Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Anna dáist að skipsbrotsmönnum Óttars: „Kenna okkur svo mikla sögu um afrek fólks sem lifði af“

Anna dáist að skipsbrotsmönnum Óttars: „Kenna okkur svo mikla sögu um afrek fólks sem lifði af“
Anna Krist­jáns­dóttir

Anna Krist­jáns­dóttir skrifar um þætti Óttars Sveins­sonar um sjó­slys við Ísland og um mik­il­vægi frá­sagna skips­brots­manna af þessum slysum, í nýj­ustu dag­bók­ar­færslu sinni.

Dag­bók­ar­færsla Önnu Krist­jáns­dóttur, Tenerife-búa, fjallar í dag um þætti Óttars Sveins­sonar sem hún hefur verið að horfa á að und­an­förnu. Þætt­irnir fjalla um hin ýmsu sjó­slys sem Óttar hefur skrifað um í Útkalls bókum sínum í gegnum tíð­ina. Þar tekur Óttar við­töl við þá sem lifðu slysin af og veitir inn­sýn inn í þær hræði­legu lífs­reynslur. Dáist Anna að Óttari fyrir þætt­ina.

„Dagur 1669 – Þögn.

Und­an­farna daga hefi ég verið að horfa og hlusta á þætti Óttars Sveins­sonar um hin ýmsu sjó­slys og hvernig þau höfðu áhrif á menn. Vitandi það að hann fékk einn skip­verja til að tjá sig um sína hræði­legu lífs­reynslu þegar Suð­ur­landið fórst á aðfanga­dags­kvöld jóla árið 1986 fyrir bók­ina „Útkall á jóla­nótt í Atl­ants­hafi“, get ég ekki annað en dáðst að Óttari fyrir þá þraut­segju hans að fá fólk til að tjá sig um hræði­leg­ustu stundir lífs síns. Annar skip­verji af Suð­ur­land­inu sem var í Stýri­manna­skól­anum og skrapp örstuttan jóla­túr á Suð­ur­land­inu þessi sömu jól og sem bjarg­að­ist naum­lega ásamt og fjórum öðrum eftir hrakn­inga í hrip­lekum gúmmí­björg­un­ar­bát í marga klukku­tíma á jóla­nótt.“

Anna, sem sjálf er vél­stjóri segir mann sem aldrei vildi segja frá sinni reynslu, hafi skyndi­lega birst í þætti Óttars. „Sá hinn seinni hafði aldrei viljað tala um þessa hræði­legu lífs­reynslu og sjálf virti ég það við hann og gekk aldrei á hann að segja frá þessu sjó­slysi. Skyndi­lega birt­ist hann í Útkalls­þætti á Vísi.is og tjáði sig um þessa örlaga­ríku nótt og bar­átt­una fyrir að halda lífi í nán­ast von­lausum aðstæðum uns þeim var bjargað með hjálp þyrlu frá danska varð­skip­inu Vædderen. Loksins fengum við að heyra sögu fleiri en ein­ungis eins af Suð­ur­land­inu. Sögur þess­ara skip­brots­manna eru okkur hinum svo verð­mætar og kenna okkur svo mikla sögu um afrek fólks sem lifði af.“

Í dag­bók­ar­færsl­unni talar Anna einnig um mik­il­vægi þess að byrgja ekki til­finn­ingar sínar um slík afrek að lifa af sjó­slys, inni. „Við höfum heyrt um ótrú­leg afrek fólks sem lifði af hræði­leg sjó­slys, en þar sem við­kom­andi loka allt inni í sínum eigin til­finn­ingum. Við vitum um Hellisey sem fórst nærri Vest­manna­eyjum og þar sem einn skip­verj­inn náði synd­andi í land. Við vitum einnig um togar­ann Hallgrím hvar einn lifði af og var fleiri klukku­tíma í sjónum áður en honum var bjargað. Hvorugur þess­ara hetja vill tjá sig um lífs­reynslu sína síðar meir, enda veit ég ekki til þess að þeir hafi fengið áfalla­hjálp eftir slysin.“

Að lokum segir Anna frá hjónum sem komu á bar­inn sem hún var á í gær­kvöldi en eig­in­mað­ur­inn reynd­ist hafa verið skip­verji á Dís­ar­fell­inu þegar það fórst árið 1997. „Þar við sátum á barnum og leystum lífs­gát­una á fimmtu­dags­kvöldi og ég var með pistil morg­un­dags­ins í hug­anum, komu hjón ein á bar­inn, hvar eig­in­mað­ur­inn var skip­verji á Dís­ar­fell­inu er það fórst í mars árið 1997. Hann fuss­aði og svei­aði er ég nefndi pistil morg­un­dags­ins, það er dags­ins í dag og vildi alls ekki tala um þá hræði­legu lífs­reynslu. Mér finnst það miður, því með sam­tali og sál­rænum stuðn­ingi er hægt að leysa vanda­málin sem menn hafa lokað innra með sér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina