Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fjölskylduharmleikurinn á nýárskvöld 1931 – Aðeins ungabarnið lifði slysið af

Fjölskylduharmleikurinn á nýárskvöld 1931 – Aðeins ungabarnið lifði slysið af
Belmont lest­ar­stöðin í Chicago 1931

Hjónin Meth­úsalem Ólason og Kristrún Ólason höfðu átt góða stund með börnum sínum fjórum og vina­hjónum og tveimur börnum þeirra, á nýárs­dag árið 1931 en þau höfðu farið saman í mið­deg­is­verð­ar­boð, nærri Chicago. Heim­leiðin end­aði hins vegar með slíkum hryll­ingi að aðeins ein mann­eskja hélt lífi úr þessum tveimur fjöl­skyldum.

Meth­úsalem Ólason

Þau Meth­úsalem og Kristrún voru af annarri kyn­slóð Vestur-Íslend­ingar en for­eldrar Meth­ús­al­ems voru ættuð frá Fljót­dals­hér­aði og Loð­mund­ar­firði. Vinahjón þeirra sem ferð­uð­ust með þeim þetta örlaga­ríka kvöld, voru pólsk, þau Frank Nowak og kona hans (sem ekki er nefnd á nafn í gömlum fréttum) en þeir Meth­úsalem og Frank kynnt­ust í seinni heim­styrj­öld­inni sem þeir börð­ust báðir í sem her­menn Banda­ríkja­hers.

Kristrún Ólason

Fjöl­skyld­urnar tvær voru á heim­leið eftir mat­ar­boðið en út var orðið nokkuð dimmt. Þau komu að lestar­teinum sem lágu yfir þjóð­veg­inn en tekið er fram í gömlum fréttum um málið, að engin merki né örygg­is­slár hafi verið nærri braut­inni, líkt og lög gerðu ráð fyrir. Vöru­flutn­inga­lest var á járn­braut­inni og beið Meth­úsalem, sem keyrði bíl­inn, átekta eftir að flutn­inga­lestin færi fram­hjá. Þegar lestin er farin fram­hjá keyrir Meth­úsalem áfram en í því skellur hrað­lest með öllu afli á bíl­inum sem verður til þess að kasta bílnum um 200 metra með­fram lestar­tein­unum. Nowak-hjónin léstust í slys­inu ásamt börnum sínum tveimur, þeim Adam, átta ára og Lorraine, 5 ára. Meth­úsalem og Kristrún lét­ust einnig, auk barn­anna sinna: Calvin Met­husalem, tæp­lega 10 ára, Guðrún Muriel, á átt­unda ári og Vilborg Pearl, á fimmta ald­ursári. Aðeins litla Lorraine Margrét, þriggja mán­aða, lifði slysið af en hún fleygð­ist út úr bílnum, sem virð­ist hafa orðið henni til lífs.

Þrjú barn­anna á mynd­inni voru börn Ólason hjón­anna

Vísir sagði frá mál­inu á sínum tíma og vitn­aði mikið í Heimskringlu en séra Rögn­valdur Pét­urs­son, prestur í Winnipeg, skrif­aði um slysið. Hér fyrir neðan má lesa um slysið hræði­lega:

Bif­reiða­slysið í Chicago 

Þess var getið í Vísi með fáumm orðum fyrir nokk­uru síðan, að íslensk fjöl­skylda hefði beðið bana af völdum bif­reið­ar­slyss í nánd við Chicago. Blöð hafa nú borist að vestan, sem flytja nán­ari fregnir af slys­inu, t. d. Heimskringla þ. 28. jan­úar. Er þar ítar­leg grein um slysið, eftir R. P. (síra Rögnvald Pét­urs­son). Segir hann svo: „Í slys­inu biðu tvenn hjón bana og fimm börn, öll ung, er með þeim voru, en hið sjötta og yngsta, aðeins þriggja mán­aða gam­alt, er einnig var með, bjarg­að­ist og fanst það lif­andi, er að var komið. Önnur hjónin voru íslensk. Met­úsalem Ólason og Kristrún, og munu margir kann­ast við for­eldra þeirra og systk­ini, jafnt meðal yngri sem eldri, sem búið hafa í Dakota. Fluttu þau til Chicago fyrir fáum árum síðan. Hin fjöl­skyldan var pólsk og var mað­ur­inn, Frank Nowak, og Met­úsalem, vild­ar­vinir, frá því þeir voru félagar í hernum á stríðs­ár­unum. Fjöl­skyld­urnar bjuggu nú í sama borg­ar­hluta (Elms­hurst) og voru að koma úr mið­deg­is­verð­ar­boði frá tengda­bróður Nowaks, er slysið bar til. Slysið vildi til á þjóð­braut­inni, þar sem járn­braut liggur yfir veg­inn, og eru þar engin merki eða örygg­is­slár, svo sem fyr­ir­skipað er. — Þegar Metusalem kom að járn­braut­inni var vöru­flutn­inga­lest á henni. Stöðvaði hann þá bif­reið­ina og beið átekta. Var þetta um kveld kl. 7. Þegar hún er farin fram hjá, ekur hann af stað, en í sömu svifum kemur hrað­lest úr sömu átt, fyr­ir­vara­laust, og án þess að gefa nokkuð merki  greip hún bif­reið­ina, varp­aði henni um 100 faðma með­fram spor­inu og út í skurð, er þar var. Kom bif­reiðin niður á hvolfi og öll í brotum og allir, sem í henni voru, lim­lestir og látnir, nema barnið, sem hrokkið hafði við kastið út úr bif­reið­inni. Fanst það skamt frá. Var hnakki þess dal­aður og and­litið marið, en von um, að það lifði. — Jarð­ar­förin fór fram við Akra og var fjöl­menn, þrátt fyrir kalsa­veður og ófæra vegi. Ræður fluttu síra Haraldur Sigmar og síra Rögn­valdur Pét­urs­son frá Winnipeg. Nið­ur­lagið af grein síra Rögn­valdar er hér tekin upp:

„Eins og áður er að vikið, voru þau Ólasons hjónin bæði fædd i islensku bygð­inni við Akra. Met­úsalem var fæddur þar þann 26. mars 1888. For­eldrar hans voru þau Guðni Ólason, ætt­aður af Fljóts­dals­hér­aði í Suður-Múla­sýslu, og kona hans Margrét Þórð­ar­dóttir, upp­eld­is­dóttir síra Jóns Aust­fjörð á Klypp­stað í Loð­mund­ar­firði. Fluttu þau Guðni og Margrét til Ameríku árið 1887, og sett­ust á land sunnan við Akra. Þar bjuggu þau upp að árinu 1903, er þau fluttu til Manitoba, og námu land í grend við, þar sem nú er járn­braut­ar­stöðin Caliento. Tíu börn eign­uð­ust þau, er til ald­urs komust  og eru nú sjö á lífi. Ein dóttir, Anna Kristín, and­að­ist heima hjá for­eldrum sínum, og einn sonur, Óli G. Ólason, er gekk í Canadaherinn, en var búsettur í Winnipeg, féll í orust­unni við Lens 16. ágúst 1917. Þau, sem eftir lifa, eru þessi: Guðrún Ingi­björg, gift Einari Ingj­alds­syni, búsett við Valhalla, N. D. Jón, bóndi við Backoo, N. D., kvæntur Guðrúnu Bjarna­dóttur Dalsted., Sig­ur­veig Maria Lawson, ekkja, er býr í Piney, Man. — Þórður, bóndi við Vita, Man., kvæntur Guðrúnu Jón­atans­dóttur Arnason. Vil­hjálmur, bóndi við Caliento, Man., kvæntur Kristínu Eugenie Karls­dóttur Krist­jáns­son. Helgi, bóndi við Vita, Man., kvæntur Emmu Kristínu Olson. Eirika Vilborg, gift Bjarna Björns­syni, bónda við Caliento, Man. Met­úsalem ólst upp hjá for­eldrum sinum við Akra og Caliento, og var lengst lengst, uns móðir þeirra and­að­ist haustið 1912,

Fór hann þá í vinnu­mennsku og var á ýmsum stöðum eftir það; flutt­ist vestur til California og var þar, er Banda­ríkin gengu inn í ófrið­inn 1917. Vildi hann ekki inn­rit­ast við her­sveitir í Californiu, svo að með til­styrk Jóns bróður síns, hvarf hann aftur austur til Dakota og inn­rit­að­ist þar i Banda­ríkja­her­inn 29. mars 1918. Í apríl var hann sendur til Frakk­lands og tók þátt í orust­unni við St. Mihiel og Meuse-Argonne. Heim kom hann aftur 23. april 1919 ög var leystur sama ár undan her­þjón­ustu. Haustið 1920, þ. 20. sept­em­ber, kvænt­ist hann Kristrúnu Krist­jáns­son. Voru for­eldrar hennar Karl Krist­jáns­son, bóndi við Akra, N. D. og (frá 1901) Calieiito, Man., dáinn fyrir mörgum árum síðan, og kona hans, Guðrún Ásmunds­dóttir, er enn býr við Caliento. Þrjú systk­ini Kristrúnar eru enn á lífi: Kristín Eugenie, gift Vil­hjálmi bróður Met­ús­al­ems, Kristján Ferdin­and og Guðrún Pearl, er bæði eru heima hjá móður sinni. Árið 1926 fluttu þau Met­úsalem og Kristrún til Chicago. Fékk hann þar stöðu hjá Northwestern járn­braut­ar­fé­lag­inu. — Við þá stöðu var hann, er slysið bar að höndum.

Þau hjón voru bæði hin mann­væn­leg­ustu, og var Met­úsalem hið mesta hraust­menni, sem hann átti kyn til. Hafa margir frændur hans þótt afburða­menn að afli, bæði fvr og síðar. Bæði voru þau mjög vel gefin og einkar kær og nákomin hinum stóra skyld­menna­hóp. Til dæmis heim­sótti Kristrún móður sína og systk­ini á hverju sumri; þar var mynd sú tekin síð­ast­liðið sumar af börnum hennar, er minn­ing­ar­orðum þessum fylgir, og þar eru öll börn þeirra fædd. Átti móð­irin þá ekki von á því, að þær mæðgur sæust þá síð­ast, er þær kvödd­ust í vetur. — Faðir Met­ús­al­ems býr hjá börnum sínum við Caliento. Er þungur harmur að honum kveð­inn með son­ar­miss­inum, hálf-níræðum og nærri blindum, í ráði er, að láta mál þetta ekki niður falla á hendur járn­braut­ar­fé­lag­inu, er slys­inu olli. Er von­andi, að félagið verði látið sæta fullri ábyrgð, þó eigi væri nema vegna litlu stúlkunnar, er mist hefir alla nán­ustu ætt­ingja. En ójafnt standa hlut­að­eig­endur að vígi. Annars vegar, að vísu stór, en efna­fár ætt­ingja­hópur, hinum megin stór­ríkt og vold­ugt fjár­sýslu­fé­lag, er lítið virð­ist meta manns­lífið. Fáir munu þó vera í vafa um, hvoru meg­inn rétt­ur­inn er, nái hann fram að ganga. R.P.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina