Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Meinað að kjósa í rússnesku forsetakosningunum í Reykjavík: „Ég er lögin hér“

Meinað að kjósa í rússnesku forsetakosningunum í Reykjavík: „Ég er lögin hér“
Fjöldi manns mætti klukkan 12 til að kjósa. Mynd: Aðsend

Rússnesk kona sem búið hefur á Íslandi í 20 ár, fékk ekki að kjósa í for­seta­kosn­ingum um helg­ina hjá ræð­is­skrifs­stofu Rúss­lands í Reykja­vík.

Lada Cherkasova-Jónsson, sem búið hefur á Íslandi í um 20 ár, er gift íslenskum manni og er bæði rúss­neskur og íslenskur rík­is­borg­ari, segir farir sínar ekki sléttar eftir að hafa reynt að kjósa í for­seta­kosn­ing­unum í Rúss­landi, í ræð­is­skrifs­stofu Rúss­lands í Reykja­vík. Var henni ein­fald­lega neitað að kjósa.

Ekkja Alexey Navalny, Yulia, bað stuðn­ings­fólk hans að mót­mæla Vladimir Putin á frið­sam­legan hátt með því að mæta á kosn­inga­skrif­stofur klukkan 12 á sunnu­degi, alls staðar í heim­inum og hlýddi fjöld­inn allur af fólki kall­inu. Þar á meðal í Reykja­vík. Löng röð mynd­að­ist við ræð­is­skrif­stofu Rúss­lands er fólk streymdi að til að kjósa klukkan 12 á hádegi í gær. Ein þeirra, Lada Cherkasova-Jónsson, seg­ist í sam­tali við Mannlíf, ekki hafa fengið að kjósa, vegna þess að vega­bréf hennar var útrunnið en sam­kvæmt rúss­neskum lögum má fólk kjósa þrátt fyrir útrunnið vega­bréf, enda missir fólk ekki rík­is­borg­ara­rétt sitt þó vega­bréfið renni út. „Það sem gerð­ist í gær. Ég veit að rúss­nesk yfir­völd eru algjör­lega blygð­un­ar­laus en þetta keyrði um þver­bak,“ sagði Lada í sam­tali við Mannlíf. Og hélt áfram. „Ég ætl­aði í fyrstu ekki að mæta en ákvað svo að sína stuðn­ing og mæta [á slag­inu 12 eins og ekkja Navalny bað um – inn­skot blaðam.]. Ég bað eig­in­mann minn um að koma með, ef ske kynni að eitt­hvað myndi ger­ast.“

Í Rúss­landi hefur fólk tvö vega­bréf, eitt til að nota inn­an­lands og annað til að ferð­ast utan­lands. Inn­an­lands­vega­bréfið þarf að end­ur­nýja með nokkuð löngu milli­bili. Lada átti að end­ur­nýja sitt við 45 ára ald­ur­inn en hefur ekki farið til Rúss­lands frá því að stríðið hófst og hefur því ekki látið end­ur­nýja það. Samkvæmt rúss­neskum lögum má fólk kjósa þó inn­an­lands­vega­bréfið sé útrunnið, fólk þarf bara að end­ur­nýja það næsta þegar það kemur til lands­ins, búi það erlendis. Bæði vega­bréf Lödu eru útrunnin.

Þegar Lada mætti á ræð­is­skrif­stof­una í Reykja­vík í gær spurði hún starfs­menn þar hvort hún mætti ekki örugg­lega kjósa, þó vega­bréfið væri útrunnið en hún skildi inn­an­lands­vega­bréfið eftir heima enda á það ekki að þurfa svo hægt sé að kjósa. „Þeir sögðu bara nei. Þannig að við kíktum á inter­netið og fórum á síðu sem sýnir lögin í Rúss­landi og þar kemur fram að hæsti­réttur Rúss­lands leyfir fólki að kjósa þó að vega­bréfið sé útrunnið.“ Aðeins var einum kjós­anda hleypt inn í einu þannig að Lada bank­aði á dyrnar og þegar starfs­menn opn­uðu dyrnar spurði hún þá á hvaða grund­velli þeir væru að neita henni um að kjósa. „Ég er með vega­bréfið, jú það er útrunnið en ég er ennþá rúss­neskur rík­is­borg­ari. Þeir sögðu bara að ég mætti ekki kjósa en ég sýndi þeim vef­síð­una með rúss­nesku lög­unum en einn starfs­mann­anna sagði við hana: „Það skiptir engu máli hvað þú lest á inter­net­inu“. Ég sagði þeim að kíkja á þessi rúss­nesku lög. Þeir sögðu mér að bíða og lok­uðu dyr­unum. Hálftíma seinna opn­uðu þeir dyrnar og sögðu að ég mætti ekki kjósa. Ég sagð­ist vita það en að ég þyrfti að vita af hverju ég mætti það ekki. Að ég þyrfti að sjá laga­bók­staf­inn sem bann­aði mér að kjósa. Þeir lok­uðu hurð­inni aftur og annar hálf­tími leið. Þá opn­aði maður dyrnar, sem leit ekki út fyrir að vera ræð­is­maður, hann leit frekar út eins og dul­bú­inn lög­reglu­maður og sagði mér að koma inn. Hann leyfði mér ekki að taka sím­ann með eða neitt, þannig að ég gat ekki tekið þetta upp. Hann sagði mér að sýna sér vega­bréfið og spurði svo hvar inn­an­lands­vega­bréfið væri.“ Lada sagði mann­inum að hún hefði skilið það eftir heima, enda hafi henni ekki dottið í hug að hún þyrfti þess vegna þess að hún væri rúss­neskur rík­is­borg­ari. Sagði hann að hún hefði ekki sannað að hún væri það og fengi ekki að kjósa. „Ég spurði hann hvað hann meinti,“ sagði Lada og hélt áfram. „Ég er með vega­bréf og þó að það sé útrunnið, þýðir það ekki að ég hafi misst rík­is­borg­ara­rétt minn. Þá sagði hann að þar sem inn­an­lands­vega­bréfið væri líka útrunnið mætti ég ekki kjósa. Ég sagði honum að það telj­ist ekki útrunnið fyrr en ég kem næst til Rúss­lands en þá hef ég 90 daga til að end­ur­nýja það. Þetta væru lögin. Hann sagð­ist vera sama um lögin. Ég ákveð hlut­ina hér. Þú munt ekki kjósa. Ég er lögin hér.“

Lada segir að mað­ur­inn hafi svo tekið vega­bréfið og skrifað eitt­hvað niður upp úr því og svo skilað því. Grunar hún að mað­ur­inn hafi notað nafn hennar svo til að kjósa Vladimir Putin. „Ég er alveg viss um að ef ég hefði komið að kjósa á ein­hverjum öðrum tíma, á öðrum degi, þá hefði ég fengið að kjósa,“ sagði Lada að lokum við Mannlíf og sagð­ist vita um eina aðra konu sem ekki fékk að kjósa, vegna útrunn­ins vega­bréfs.

Ekki náð­ist í ræð­is­mann Rúss­lands við gerð frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina