þór­ólfs­dóttir
  49. Ása Berglind Hjálm­ars­dóttir
  50. Katla Vigdís Vern­harðs­dóttir
  51. Tómas Jónsson
  52. Styrmir Sig­urðs­son
  53. Hólm­fríður Sam­ú­els­dóttir
  54. Arnar Jónsson
  55. Þor­leifur Gaukur Dav­íðs­son
  56. Salóme Katrín Magn­ús­dóttir
  57. Tumi Torfason
  58. Nína Solveig Andersen
  59. Aron Hannes Emilsson
  60. Selma Haf­steins­dóttir 
  61. Lára Rún­ars­dóttir 
  62. Rósa Guðrún Sveins­dóttir
  63. Ösp Eldjárn Krist­jáns­dóttir 
  64. Steinunn Björg Ólafs­dóttir 
  65. Sunna Margrét Þór­is­dóttir
  66. Guð­mundur Pét­urs­son
  67. Reynir Snær Magn­ús­son
  68. Jimmy Gadson
  69. Bergrós Halla Gunn­ars­dóttir
  70. Móeiður Jún­í­us­dóttir
  71. Bryndís Halla Gylfa­dóttir
  72. Örvar Smárason
  73. Bergur Einar Dag­bjarts­son
  74. Auður Við­ars­dóttir
  75. Þóra Mart­eins­dóttir
  76. Lydía Grét­ars­dóttir
  77. Unn­steinn Árnason
  78. Snorri Helgason
  79. Sig­tryggur Bald­urs­son
  80. Ragn­hildur Veig­ars­dóttir
  81. Sindri Már Sig­fús­son 
  82. Bassi Ólafsson
  83. Steinunn Eldflaug Harð­ar­dóttir
  84. Hrefna Hrund Erlings­dóttir 
  85. Hallveig Rún­ars­dóttir
  86. Rakel Páls­dóttir
  87. Ingi Garðar Erlends­son
  88. Ólafur Daði Egg­erts­son
  89. Hreindís Ylva Garð­ars­dóttir Holm
  90. Add Sævar Sig­ur­geirs­son
  91. Kristín Sveins­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina