Ástarpungarnir í Geirabakaríi eru einhverjir þeir rómuðustu á landinu öllu. Þeir þykja einstaklega bragðgóðir og svo þykir guli liturinn innanvert á pungunum einstaklega seiðandi. Fjölmargir aðdáendur punganna hafa lagt upp í langferð til þess að komast í bakkelsið sem er fyrir löngu orðið eitt af aðalsmerkjum Geirabakarís. Sigurþór Kristjánsson, eigandi Geirabakarís og maðurinn að baki ástarpungunum, staðfestir í orðsendingu til Mannlífs að pungarnir góðu verði á næstunni til í Melabúðinni í Vesturbæ Reykjavíkur.

Aðdáendur ástarpunganna gulu á höfuðborgarsvæðinu geta því glaðst því útrás er hafin frá Borgarnesi. Mikil viðbrögð urðu við þessum tíðindum sem Sissi bakari og hans fólk kynntu á Facebook-síðu Geirabakarís.
„Veit um eina sem myndi keyra í Melabúðina til að ná í snúða með ekta sukkulaði. Og aðra sem færi langt til að ná í hafrakexið,“ skrifar Eva Sumarliðadóttir í athugasemd. Fleiri létu í ljósi óskir um að rúbrauðið rómaða og hafrakexið frá Geirabakaríi yrði látið fljóta með pungunum. Staðfest er að óskir þeirra verða uppfylltar. Ástarpungarnir munu væntanlega tröllríða vesturbæ Reykjavíkur á næstu misserum.































Athugasemdir