Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Tilkynning frá lögreglunni á Suðurnesjum – Fyrirkomulagið á svæðinu næstu vikuna

Tilkynning frá lögreglunni á Suðurnesjum – Fyrirkomulagið á svæðinu næstu vikuna
Grinda­vík – Mynd: Wikipedia

Lög­reglan á Suð­ur­nesjum gaf út til­kynn­ingu vegna stöð­unar á Reykja­nesi. Veð­ur­stofan telur enn auknar líkur á gosi. Íbúar og starfs­fólk sem fer inn í Grinda­vík eru á eigin ábyrgð. Fyr­ir­komu­lag tekur gildi klukkan 16 í dag og verður tekið til end­ur­skoð­unar sunnu­dag­inn 10. mars 2024 eða fyrr eftir atvikum. Til­kynn­ingin birt­ist í heild sinni hér að neðan:

Grinda­vík var rýmd í gær svo og Svarts­eng­is­svæðið þar sem talið var að eld­gos gæti haf­ist þá og þegar. Þessar rým­ingar gengu vel. Reynsla gær­dags­ins sýnir að á háanna­tíma hjá Bláa Lóninu tók um 40 mín­útur að rýma starfs­stöðvar fyr­ir­tæk­is­ins. Þá var eng­inn asi á rým­ingu inn í Grinda­vík og tók hún um eina klukku­stund. Þar voru fáir á ferli fyrir utan við­bragðs­að­ila og verk­taka við vinnu við varn­ar­garða. Vinna þeirra liggur niðri í dag sam­kvæmt áður ákveðnu skipu­lagi.

Veð­ur­stofa Íslands telur enn auknar líkur á eld­gosi og benda gögn til þess að kviku­hlaupið í gær hafi stöðvast við Hagafell. Að mati Veð­ur­stof­unnar er talið lík­legt að kviku­magn undir Svarts­engi haldi áfram að aukast sem gæti endað með öðru kviku­hlaupi eða eld­gosi. Nýtt eld­gos getur haf­ist með stuttum fyr­ir­vara. Uppfært hættu­mat Veð­ur­stofu Íslands tók gildi kl. 13 í dag og verður að öllu óbreyttu end­ur­skoðað þriðju­dag­inn 5. mars kl. 15. Líkleg atburð­ar­rás næstu daga:
Kviku­magn undir Svarts­engi heldur áfram að aukast sem gæti endað með nýju kviku­hlaupi og jafn­vel eld­gosi.
Eldgos gæti haf­ist með mjög stuttum fyr­ir­vara, jafn­vel innan við 30 mín­útur.
Lík­leg­ast er að gos komi upp á svæð­inu milli Stóra-Skóg­fells og Haga­fells.
Á svæði 1 sam­kvæmt hættu­mat­skorti Veð­ur­stof­unnar, starfs­svæðum Bláa Lónsins, Northern Light Inn og HS Orku er talin vera mikil hætta á hraun­rennsli. Lita­kvarði þessa svæðis sýnir tölu­verða hættu. Fram­an­greind starfs­svæði eru í dag varin með varn­ar­görðum. Í Grinda­vík er talin vera mikil hætta á jarð­falli ofan í sprungur, hraun­flæði og sprungu­hreyf­ingum. Grinda­vík er varin varn­ar­görðum en upp­bygg­ingu þeirra er ekki lokið. Lita­kvarði fyrir Grindvík sýnir tölu­verða hættu.

Lög­reglu­stjór­inn á Suð­ur­nesjum hefur tekið þá ákvörðun að hverfa til fyrra horfs hvað varðar aðgengi að fram­an­greindum svæðum og áréttar neð­an­greint.
Rík­is­lög­reglu­stjóri féll frá fyr­ir­mælum um brott­flutn­ing úr Grinda­vík frá og með 19. febr­úar 2024. Ákvörðun rík­is­lög­reglu­stjóra um brott­vísun, með heim­ild í 24. gr. laga um almanna­varnir nr. 82/2008, tók gildi 15. jan­úar sl. og var síðan fram­lengd einu sinni eða þann 4. febr­úar sl.
Með hlið­sjón af fram­an­sögðu ákvað lög­reglu­stjór­inn á Suð­ur­nesjum að heim­ila Grind­vík­ingum og þeim sem starfa Í Grinda­vík að dvelja og starfa í bænum allan sól­ar­hring­inn. Mik­il­vægt er að hafa neð­an­greint í huga.
Íbúar og starfs­menn fari inn í bæinn á eigin ábyrgð. Hver og einn verður að bera ábyrgð á eigin athöfnum eða athafna­leysi. Lög­reglu­stjóri tekur skýrt fram að Grinda­vík er ekki staður fyrir barna­fólk eða börn að leik. Þar eru ekki starf­ræktir skólar og inn­viðir eru í ólestri. Lög­reglu­stjóri mælir ekki með því að fólk dvelji í bænum.

