Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Lokað fyrir athugasemdir á síðu Baldurs og Felix: „Homophobian þarna inni er algjör drullupollur“

Lokað fyrir athugasemdir á síðu Baldurs og Felix: „Homophobian þarna inni er algjör drullupollur“
Baldur og Felix

Lokað hefur verið fyrir athuga­semdir á stuðn­ings­síðu Baldurs Þór­halls­sonar og Felix Bergs­sonar á sam­fé­lags­miðl­inum Facebook.

„Ég sem kann eig­in­lega ekki á þetta dót hérna. Það hefur aðeins borið á því að ljótir póstar hafa dúkkað hér upp. Því langar mig að tak­marka hóp­inn þannig að ein­ungis með­limir geti sett inn pósta en finn bara ekki út úr því.

Þangað til ég fæ hjálp við að finna út úr þessu þá langar mig að biðja ykkur að skjóta skíta­dreifar­ana niður með ást og kímni. EKKI fara að ríf­ast við þetta fólk,“ skrifar Gunnar Helgason, leik­ari, rit­höf­undur og stofn­andi hóps­ins.

Fregnir og skjá­skot af ummælum á síðu hóps­ins hafa ratað víða. Margan blöskrar orð­ræðan sem þar skap­að­ist.

Á sam­fé­lags­miðl­inum X, fyrrum Twitter, segir Ólöf Tara um hóp­inn:

„Var boðið í hóp sem styður Baldur og Felix til for­seta­fram­boðs. Ég rata út, ógeðis orð­ræðan og homoph­obian þarna inni er algjör drullu­pollur. Inter­netið er ekki hægt.“

„Ef þetta áger­ist, eins og mín ekta frú ótt­ast, fer ég að eyða þessum póstum. En ég vil ekki gera það eins og sakir standa. Þetta eru örfá grey sem eru að pirra okkur, það er allt og sumt,“ segir Gunnar að end­ingu.

Tæp þrettánþúsund skráðir

„Ókei!

Þetta hefur aldeilis sprungið út!
Ég von­að­ist eftir kannski svona 1000 með­limum í þennan hóp en á tæpum sól­ar­hring erum við komin næstum í 12.000 með­limi sem er alger­lega stór­kost­legt,“ skrifar Gunnar Helgason. Þegar fréttin er rituð telja með­limir hóps­ins 12.900 manns.

Gunnar segir Baldur vel finna fyrir press­unni. Hann von­ast eftir til­kynn­ingu frá Baldri á næstu dögum eða vikum, en sýnir þó skiln­ing á að skrefið í átt að for­seta­fram­boði sé stórt.

„Í fyrsta lagi útset­urðu þig fyrir ljótum ummælum. Líf þitt er grand­skoðað og eld­gamlir rusl­póstar dregnir upp úr dimm­ustu afkimum alnets­ins. Ekki hef ég þó áhyggjur að þeir póstar séu til frá Baldri. Alls ekki,“ ritar Gunnar Helgason.

Áskorun til Baldurs

Í lýs­ingu hóps­ins segir:

„Áskorun til Baldurs og Felix.

Ég vil fá Baldur Þór­halls­son sem næsta for­seta Íslands.
Þess vegna skora ég á hann að bjóða sig fram og hér er hvers vegna:
Á allri jarð­ar­kringl­unni finnst engin mann­eskja sem er meiri sér­fræð­ingur í stöðu og rétt­indum smá­ríkja í heim­inum en Baldur. Hann er mað­ur­inn sem leitað er til þegar fjalla á um þetta mál­efni. Í sam­tölum mínum við hann í gegnum tíð­ina veit ég líka að hann hefur skýra sýn á for­seta­emb­ættið. Hann er af lands­byggð­inni og hefur byggt upp heila fræði­grein frá grunni sem er nú kennd í háskólum víða um heim. Alltaf þegar hann talar leggur fólk við hlustir því við vitum að þegar gerir það hefur hann ígrundað málið vel og skoðað það frá öllum hliðum. Heil­steyptur, sannur, rétt­sýnn og fram­úr­skar­andi gáf­aður maður.
Það er ekki til betri maður í djobbið.
Og ekki skemmir hvað hann er vel giftur. Felix Bergsson þekki ég betur en flestir aðrir. Ég þekki enga mann­eskju sem er rétt­sýnni, skemmti­legri, víð­sýnni, hlý­legri og heil­steypt­ari – nema kannski Baldur Þór­halls­son.
Saman eru þeir sann­kallað ofurpar. Auk þess þekkja þeir það vel, af eigin raun, hvað það er að berj­ast fyrir mann­rétt­indum og eru í gríð­ar­lega góðum tengslum við land og þjóð.
Þeir verða for­setapar sem þjóðin getur verið stolt af.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina