Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landssöfnun fyrir Palestínu gengur vel: „En betur má ef duga skal“

Safnast hafa 30. millj­ónir í lands­söfnun fyrir Palest­ínu og eru nú tugir ein­stak­lingar á leið­inni frá Gaza til Íslands.

Frétta­til­kynn­ing birt­ist í dag frá Solaris hjálp­ar­sam­tök­unum og öðrum sem staðið hafa fyrir lands­söfnun svo hægt væri að bjarga lífi Palest­ínu­manna sem hafa þegar fengið sam­þykkta fjöl­skyldu­sam­ein­ingu hér á landi. Kemur þar fram að síðan lands­söfnun hófst svo hægt væri að senda sjálf­boða­liða til Egypta­lands, til að sækja þá Gaza-búa sem eru komin með dval­ar­leyfi á Íslandi en rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hefur ekki tek­ist að gera, hafa safn­ast alls um 30. millj­ónir. Enn­fremur kemur fram að nú séu tugir Palest­ínu­manna á leið frá Gaza til Íslands. Pen­ing­ur­inn kemur frá um 3.000 ein­stak­lingum auk fyr­ir­tækjum og félaga­sam­tökum.

Nú þegar hafa íslenskir sjálf­boða­liðar komið sex börnum og mæðrum þeirra til Íslands og 12 til við­bótar út af Gaza. Von er á 17 ein­stak­lingum yfir landa­mærin næstu daga en lang­flest eru alvar­lega veik og særð börn. Fram kemur í frétta­til­kynn­ing­unni að nú liggi á að sæka þau sem eftir eru áður en Ramadan hefst 10. mars. „Gefið hefur verið út af ísra­elskum stjórn­völdum að loka­hnykk­ur­inn í þjóð­hreins­un­inni á Gaza muni eiga sér stað á þessum helg­asta tíma múslima. Við biðlum því til allra sem geta að leggja söfn­un­inni lið. Tíminn er naumur og við höfum sýnt það og sannað að með sam­eig­in­legu átaki getur íslenska þjóðin lyft grettistaki og sótt þau sem eftir eru. Hópurinn sem eftir er sam­anstendur af 32 mæðrum, 49 börnum og 9 feðrum og safna þarf 25. millj­ónum til við­bótar til þess að koma þeim heim!“

Tekið er fram í til­kynn­ing­unni að ekki sé kostur á öðru en að halda söfn­un­inni áfram þar sem enn sé óvíst hvort rík­is­stjórn Íslands muni gera eitt­hvað í mál­inu, því haldi sjálf­boða­liðs­starfið áfram.

Hér fyrir neðan má lesa frétta­til­kynn­ing­una í heild sinni:

Reykja­vík, 25. febr­úar 2024

30.millj­ónum safnað í lands­söfnun fyrir Palest­ínu – tugir ein­stak­linga á leið­inni frá Gaza til Íslands!

Frá því að lands­söfnun fyrir Palest­ínu hófst þann 7. febr­úar s.l. hafa 3.000 ein­stak­lingar ásamt fyr­ir­tækjum og félaga­sam­tökum lagt til rúmar 30.000.000 kr. til þess að koma fólk­inu okkar heim frá Gaza, fólk­inu sem hefur fengið dval­ar­leyfi á Íslandi á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar en íslensk stjórn­völd hafa ekki aðstoðað við að kom­ast út af Gaza. Nú þegar hafa íslenskir sjálf­boða­liðar, með söfn­un­ar­fénu, komið sex börnum og mæðrum þeirra til Íslands og 12 ein­stak­lingum til við­bótar út af Gaza. Þá er von á 17 ein­stak­lingum yfir landa­mærin á næstu dögum. Lang­flest eru alvar­lega veik og særð börn.

En betur má ef duga skal og nú ríður á að sækja þau sem eftir eru áður en Ramadan hefst þann 10. mars. Gefið hefur verið út af ísra­elskum stjórn­völdum að loka­hnykk­ur­inn í þjóð­hreins­un­inni á Gaza muni eiga sér stað á þessum helg­asta tíma múslima. Við biðlum því til allra sem geta að leggja söfn­un­inni lið. Tíminn er naumur og við höfum sýnt það og sannað að með sam­eig­in­legu átaki getur íslenska þjóðin lyft grettistaki og sótt þau sem eftir eru. Hópurinn sem eftir er sam­anstendur af 32 mæðrum, 49 börnum og 9 feðrum og safna þarf 25. millj­ónum til við­bótar til þess að koma þeim heim!

Þegar ljóst var í byrjun febr­úar að hægt væri að koma fólki úr bráðri lífs­hættu á Rafah, án aðkomu íslenskra stjórn­valda, var sett af stað lands­söfnun fyrir Palest­ínu. Söfnunin var nauð­syn­leg í ljósi þess að verk­efnið er kostn­að­ar­samt án aðkomu stjórn­valda, en gera má ráð fyrir því að það kosti um 60 millj­ónir að koma þeim rúm­lega 100 ein­stak­lingum sem hafa fengið dval­ar­leyfi á Íslandi á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar út af Gaza. Söfnunin fór af stað 7. febr­úar og nú þegar hafa safn­ast rúmar 30 millj­ónir króna til að koma fjöl­skyld­unum heim.

Almennir borg­arar, með enga diplómat­íska reynslu, tóku málin í sínar hendur eftir ærandi aðgerð­ar­leysi ráðu­neyt­is­manna og í byrjun febr­úar fóru þrjár íslenskar konur til Kaíró. Þeim tókst á fjórum dögum að koma einni fjöl­skyldu yfir landa­mæri Rafah og Egypta­lands.

Nokkrum dögum síðar komst önnur fjöl­skylda yfir landa­mærin og í öruggt skjól til Íslands með aðstoð hóps­ins. Sjálf­boða­liðar hafa síð­ustu vikur unnið áfram að því að koma ein­stak­lingum út af Gaza og til Íslands og hafa 37 ein­stak­lingar, aðal­lega veik og særð börn, kom­ist út af Gaza (og hluti af hópnum til Íslands) eða eru á leið­inni frá Gaza á næstu dögum, vegna þrot­lausrar vinnu sjálf­boða­liða.

Enn hafa engar fréttir borist af því hvort eða hvenær íslensk stjórn­völd muni sækja fólkið á Gaza. Íslenskir sjálf­boða­liðar sjá því ekki annað í stöð­unni en að halda áfram sinni vinnu, en tím­inn er á þrotum, og nú ríður á að sækja þau sem eftir eru á Gaza áður en Ramadan hefst þann 10. mars. Gefið hefur verið út af ísra­elskum stjórn­völdum að loka­hnykk­ur­inn í þjóð­hreins­un­inni á Gaza muni eiga sér stað á þessum helg­asta tíma múslima. Við höfum sýnt það og sannað að með sam­eig­in­legu átaki getur íslenska þjóðin lyft grettistaki og sótt þau sem eftir eru. Hópurinn sem eftir er sam­anstendur af 32 mæðrum, 49 börnum og 9 feðrum og safna þarf 25. millj­ónum til við­bótar til þess að koma þeim heim!

Í dag hafa meira en 3000 ein­stak­lingar styrkt verk­efnið með frjálsum fram­lögum, ásamt nokkrum fyr­ir­tækjum og félaga­sam­tökum. Fjöldi fólks hefur haft sam­band til að bjóða fram aðstoð sína og hafa þó nokkrir þegar farið til Egypta­lands á eigin kostnað til að aðstoða við að koma fólk­inu okkar í öruggt skjól. Þar að auki hefur fólk úr öllum áttum tekið sig til og sýnt stuðn­ing í verki með því að gefa vinnu sína, sköpun og tíma. Stuðn­ingur almenn­ings á Íslandi við þetta stóra verk­efni hefur verið meiri en okkur óraði fyrir og því erum við gíf­ur­lega þakk­lát. Þessi stuðn­ingur er ómet­an­legur og tryggir að vinna sjálf­boða­lið­anna geti haldið áfram, að það sé hægt að koma fleiri fjöl­skyldum undan þjóð­ar­morði.

Við höfum ein­sett okkur að gef­ast ekki upp á meðan fólkið okkar berst enn fyrir lífi sínu á Gaza. Til þess þurfum við áfram stuðn­ing almenn­ings. Saman getum við gert krafta­verk og komið fólk­inu okkar í öruggt skjól.

Hægt er að leggja söfn­un­inni lið hér

Reikn­ings­númer: 0515-14-007470

Kennitala: 600217-0380

AUR: 1237919151

www.styrkja.is/palestina

Nánari upp­lýs­ingar sol­aris.help/palest­ina

F.h. stjórnar Solaris og hóps­ins á bak­við verk­efnið,
Sema Erla
for­maður Solaris 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina