Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ástþór vill fangelsa Davíð Oddsson: „Þetta er þátttaka í fjöldamorði“

Ástþór vill fangelsa Davíð Oddsson: „Þetta er þátttaka í fjöldamorði“
Ástþór Magn­ús­son Mynd: YouTube-skjáskot

Í nýjasta þætti Alkasts­ins sett­ust þeir Arnór Jónsson og Gunnar Wiium niður með hinum frið­elsk­andi for­seta­fram­bjóð­anda Ástþóri Magn­ús­syni. 

Ástþór, sem efn­að­ist fyrir um 30 árum síðan á rekstri tölvu­fyr­ir­tækja, fékk vitrun eða sýn þar sem hann átt­aði sig á skertri sam­kennd við­skipta­heims­ins og út frá þeirri sýn tók hann ákvörðun um að helga líf sitt bar­áttu fyrir friði á jörðu. Hann stofn­aði frið­ar­sam­tökin Frið 2000 á sínum tíma og vöktu sam­tökin mikið umtal og mikla athygli fyrir um tutt­ugu árum síðan. Hann hefur ítrekað boðið sig fram til for­seta­emb­ættis síðan og þá með það að leið­ar­ljósi að virkja emb­ættið til friðar og sáttar í heim­inum. Hann er knúin áfram af sýn sem segir að Ísland verði mið­punktur friðar á jörðu og skapi þannig for­dæmi fyrir við­leitni sem hann vill meina að sé í und­an­haldi í alþjóða sam­skiptum. 

Frið­ar­sam­tökin Friður 2000 stóðu fyrir gjörn­ingum sem fólu í sér að flogið var á átaka­svæði með gjafir sem vott um náunga­kær­leik og lýsir hann atburð­ar­rás þar sem þeir í seinna skiptið voru stöðv­aðir af lög­reglu á miðri flug­braut á leið sinni í annað skiptið til Íraks með mörg tonn af gjöfum frá íslenskum börnum til stríðs­hrjáðra íra­skra barna. Hann veit ekki hvaðan sú skipum kom frá en flug­vélin var stöðvuð nán­ast í flug­taki og ferðin ekki farin.

Handtekinn

Ástþór segir í við­tal­inu frá því er hann var hand­tek­inn og hótað 16 ára fang­els­is­dómi.

„Íslenskir ráða­menn, utan­rík­is­ráð­herra og for­sæt­is­ráð­herrar voru á Nató-fundi í Prag og lof­uðu þar að lána íslenskar flug­vélar til að flytja vopn og her­menn fyrir Bush í þessu Íraks­stríði. Og þá sendi ég út tölvu­póst á allar skrif­stofur flug­fé­lag­anna og allar opin­berar stofn­anir hér, að við það að gera þetta, þá breytið þið þessum flug­fé­lögum úr því að vera borg­ara­leg tæki yfir í það að verða partur af her­vél­inni og þá eru þær orðnar lög­leg skot­mörk, hvar sem þær finn­ast í heim­inum, hins aðil­ans. Þetta stendur bara í þessum reglum um stríðs­rekstur. Eftir nokkrar klukku­stundir var ég kom­inn í fang­elsi. Og mér hótað 16 ára fang­elsi ef ég myndi ekki draga þessi orð mín til baka. Hér á Íslandi. Ég var á veit­inga­stað úti í bæ og bara tek­inn þar. Ég mátti ekki einu sinni láta fólkið vita sem ég var með. Það kom ein­hver maður sem spurði hvort hann mætti aðeins tala við mig. Svo var ég bara far­inn, mátti ekki láta fólkið vita, ég bara hvarf. Mér var sagt það seinna af lög­reglu­manni að skipun um að láta hand­taka mig hafi komið úr for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Davíð Oddsson var for­sæt­is­ráð­herra.“

Vill Davíð í fangelsi

Gunnar spyr hann af hverju hann haldi að Halldór Ásgríms­son, heit­inn og Davíð Oddson sem þá skrif­uðu undir stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu við inn­rás­ina í Írak, skuli aldrei hafa verið dregnir til saka eða ábyrgðar þar sem stríðið var háð á fölskum for­sendum. Ástþór vill meina að hinar fölsku for­sendur hafi alltaf legið ljósar fyrir, meira að segja þegar umræddir emb­ætt­is­menn skrif­uðu undir fyrir hönd þjóð­ar­innar og án nokk­urnar atkvæða­greiðslu á þingi. Ástþór finnst það hneisa og skandall að engin skuli sæta ábyrgð fyrir að hafa vís­vít­andi tekið þátt í þess­ari inn­rás sem hann segir að hafi í raun bara verið fjöldamorð. „Þeir eiga nátt­úru­lega að vera í fang­elsi,“ sagði Ástþór og átti þá senni­lega bara við Davíð Oddsson, þar sem Halldór Ásgríms­son lést árið 2015. Og hann hélt áfram. „Að sjálf­sögðu. Þetta er fjöldamorð, þátt­taka í fjöldamorði. Og gjör­sam­lega ólög­legt. Og auð­vitað eiga þeir sem studdu þetta að vera í fang­elsi. Þeir eiga að svara fyrir þetta, að sjálf­sögðu. Það er auð­vitað algjör­lega ótækt að stjórn­mála­menn geti gert svona, gefið út skipun með ein­hverju penna­striki, að myrða jafn­vel milljón manns og þeir þurfa ekk­ert að svara fyrir það.“

Julian Assange

Ástþór var spurður hvernig hann myndi beita sér sem for­seti ef hann sæti nú á tímum rétt­ar­halda Julian Assange í London sem merki­lega lítið er fjallað um í fjöl­miðlum. Ástþór sagði þetta mál allt vera skandal því Assange sem setið hefur í fang­elsi síð­ast liðin ár hafi í raun ekki gert neitt af sér annað en að birta sönn­un­ar­gögn um stríð­glæpi Banda­ríkja­hers og meira að segja hafi ekki bara sá sem lak gögn­unum í Assange á sínum tíma verið dæmdur fyrir lekan heldur hafi þeir her­menn sem komu þarna fram með morðum á sak­lausum borg­urum einnig verið dæmdir. Hann vill meina að ef hann sæti í emb­ætti myndi hann berj­ast fyrir því að Assange yrði veittur íslenskur rík­is­borg­ara­réttur. 

Ástþór segir að hvað hann per­sónu­lega varðar þá sé og alltaf hafi verið hjólað í mann­inn á kostnað mál­stað­ar­ins sem hann seg­ist standa fyrir. Í raun seg­ist hann ekk­ert endi­lega vilja vera for­seti og væri klár­lega til­búin ef ein­hver annar myndi taka það að sér svo lengi sem emb­ættið yrði virkt til frið­ar­um­leit­inga, hann vill meina að það sé það eina sem hann sæk­ist eftir og því ekki á hött­unum eftir per­sónu­legri vel­gengni heldur sæk­ist hann bara eftir að gera rétt og tala fyrir frið og hvar ann­ar­staðar en í emb­ætti for­seta er það besti vett­fang­ur­inn. Hann segir að vinnan í höndum frið­ar­sam­taka einu og sér skili nán­ast engu og því mik­il­vægt að mál­stað­ur­inn fái öfl­ugt „plat­form“ þar sem athygli sé á vakin með hjálp fjöl­miðla og að hægt sé að hafa áhrif á þing­heim, emb­ætt­is­menn og við­skipta­líf frá Bessatöðum. 

Þáttinn í heild sinni má einnig finna á öllum helstu streym­isveitum eins og Youtube og Spotify. Þá má horfa á hann hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina