Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Eigandi húss í Grindavík ósáttur við brunabótamatið:„Ekki sanngjarnt að við séum að gefa þetta með“

Eigandi húss í Grindavík ósáttur við brunabótamatið:„Ekki sanngjarnt að við séum að gefa þetta með“
Grinda­vík fyrir eld­gosi og jarð­skjálfta

Jón Fanndal Bjarn­þórs­son er afar ósáttur við Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun vegna bruna­bóta­mats á húsi hans í Grinda­vík.

Grind­vík­ing­ur­inn Jón Fanndal Bjarn­þórs­son skrif­aði færslu í Facebook-hópnum Íbúar í Grinda­vík, þar sem hann birtir svar sem hann fékk vegna bruna­bóta­mats Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar á hús hans í Grinda­vík­urbæ. Jón fékk það svar að steypt girð­ing sem í kringum húsið hans fæst ekki metið í bruna­bóta­mat­inu og það sama eigi um bílaplanið og stétt­ina fyrir utan húsið. Við það er hann afar ósáttur. Mannlíf ræddi við Jón en fyrst skulum við líta á færsl­una í heild sinni:

„Semsagt að ég verð þá áfram eig­andi af steyptum girð­ingum og bíla­plönum

og stéttum húss­ins. Þá legg ég bílum þar og nýir eig­endur kom­ast ekki inn í húsið því ég á stétt­arnar og snjó­bræðslu­kerfi verður fjar­lægt og fl.Þetta er svo galið að ég held að þeir sem regl­urnar hafi samið fyrir þessa stofn­un­séu varla með grunn­skóla­próf miðað við heimsku­legar reglur hjá þeim.Þeir eru að reyna að taka af okkur húsin já eða ekki reyna þeir eru að taka af okkur húsin fyrir nið­ur­sett verð og svo þegar við erum búin að byggja okkur upp ann­ar­staðar þá er allt komið í fast­ar­skorður og fá okkar fara til bakaþá selja þeir húsin okkar á mark­aðs­verði og græða á þeim. Félagið um eign­irnar verður sjóða­sukk­fé­lag með líf­eyr­is­plebbum og helstu skíta­blésum þjóð­ar­innar. Ég skora á bæj­ar­stjórn­ina að vakna og koma ykkur í gang fyrir Grinda­vík og hætta þessu lattel­epjandi lífs­stíl sem er að fær­ast yfir ykkur níður í miðri borg og far­iði að gera eit­hvað af viti og standa í lapp­irnar og berj­ast fyrir Grinda­vík ekki bara sitja undir til­lögum frá þeim sem eru ekki búsettir í Grinda­vik.Svo væri ágætt eftir 3 mán­uði að eit­hvað

væri gert fyrir fyr­ir­tækin, okkur er bara sagt að yfir­gefa bæin og reddið ykkur baraÉg held að ef rvk fyr­ir­tæki væri sagt að yfir­gefa skuld­lausar eignir að það væri eit­hvað búið að gera fyrir þau fyr­ir­tæki og sorg­lega við það er að sú stað­reynd gæti litið dagssins ljós í nán­ustu fram­tíð það er kannski eit­hvað til að íhuga.“

Svarið sem Jón fékk.

Þegar Mannlíf heyrði í Jóni vildi hann taka það skýrt fram að hann sé ekki að agn­ú­ast út í neinn per­sónu­lega og að bæði bæj­ar­stjórn Grinda­víkur og starfs­menn Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­un­ar­innar séu að gera sitt besta í erf­iðum aðstæðum. „En ég meina nú samt það sem ég segi og segi það sem ég meina,“ segir Jón og heldur áfram. „Aðal­málið er að, í sam­bandi við bruna­bóta­matið, þarna er ekki verið að greiða okkur fyrir það sem er fyrir utan húsið hjá okkur. Það er svona aðal­málið í því sem ég skrif­aði. Og nú eigum við að fara að afhenda ein­hverju fast­eigna­fé­lagi húsið okkar og þá fylgir þetta bara með gratís. Rík­is­stjórnin þyrfti kannski að gera laga­breyt­ingu á því hvernig bruna­bóta­mat­inu er háttað því þeir virð­ast bara vera í vand­ræðum með þetta, þeir sem eru að upp­færa bruna­bóta­matið fyrir fólk.“

Þá segir Jón að margir séu farnir að skjóta rótum í öðrum bæj­ar­fé­lögum, börnin og ung­ling­arnir sum hver farin að stunda sínar íþróttir með öðrum félögum og fólk búið að gefa leyfi fyrir því að húsin verði seld en svo gæti komið upp sú staða að ástandið í bænum lag­ast og að þá selji fast­eigna­fé­lögin eign­irnar með öllu til­heyr­andi. „Með þessum bíla­plönum, veggjum, pöllum og pottum sem við höfum reist í kringum húsin,“ sagði Jón og hélt áfram: „Það er bara ekki sann­gjarnt að við séum að gefa þetta með.“ Jón útskýrir svo fyrir Mannlífi að til þess að fá grind­verk og fleira sem er í kringum húsið metið í bruna­bóta­mat­inu, þurfi það að tengj­ast við húsið. „Þegar ég segi [í færsl­unni] að starfs­fólk sé ekki með grunn­skóla­próf, þá er ég ekki að vísa í fólkið sem vinnur þarna núna, þar er ekk­ert nema kurt­eisin og almenni­leg­heitin. Ég er að segja að þeir sem sömdu þessar reglur fyrir bruna­bóta­matið, að það mætti halda að þeir séu ekki með grunn­skóla­próf, því það verk er ekki vel unnið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina