Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hefja söfnun til bjargar fjölskyldunum frá Gaza: „Staðreyndin er sú að málið er ekki flókið“

Hefja söfnun til bjargar fjölskyldunum frá Gaza: „Staðreyndin er sú að málið er ekki flókið“
Að minnsta kosti hafa hátt í 11.500 palest­insk börn hafa verið drepin frá upp­hafi stríðs­ins. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Solaris – Hjálp­ar­sam­tök fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk á Íslandi, hafa sett af stað söfnun svo bjarga megi þeim rúm­lega 100 Palest­ínu­mönnum sem hafa dval­ar­leyfi á Íslandi, frá Gaza.

Frétta­til­kynn­ing frá Solaris – Hjálp­ar­sam­tökum fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk á Íslandi, barst fjöl­miðlum í morgun en þar eru íslensk stjórn­völd harð­lega gagn­rýnd fyrir aðgerða­leysi hvað varðar það að koma þeim ríf­lega 100 Palest­ínu­mönnum sem þegar hafa fengið dval­ar­leyfi hér á landi, en Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur sagt málið „flókið og umfangs­mikið.“

Þremur konum hefur nú tek­ist á yfir rétt 90 klukku­stundum, það sem rík­is­stjórn­inni hefur ekki tek­ist í yfir þrjá mán­uði að gera, en þær tóku sig til og flugu til Egypta­lands og sóttu fjöl­skyldu frá Gaza. Um þetta er skrifað í frétta­til­kynn­ingu Solaris.

„Stjórn­völd hafa brugð­ist palest­ínsku þjóð­inni og því hafa almennir borg­arar tekið málið í sínar hendur.

Þrjár konur fóru á dög­unum til Egypta­lands eftir að þeim blöskr­aði aðgerð­ar­leysi og mælsku­brögð rík­is­stjórn­ar­innar, auk áætl­unum Ísra­els­ríkis um árásir á Rafah, þangað sem nær allt fólk á Gaza-svæð­inu hefur flúið. Þar eru fjöl­skyld­urnar sem hafa fengið dval­ar­leyfi á Íslandi á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar staddar. Konurnar brugð­ust við því neyð­ar­á­standi og vinna nú að því á eigin vegum að koma fólki yfir landa­mærin.

Nú þegar hefur einni palest­ínskri fjöl­skyldu, með dval­ar­leyfi á Íslandi, verið komið frá Gaza.“

Þar segir einnig að ráð­herrar í rík­is­stjórn­inni hafi lengi forð­ast að svara fyrir aðgerða­leysi sitt í þessu máli.

„Ráð­herrar í rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hafa stöðugt forðað sér undan því að svara fyrir aðgerð­ar­leysi sitt gagn­vart dval­ar­leyf­is­höfum á Gaza. Í stað aðgerða gefa þeir í skyn að verið sé að íhuga mögu­legar lausnir og að málið sé flókið. Þann 6. febr­úar 2024 lýsti Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra því yfir í við­tali hjá RÚV að verið væri að skoða aðgerðir sem væru „tölu­vert umfangs­miklar og flóknar“.“

Solaris segir málið hins vegar ekki flókið.

„Stað­reyndin er sú að málið er ekki flókið.

Rúmlega hund­rað ein­stak­lingar frá Palest­ínu, sem hafa fengið dval­ar­leyfi á Íslandi á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar, hafa beðið mán­uðum saman eftir lið­sinni íslenskra stjórn­valda til að kom­ast undan þjóð­ern­is­hreins­unum ísra­el­skra stjórn­valda. Um er að ræða 128 ein­stak­linga, af þeim eru 75 börn, 44 mæður og 9 feður.

Íslensk stjórn­völd, einkum utan­rík­is­ráðu­neytið, hafa ekki tekið þau mik­il­vægu skref sem til þarf til að koma fólk­inu frá Gaza og til Íslands.

Á landa­mærum Egypta­lands þarf að vera ábyrgð­ar­að­ili á vegum íslenskra stjórn­valda sem kæmi þeim til Kaíró. Þaðan myndi Alþjóð­lega fólks­flutn­inga­stofn­unin (IOM) aðstoða þau við að ferð­ast til Íslands og greiða fyrir allt ferða­lagið.“

Enn­fremur segir í frétta­til­kynn­ing­unni að rík­is­stjórnin ætli sér ekki að koma fólk­inu til aðstoðar í tæka tíð.

„Utan­rík­is­ráðu­neytið hefur loks­ins við­ur­kennt að nauð­syn­legt sé að hafa íslenskan full­trúa til staðar á landa­mær­unum til að taka á móti fólki. Það að eng­inn slíkur full­trúi sé enn kom­inn á vett­vang og að ekki sé útlit fyrir að það breyt­ist, eins og utan­rík­is­ráð­herra sagði þann 6. febr­úar, gefur til kynna að stjórn­völd ætli sér ekki að koma fólk­inu til aðstoðar í tæka tíð.

Stjórn­völd hafa staðið aðgerða­laus hjá mán­uðum saman. Fólk sem býr hér á landi og bíður fjöl­skyldna sinna í örvænt­ingu hefur ítrekað óskað eftir sam­tali við ráða­menn. Óskum fólks­ins hefur nær ein­göngu verið vísað frá eða ekki svarað. Á sama tíma hafa ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar ítrekað farið með ósann­indi til þess að afvega­leiða umræð­una og reynt að fría sig allri sið­ferð­is­legri ábyrgð.

Tíminn er á þrotum. Á Gaza er fólk í bráðri lífs­hættu. Það þarf að bregð­ast við þeirri neyð.“

Og þá komum við að mergi máls­ins. Solaris hefur hafið söfnun svo koma megi öllum þeim Palest­ínu­búum sem hafa fengið dval­ar­leyfi á Íslandi, frá Gaza og til lands­ins, og þannig bjarga lífi þeirra.

„Að koma fólki út af Gaza og til Egypta­lands kostar tölu­verða fjár­muni. Heild­ar­kostn­að­ur­inn við að koma um 100 mann­eskjum lög­lega yfir landa­mærin, í sam­vinnu við þjón­ustu­að­ila og tengiliði sem starfa með egypskum og ísra­elskum stjórn­völdum sem ann­ast þessi mál, er um 50 millj­ónir íslenskra króna.

Saman getum við komið fjöl­skyld­unum undan þjóð­ern­is­hreins­unum og sam­einað þau hér á landi.

Sett hefur verið af stað lands­söfnun til að koma fleira fólki sem hefur fengið dval­ar­leyfi á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar frá Gaza og heim til Íslands.

Fyrir nánari upplýsingar

saol­aris.help/palest­ina

Tengiliðir í Egypta­landi

María Lilja Þrast­ar­dóttir, Bergþóra Snæ­björns­dóttir og Kristín Eiríks­dóttir (00 354 6917277 eða +20 01555643722).

Tengiliðir á Íslandi

Sema Erla Serdaroglu (8228904) og Karen Kjart­ans­dóttir (6929797).

Hægt er að styrkja söfn­un­ina með því að leggja beint inn á sér­stakan söfn­un­ar­reikn­ing Solaris fyrir Palest­ínu eða með Aur app­inu (mik­il­vægt að merkja aur færslur með titl­inum Palest­ína).

Reikn­ings­númer: 0515-14-007470
Kennitala: 600217-0380
AUR: 123 791951

SOLARIS

Hjálp­ar­sam­tök fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk á Íslandi

An aid organisation for refugees and asylum seekers in Iceland“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina