Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Bjarni fordæmir skemmdarverk á ráðuneytinu og óhróður: „Tveir hettuklæddir menn mættu þangað“

Bjarni fordæmir skemmdarverk á ráðuneytinu og óhróður: „Tveir hettuklæddir menn mættu þangað“

„Ég legg áherslu á að fólk haldi sig innan ramma lag­anna. Að sletta máln­ingu á opin­berar bygg­ingar er til dæmis skýrt lög­brot. Í morgun þurfti að afmá ummerki skemmd­ar­verka á Utan­rík­is­ráðu­neyt­inu,“ skrifar Bjarni Bene­dikts­son utan­rík­is­ráð­herra á Facebook um fram­göngu þeirra sem styðja hæl­is­leit­endur í bar­áttu þeirra við yfir­völd. Hann hefur meðal ann­ars verið upp­nefndur barna­morða­ráð­herra.

Rauð málning

Deilan hófst með yfir­lýs­ingu ráð­herr­ans um að tjald­búðir mót­mæl­enda við Aust­ur­völl væru „hörm­ung“. Harðar deilur hafa orðið vegna þessa. Þær tóku á sig nýjan brag þegar menn í dul­ar­gervi mættu að utan­rík­is­ráðu­neyt­inu, að sögn Bjarna.„Tveir hettu­klæddir menn mættu þangað snemma morg­uns og slettu rauðri máln­ingu á bygg­ing­una. Hreinsun er lokið og málið til með­ferðar hjá lög­reglu.,“ skrifar Bjarni.Hann leggur áherslu á að við búum í lýð­ræð­is­ríki. Það sé ein­kenni slíkra ríkja að þar skipt­ist fólk á skoð­unum. Ráð­herr­ann svarar þeim sem hafa for­dæmt ummæli hans og líkt við fas­isma.

Áhyggjur af skautun

„Um þessar mundir er mikil skautun umræð­unnar orðin vax­andi áhyggju­efni víða í Evrópu og Banda­ríkj­unum. Hefur sú þróun ítrekað orðið að umræðu­efni á fundum mínum með utan­rík­is­ráð­herrum vina- og sam­starfs­þjóða. Nú er svo komið að ég tel að við þurfum að hafa raun­veru­legar áhyggjur af þessu sama á Íslandi,“ skrifar Bjarni.Hann áréttar skoðun sína um hörm­ung á Aust­ur­velli.„Ég er þeirrar skoð­unar að það sé algjör­lega óásætt­an­legt að mót­mæl­endur tjaldi og gisti á Aust­ur­velli um lengri tíma,“ skrifar hann.Svo víkur hann að bar­áttu­kon­unni Semu Erlu Serdaroglu, sem hefur ýjað að því að ráð­herr­ann hefði brotið lög með ummælum sínum um flóttea­menn­ina.„Þeir sem lengst ganga segja færslu mína fyrir helgi vera hreina útlend­inga­andúð. Í hádeg­is­fréttum Rík­is­út­varps­ins segir Sema Erla Serdaroglu, aðjúnkt við Háskóla Íslands og stofn­andi Solaris, að ég hafi uppi óhróður um hóp fólks og sé í reynd að hvetja til andúðar og ofbeldis. Hér erum við komin með ágætt dæmi um skautun í opin­berri umræðu þar sem ábend­ingar um aug­ljósa galla í hæl­is­leit­enda­kerf­inu leiða til ásak­ana um skort á allri sam­kennd, ras­isma og hvatn­ingu til ofbeldis,“ skrifar Bjarni og áréttar að í lýð­ræð­is­ríki verði skoð­ana­skipti að geta átt sér stað. Ásakanir aðjúnkts­ins í Háskóla Íslands séu frá­leitar og dæmi sig sjálfar.

Færsla Bjarna

þykir vera vís­bend­ing um að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé að taka upp harð­ari stefnu í útlend­inga­málum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina