Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Efnilegasti maraþonhlaupari heims lagður til hinstu hvílu:„Ég hef grátið þar til ég gat ekki meira“

Efnilegasti maraþonhlaupari heims lagður til hinstu hvílu:„Ég hef grátið þar til ég gat ekki meira“

Ekkja Kelvin Kiptum, Asenath Rotich, reyndi að halda aftur af tár­unum og leiddi syrgj­endur við jarð­ar­för hins unga heims­met­hafa í mara­þoni í Kenýa.

Hún brotn­aði niður þegar hún upp­lýsti að parið hefði verið að skipu­leggja stóra brúð­kaups­veislu sem átti að vera í apríl. Kiptum var aðeins 24 ára þegar hann lést í bílslysi fyrir tæpum tveimur vikum.

Kelvin Kiptum

Hann hafði komið hlaupa­heim­inum ræki­lega á óvart á stuttum mara­þon­ferli sínum og íþrótta­menn og stjórn­mála­menn komu til að heiðra mann sem lífið hafði lofað svo miklu.

Í frétt BBC um jarð­ar­för hins unga íþrótta­manns kemur fram að for­seti Kenía, William Ruto hafi mætt í hana, sem og Sebast­ian Coe, yfir­maður heims­sam­bands frjáls­í­þrótt­ar­innar.

Útförin var haldin á sýn­ing­ar­svæði í þorp­inu Chepkorio í vest­ur­hluta Kenýa, þar sem Kiptum þjálf­aði.

Ekkja Kiptum, sagði frá því í útför­inni að þau hefðu verið að skipu­leggja „lit­ríka brúð­kaups­veislu“ sem halda átti í apríl en hjónin giftu sig 2017. Nærvera hennar minnti alla á að hin hóg­væra og mjúk­mála stjarna, hafði einnig skilið eftir konu sína, tvö börn og for­eldra.

„Við syrgjum þig elskan,“ sagði hún og bætti við, „Ég hef grátið þar til ég gat ekki meira. Ég mun sakna þín og þú ert ástin í mínu lífi, að eilífu. Þar til við hitt­umst aftur.“

Ein­hverjir bestu hlauparar heims koma frá Kenýa en margir þeirra komu í jarð­ar­för­ina til að votta virð­ingu sína. Amos Kipruto, sem sigr­aði Lund­ún­ar­m­ara­þonið árið 2022, var einn af kistu­berum í útför­inni. „Hend­urnar eru ekki nógu sterkar,“ sagði hann í sam­tali við BBC. „Hjarta mitt er þungt, það er þjáð, og mér finnst ennþá eins og þetta sé kvik­mynd … við erum allir keppi­nautar í hlaup­inu en í vin­skap erum við saman.“

Faith Kipyegon, marg­faldur heims­meist­ari lýsti Kiptum sem „ein­stökum“ og velti fyrir sér hvað hefði getað orðið, að þetta hefði átt að vera árið sem hinn ungi lang­hlaup­ari bryti tveggja klukku­tíma múr­inn í mara­þoni.

„Síðan hann kom fram á sjón­ar­sviðið hefur hann verið að end­ur­skrifa sög­una,“ sagði hinn reynslu­mikli hlaup­ari Paul Tergat við BBC. „Hann hefur arf­leifð sem við höfum aldrei séð í þessum heimi. Við erum hér … til að fagna því sem hann hefur áorkað á mjög stuttum tíma.“

Kiptum hljóp sitt fyrsta mara­þon í des­em­ber 2022 og hljóp á hrað­asta tíma sem nokkur hefur hlaupið í fyrsta mara­þon­inu sínu. Þá sló hann met Lund­ún­ar­braut­ar­innar á síð­asta ári og svo heims­metið sjálft í októ­ber, sem landi hans Eliud Kipchoge hafði átt. Í heild­ina hljóp hann á mesta hraða allra tíma í þremur mara­þonum af sjö á innan við ári.

En Kiptum var einnig hetja heima fyrir, sem gerði margt fyrir fólkið á heima­svæði hans. „Ég finn sárs­auka og sjokk,“ sagði Susan Jerotich, sem býr í þorp­inu þar sem útförin var haldin.  „Hann hefði gefið sam­fé­lag­inu og fjöl­skyld­unni svo mik­inn stuðn­ing. Hann var ljósið okkar. Hann hafði hvetj­andi áhrif á marga. Við sögðum oft við börnin: „Verið eins og Kiptum“.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina