Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Rifjar upp tengsl Íhaldsins við nasista: „Voru gerðir að heiðursfélögum í Sjálfstæðisflokknum“

Rifjar upp tengsl Íhaldsins við nasista: „Voru gerðir að heiðursfélögum í Sjálfstæðisflokknum“
Fangar Nasista

Kristinn Hrafns­son setur mál­efni hæl­is­leit­enda á Íslandi í sam­hengi við Þýska­land nas­ism­ans.

Rit­stjóri Wikileaks, Kristinn Hrafns­son er staddur í þýsku höf­uð­borg­inni, Berlín og rifjar af því til­efni upp örlög Leifs Muller, sem ætl­aði sér að flýja frá Noregi til Íslands, undan oki Nasista en var svik­inn í hendur þeirra og sendur í útrým­inga­búð­irnar Sachsenhausen, sem Kristinn kallar „lokað búsetu­úr­ræði“ í Facebook-færslu sinni og skýtur þar á fyr­ir­ætl­anir rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur um að koma hæl­is­leit­endum fyrir í flótta­manna­búðir, sem myndu kall­ast „lokað búsetu­úr­ræði.“

Kristinn rit­aði: „Er í Berlín og hugsa til heim­sókna minna til Sachsenhausen í jaðri borg­ar­innar en það var lokað búsetu­úr­ræði sem nas­istum hug­kvæmd­ist. Þar átti Leifur Muller heim­ili árum saman og losn­aði við mörg aukakílóin. Vistin var ýmsum býsna strembin og gékk af sumum dauðum. Leifur var vistaður í þessu lok­aða búsetu­úr­ræði þar sem upp komst í Noregi að hann hyggð­ist ger­ast flótta­maður og leita skjóls á Íslandi undan her­töku Þjóð­verja. Líklegt þykir að Nas­ist­inn Ólafur Pét­urs­son hafi gert félögum sínum við­vart um þetta van­þakk­læti Leifs.“

Því næst rifjar Kristinn upp við­kvæma sögu Sjálf­stæð­is­flokks­ins á tímum Adolfs Hitlers.

„Þetta var skömmu eftir að íslenskir Nasistar, félagar Ólafs, voru gerðir að heið­urs­fé­lögum í Sjálf­stæð­is­flokknum og sú skoðun nokkuð útbreidd meðal þeirra að öll gagn­rýni á kansl­ar­ann með yfir­skeggið væri stækur komm­ún­ismi. Þeim þótti hann hafa sýnt afrek í upp­bygg­ingu inn­viða m.a. með fjár­magni sem tekið var frá van­þakk­látum þjóð­fé­lags­hópum.“

Þá segir Kristinn að ekk­ert Eurovision hafi verið á þessum tíma en ólymp­íu­leik­arnir hafi verið haldnir í Berlín 1936 „þar sem glatt var á hjalla og fátt sem spillti gleð­inni þó að sumum þætti heldur verra að Jesse Owens, fót­frár blökku­maður, næði að koma sér þar á verð­launa­pall með gull um háls­inn,“ eins og Kristinn orðar það.

Færsla rit­stjór­ans lýkur með eft­ir­far­andi orðum:

„Þetta sama sumar var lok­aða búsetu­úr­ræðið í Sachsenhausen vígt eftir að hafa verið reist af þeim mönnum sem síðar nutu kosta úrræð­is­ins.

Þetta var fyrsta slíka úrræðið af mörgum sem opnuð voru næstu árin. Litlar líkur eru á að frum­kvöðl­arnir hafi náð að bregða sér á ólymp­íu­leik­ana enda upp­teknir við að koma sér þaki yfir höf­uðið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við