Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Mótmælir mótmælunum – Vill herða reglur og auka landamæraeftirlit: „Þessar dapurlegu tjaldbúðir“

Mótmælir mótmælunum – Vill herða reglur og auka landamæraeftirlit: „Þessar dapurlegu tjaldbúðir“
Bjarni Bene­dikts­son Myndin er sam­sett

„Það er hörm­ung að sjá tjald­búðir við Aust­ur­völl sem nú hafa staðið þar síðan 27. des­em­ber síð­stlið­inn. Það er óboð­legt með öllu að Reykja­vík­ur­borg hafi gefið leyfi fyrir tjald­búð­unum á þessum helga stað milli stytt­unnar af Jóni Sig­urðs­syni og Alþingis,“ svo ritar Bjarni Bene­dikts­son utan­rík­is­ráð­herra Íslands í nýrri færslu sem hann birti á sam­fé­lags­miðl­inum Facebook í kvöld. Bjarni virð­ist vera búinn að fá sig fullsaddan af mót­mæl­unum og til­kynnir að næstu aðgerðir í hæl­is­leit­anda­málum séu að herða reglur og auka landamæra­eft­ir­lit. Í færsl­unni dregur Bjarni tvo mála­flokka undir sama hatt, það er að segja, mót­mæli vegna þjóð­ar­morða í Gaza og öllum hæl­is­leit­endum á Íslandi.

Bjarni vandar ekki stjórn­endum borg­ar­innar kveðj­urnar, vegna fram­leng­ingu leyf­is­ins til mót­mæl­anna á Aust­ur­velli, og segir í færslu sinni:

„Í gær beit Reykja­vík­ur­borg höf­uðið af skömminni með því að fram­lengja leyfið. Það má gera ráð fyrir að það hafi verið hugsað í þeim til­gangi að tryggja að tjöldin stæðu þarna að lág­marki fram yfir sam­komu­dag þings­ins í upp­hafi næstu viku.
Þessar dap­ur­legu tjald­búðir hafa ekk­ert með hefð­bundin mót­mæli að gera sem löng hefð er fyrir að geti farið fram á Aust­ur­velli. Í þessu til­viki hefur Reykja­vík­ur­borg leyft því að ger­ast að hópur mót­mæl­enda kemur sér í heilan mánuð fyrir með tjöldum og bún­aði. Ég gef ekk­ert fyrir lít­il­lega breytt skil­yrði sem fylgja fram­leng­ingu leyf­is­ins frá því í gær.“

Líður ekki fána Palestínu við Alþingi

Tjald­búð­irnar eru ekki ein­göngu það sem truflar utan­rík­is­ráð­herr­ann en svo virð­ist sem fánar mót­mæl­anda fari ekki síður fyrir brjóstið á honum:

„Hópurinn flaggar þarna fjölda þjóð­fána Palest­ínu og festir á ljósastaura og tjöld.
Engum ætti að líð­ast að flagga nokkrum þjóð­fána fyrir framan Alþingi Íslands svo vikum skipti til að mót­mæla íslenskum stjórn­völdum. Hvað þá að festa slíka fána á ljósastaura og annað laus­legt og láta þá hanga þar svo vikum skipti. Óskilj­an­legt er að þetta hafi fengið að við­gang­ast og hvað þá að Reykja­vík­ur­borg leggi sér­staka blessun yfir flöggun fán­ans við fram­leng­ingu leyf­is­ins.“

Bjarni seg­ist skilja áhyggjur og óvissu þeirra sem dvelja hér fjarri fjöl­skyldum sínum en brýnir fyrir fylgj­endum sínum: „Hins vegar verður að muna að þeir sem mót­mæla eru í landi sem fær marg­falt fleiri umsóknir hæl­is­leit­enda en nágranna­ríkin.“ Hann bendir jafn­framt á að hærra hlut­fall umsókna sé tekið til efn­is­legrar með­ferðar hér með jákvæðri nið­ur­stöðu.

Áfram heldur Bjarni áfram með sam­an­burð ann­arra Norð­ur­landa og gerir því í skóna að sá hópur sem standi fyrir mót­mæl­unum krefj­ist meira en gangi og ger­ist í nágranna­löndum okkar: „Ekkert Norð­ur­land­anna hefur tekið við fleiri Palest­ínu­mönnum en Ísland und­an­farið og ekk­ert annað land hefur tekið til flýti­með­ferðar beiðnir um fjöl­skyldu­sam­ein­ingar eftir 7. októ­ber. Þessi hópur krefst þess nú að íslensk stjórn­völd gangi einnig lengra en allar nágranna­þjóðir til þess að tryggja að það fólk kom­ist frá Gaza.“

Vill herða reglur og auka eftirlit

Bjarni kveður kvæði sínu í kross og til­kynnir nýjar áherslur sem þurfi að ger­ast þegar komi að hæl­is­leit­endum á Íslandi:
„Það sem næst þarf að ger­ast í þessum mála­flokki er að herða reglur um hæl­is­leit­enda­mál og sam­ræma því sem ger­ist hjá nágranna­þjóðum. Auka þarf eft­ir­lit á landa­mærum. Núver­andi fyr­ir­komu­lag er alger­lega komið úr bönd­unum, bæði varð­andi kostnað og fjölda umsókna. Innviðir okkar komnir að þol­mörkum og á því þingi sem tekur aftur til starfa á mánu­dag­inn fram á sumar skiptir öllu að á þessum málum verði tekið af festu og öryggi.“

Telur Bjarni jafn­framt að Alþingi hafi ítrekað brugð­ist með því að hafna til­lögum dóms­mála­ráð­herra sem hafa átt að taka á þess­ari stöðu. Þessu sam­hliða vill hann að styrkja lög­regl­una með því auka heim­ildir í bar­átt­unni gegn brota­starf­semi, þar á meðal alþjóð­legri brota­starf­semi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina