Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sigurjón bjargaði bróður sínum þegar Nanna VE sökk: „Það er í rauninni rosalegt að lenda í þessu“

Sigurjón bjargaði bróður sínum þegar Nanna VE sökk: „Það er í rauninni rosalegt að lenda í þessu“

Þann sjö­unda mars árið 1989 mátti litlu muna að áhöfnin í Nönnu VE, fær­ist er bát­ur­inn sökk undan henni.

Sigurjón Ósk­ars­son, skip­stjóri á Þórunni Sveins­dóttur, bjarg­aði bróður sínum, Leó Ósk­ars­syni skip­stjóra á Nönnu VE og sex skip­verjum hans þann sjö­unda mars árið 1989 er Nanna VE sökk út af Reyn­is­dröngum. Litlu mátti muna að ekki færi verr en áhöfnin hafði um kortér til að koma sér frá borði.

Árni Johnsen, þá blaða­maður Morg­un­blaðs­ins fjall­aði um málið í Mogganum en hann tók meðal ann­ars við­tal við skip­verja Nönnu VE. Hér fyrir neðan má lesa umfjöll­un­ina:

Stökk í bát­inn þegar brú­ar­glugg­inn lagð­ist í sjó – segir Leó Ósk­ars­son skip­stjóri á Nönnu VE

Vest­manna­eyjum, frá Árna Johnsen, blaða­manni Morg­un­blaðs­ins

„ÞEGAR ég gaf fyr­ir­skipun um að gera björg­un­ar­bát­ana klára var ég enn að reyna að keyra upp bát­inn, sem var þá nær kom­inn á hlið­ina,“ sagði Leó Ósk­ars­son skip­stjóri á Nönnu VE í sam­tali við Morg­un­blaðið í gær­kvöldi en Nanna sökk sem kunn­ugt er í fyrra­kvöld út af Reyn­is­dröngum. „Tveir skip­verj­anna fóru í sjó­inn til þessa að reyna að rétta annan gúmmí­björg­un­ar­bát­inn við en hann reynd­ist hafa blás­ist upp á hvolfi. Þá var útséð með það að ekki væri hægt að ná bátnum upp — slag­síðan var svo mikil — svo ég kúp­l­aði frá vél til þess að menn­irnir yrðu ekki í lífs­hættu. Á sama tíma var hinn bát­ur­inn gerður klár og þegar ég stökk í þann bát var brú­ar­glugg­a­rnir á Nönnu að leggj­ast i sjó. Við sáum bát­inn ekki sökkva því okkur rak strax frá honum. „Þegar við gáfum út neyð­ar­kallið klukkan 20.16,“ sagði Leó, „vorum við enn að reyna við að bagsa við að ná bátnum upp, losna við veið­ar­færin og höggva á vírana. Það gekk ekki. Björg­un­ar­bát­anir voru bundnir saman þannig að þegar við vorum komnir um borð í bát­inn sem var á réttum kili þá var hinn bát­ur­inn sem var á hvolfi dreg­inn að og strák­arnir tveir sem voru á honum komu yfir í bát­inn til okkar. Við lok­uðum þá bátnum öðru megin en not­uðum hitt opið til þess að vera á útkikki. Eftir nokkurn tíma sá ég Ijós frá bát og skaut þá upp neyð­ar­blysi og kveikti á hand­blysi. Þetta reynd­ist vera Sigurjón bróðir minn á Þórunni Sveins­dóttur. Það var gott að sjá þá koma. Þeir tóku okkur síðan um borð um netalúg­una og það gekk allt mjög vel. Fimm okkar komust í flot­galla og það mun­aði mjög miklu en það var ekki talið ráð­legt að ná í tvo galla sem voru aftar í bátnum því hann hall­aði svo mikið þegar þar var komið. Þegar ég fór í gall­ann var bát­ur­inn nær alveg á hlið og ég stóð hálf­part­inn á hlið­ar­inn­rétt­ing­unum.“

„Jú, það er erfitt að lenda í þessu. Það er búin að vera ofsa­leg vinna við að end­ur­byggja þennan bát, tveggja ára stans­laus vinna og nú er það verk allt til einskis. Það er í raun­inni rosa­legt að lenda í þessu en maður verður að taka svona óhöppum eins og þau eru. Það sem skiptir öllu máli er að menn björg­uð­ust og eru heilir á húfi. Ég vil færa inni­legar þakkir til allra þeirra sem aðstoð­uðu okkur, áhafn­ar­innar á Þórunni Sveins­dóttur sem bjarg­aði okkur, áhafn­ar­innar á Sunnu­bergi, sem ofkeyrði vél­ina til að reyna að aðstoða okkur, til starfs­manna á Vest­manna­eyja­radíó og allra ann­arra, sem þéttu björg­un­ar­netið þegar á reyndi. Þá vil ég þakka skip­verjum mínum fyrir æðru­leysi og örugg við­brögð á hættu­stund.

Menn voru rólegir og yfir­veg­aðir

„ÉG VAR uppi í brú með skip­stjór­anum, þaðan sem spil­inu er stjórnað þegar tog­festan varð, skipið fékk sjó í sig og byrj­aði að halla,“ sagði Ragnar Sig­ur­björns­son vél­stjóri á Nönnu VE í sam­tali við Morg­un­blaðið í gær­kvöldi. „Það náð­ist ekki að loka toglúg­unni — veið­ar­færin voru föst og það varð ekki við neitt ráðið. Við höfðum 10-15 mín­útur til þess að reyna björg­un­ar­að­gerðir, en án árang­urs og á þessum tíma náðum við einnig að gera flot­gall­ana klára fyrir flesta og koma björg­un­ar­bát­unum í sjó.

Menn voru mjög rólegir og yfir­veg­aðir, bát­ur­inn var eig­in­lega lagstur á  hlið­ina þegar við fórumí gúmmí­björg­un­ar­bát­ana. Við höfðum ekki náð í galla fyrir alla, því að tveir gallar voru aftur í og við tókum ekki áhætt­una á að fara niður í skipið. Við fórum tveir fyrstir frá borði til þess að reyna að rétta við bak­borðs­björg­un­ar­bát­inn, sem hafði blás­ist upp á hvolfi, því við vissum ekki hvernig gengi að ná bátnum á stjórn­borðs­hlið­inni, þeirri hlið sem bát­ur­inn hall­að­ist á. Við náðum ekki að rétta bát­inn við en eftir að síð­ari björg­un­ar­bát­ur­inn var leystur frá Nönnu þá voru báta­mir dregnir saman og við sam­ein­uð­umst í öðrum bátnum. Mér fannst skipta miklu máli hvað menn voru rólegir og yfír­veg­aðir og brugð­ust rétt við. Ég vil þakka áhöfn­inni á Þórunni Sveins­dóttur fyrir fræki­lega björgun og öðum þeim sem aðstoð­uðu okkur,“ sagði Ragnar Sig­ur­björns­son. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina