Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sólveig Anna fokill út í Viðskiptablaðið: „Aumingja þeir að vera svona fráleitt vitlausir“

Sólveig Anna fokill út í Viðskiptablaðið: „Aumingja þeir að vera svona fráleitt vitlausir“
Sólveig Anna Jóns­dóttir. Mynd: Skjáskot/RÚV

Sólveig Anna Jóns­dóttir er fok­ill út í „vit­lausu menn­ina“ á Við­skipta­blað­inu sem skrif­uðu leið­ara þar sem kröfur Breið­fylk­ing­ar­innar svokölluð í kjara­samn­ing­unum eru sagðar aðför að sjálf­stæði Seðla­bank­ans.

Verka­lýðs­for­ing­inn Sólveig Anna Jóns­dóttir fer mik­inn í nýrr Facebook-færslu þar sem hún svarar leið­ara Við­skipta­blaðs­ins fullum fetum. Í leið­ar­anum eru kröfur Breið­fylk­ing­ar­innar um for­sendu­á­kvæði í lang­tíma kjara­samn­ingi hvað varðar vaxta­stig, sagðar frá­leitar og aðför að sjálf­stæði Seðla­banka Íslands.

„Aumingja vit­lausu menn­irnir á Við­skipta­blað­inu. Þeir skrifa leið­ara í blaðið sitt um að Breið­fylk­ingin sé með kröfum sínum um for­sendu­á­kvæði í lang­tíma kjara­samn­ingi varð­andi vaxta­stig að fara fram á “afnám sjálf­stæðis Seðla­banka Íslands”. Aðför! Fráleitt! Aftur frá­leitt! Og enn einu sinni frá­leitt! Dálítill orða-forða skortur í gangi á Við­skipta­blað­inu, smá Pisa-fall sjá­an­legt. Aumingja þeir að vera svona frá­leitt vit­lausir.“ Þannig byrjar færsla Sól­veigar Önnu og hélt svo áfram:

„Í gær lýsti sjálfur stjóri alls á Íslandi, Ásgeir Jónsson, því yfir að aðilum vinnu­mark­að­ar­ins væri frjálst að setja hvaða for­sendu­á­kvæði sem væri inn í kjara­samn­inga. Slíkt hefði ekki áhrif á ákvarð­anir Seðla­bank­ans. Semsagt: Það er bein­línis svo að for­sendu­á­kvæði um vaxta­stig eru aldeilis ekki aðför að sjálf­stæði Seðla­bank­ans og frá­leitt að halda slíku fram. Í raun til marks um annað af tvennu: Heimsku eða óheið­ar­leika. Reyndar er það svo að þetta tvennt fer oft saman, því miður.“

Sólveig Anna segir einnig í færsl­unni að Efling hafi í gær birt álit lög­manns­stof­unnar MAGNA, sem athug­aði að beiðni félags­ins, áhrif for­sendu­á­kvæða í kjara­samn­ing á sjálf­stæði Seðla­banka Íslands. „Nið­ur­staðan er alveg skýr. Og í sam­ræmi við afstöðu Seðla­banka­stjóra: Engin lög banna að for­sendu­á­kvæði um vaxta­stig verði skrifuð í kjara­samn­inga. Réttur samn­ings­að­ila til að semja um slíkt sín á milli er ótví­ræður. For­sendu­á­kvæði um vaxta­stig binda ekki á nokkurn hátt hendur Seðla­bank­ans eða pen­inga­stefnu­nefndar.“

Og Sólveig Anna hélt áfram að berja á blaða­mönnum Við­skipta­blaðs­ins. „Já, aum­ingja vit­lausu menn­irnir á Við­skipta­blað­inu. Það hlýtur að svíða að hafa svona aga­lega rangt fyrir sér. En auð­vitað er það svo að vit­lausu menn­irnir, líkt og blessuð börnin, læra það sem fyrir þeim er haft. Og Samtök atvinnu­lífs­ins hafa blákalt haldið því fram að Breið­fylk­ingin vilji bæði vega að og binda fólkið í pen­inga­stefnu­nefnd, tjóðra og mýla sjálf Svörtu­loft. Martraðir vit­lausu mann­ana um sadíska hug­mynda­auðgi Breið­fylk­ing­ar­innar eru til komnar vegna full­yrð­inga aðal-samn­inga­fólks íslenskrar auð­stéttar, sem vill frekar hræða vit­glór­una úr hug­leys­ingjum en að vinna að far­sælum lang­tíma-kjara­samn­ingum. Það er sann­ar­lega fremur óhuggu­leg stað­reynd.“

Því næst rifjar Sólveig Anna upp minn­ingu úr æsku og setur í sam­hengi við leið­ara Við­skipta­blaðs­ins:

„Þegar ég var lítil stelpa voru Þjóð­sögur Jóns Árna­sonar lesnar fyrir mig. Sagan af djákn­anum á Myrká varð til þess að mamma mín þurfti að hengja á mig kross og ég æpti faðir-vorið á Guð og Jesú ef ég þurfti að fara á milli húsa í Breið­holts-myrkr­inu. Ef ég gerði það ekki þuldi ég í stað­inn hástöfum:Máninn líður,dauð­inn ríður;sérðu ekki hvítan blettí hnakka mínum,Garún, Garún?,og gerði með því sjálfa mig sífellt hrædd­ari. Helvítis ógeðs­legi hvíti blettur! Aðför að and­legu heil­brigði.

Þá var ég sex ára, og svo rjátl­að­ist tryll­ings­leg­asta hræðslan af mér smám saman og ég þurfti ekki lengur að ganga með kross þegar ég varð sjö ára.“

Að lokum óskaði Sólveig Anna að Við­skipta­blaðs­menn sæu að sér og hugs­uðu.

„Það væri ósk­andi að vit­lausu menn­irnir hættu að góla af áróð­urs-inn­blás­inni hræðslu og reyndu þess í stað að prófa að hugsa. Því að til þess setti Guð í okkur heil­ann að við gætum hugsað. Þá gætu þeir mögu­lega skilið að for­sendu­á­kvæði Breið­fylk­ing­ar­innar snúst um varnir fyrir vinn­andi fólk svo að við séum ekki tjóðruð og mýld, föst í fjög­urra ára kjara­samn­ingi á meðan að kaup­mátt­ur­inn okkar fuðrar upp og vaxta­byrðin kremur okkur. Slíkt fyr­ir­komu­lag væri sann­ar­lega ekk­ert annað en ljót saga og hræði­leg, bönnuð börnum og öllu sæmi­lega normal fólki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við