Jarð­sprungur eru víða í og við bæinn og sprungur geta opn­ast án fyr­ir­fara. Hætta er metin tölu­verð á jarð­falli ofan í sprungur og sprungu­hreyf­ingum. Mót­væg­is­að­gerðir eru og hafa verið í gangi sem fel­ast m.a. í kort­lagn­ingu, jarð­könnun, jarð­sjár­mæl­ingum og sjón­skoðun. Þá hafa sprungur verið girtar af.
Opin svæði í og við Grinda­vík hafa ekki verið skoðuð sér­stak­lega. Fólk haldi sig við götur bæj­ar­ins og forð­ist að fara út á lóðir og önnur opin svæði.
Grinda­vík er lokuð öllum öðrum en við­bragðs­að­ilum, íbúum bæj­ar­ins, starfs­mönnum fyr­ir­tækja bæj­ar­ins og þeim sem þurfa að aðstoða íbúa. Fjöl­miðla­fólk hefur heim­ild til að fara inn í bæinn með sama hætti og íbúar og starfs­menn fyr­ir­tækja.

Á starfs­svæði Bláa Lónsins, Northern Light Inn og HS orku er talin mjög mikil hætta á hraun­flæði. Um tíma þrengdi að aðkomu­leiðum þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og lok­aði leið­inni inn að Bláa Lóninu, Northern Light Inn og HS orku. Lagður var vegur yfir ný runnið hraunið og aðkoma um Grinda­vík­ur­veg opnuð að nýju.
Enn eru hættur á svæð­inu í kjöl­far eld­goss við Stóra Skógfell og aðstæður innan og utan hættu­svæða geta breyst með litlum fyr­ir­vara. Þá geta hættur leynst utan merktra svæða. Land rís í Svarts­engi og merki eru um að það stytt­ist í næsta gos vegna þeirrar kviku sem safn­ast nú saman undir Svarts­engi.
Lok­un­ar­póstar eru við Bláa­lóns­veg, Nesveg og Suð­ur­strand­ar­veg. Þá er ekki hægt að aka Grinda­vík­ur­veg inn til Grinda­víkur þar sem hraun rann yfir þjóð­veg­inn í eld­gos­inu 14. jan­úar sl.

Til að vekja athygli fólks á aðsteðj­andi hættum hafa verið settar upp þrjár við­vör­un­arflautur í Grinda­vík. Þá er ein slík við Bláa lónið og önnur við HS orku í Svarts­engi. Í gær voru þær not­aðar við rým­ingu með góðum árangri.

Fáir Grind­vík­ingar kjósa að dvelja í bænum næt­ur­langt. Þeim er það heim­ilt en lög­reglu­stjóri mælir ekki með því. Lög­reglu­stjóri bendir á að lík­legt er að það stytt­ist í næsta gos og biður fólk um að taka til­lit til þess. Fyr­ir­vari vegna næsta eld­goss gæti orðið mjög stuttur.

Ef horft er til fyrri eld­gosa á svæð­inu gæti nýtt eld­gos haf­ist með skömmum fyr­ir­vara, innan við 30 mín­útur, allt eftir því hvar kvika kemur upp. Ekki er hægt að úti­loka að gos komi upp inn í Grinda­vík þótt það telj­ist ólík­legt. Bláa Lónið og Northern Light Inn eru inn á skil­greindu hættu­svæði Veð­ur­stofu Íslands þar sem talin er tölu­verð hætta á nátt­úru­ham­förum og sér­stak­lega nefnt að mikil hætta er á hraun­rennsli. Það er til marks um stöð­una á þessu svæði að það hefur þurft að rýma svæðið, nú síð­ast í gær­dag.
Við­bragðs­að­ilar eru við störf í Grinda­vík og lög­regla sinnir lög­bundnu eft­ir­liti í bænum eins og verið hefur.

Gagn­legar upp­lýs­ingar eru á heima­síðu Grinda­vík­ur­bæjar á slóð­inni https://grindavik.is/ þá er bent á heima­síðu Veð­ur­stofu Íslands á slóð­inni www.vedur.is og heima­síðu almanna­varna á slóð­inni www.almannavarnir.is
Með vísan til 23. gr. laga um almanna­varnir nr. 88/2008 eru tak­mark­anir ekki aðrar en að framan greinir.

Fram­an­greint fyr­ir­komu­lag tekur gildi kl 16 í dag og verður tekið til end­ur­skoð­unar sunnu­dag­inn 10. mars 2024 eða fyrr eftir atvikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við