Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Einkaþota kyrrsett á Egilsstaðaflugvelli – Ekki talin lofthæf

Einkaþota kyrrsett á Egilsstaðaflugvelli – Ekki talin lofthæf

Í vik­unni kyrr­setti Sam­göngu­stofa erlenda einka­þotu á Egils­staða­flug­velli, þar sem hún var ekki talin loft­hæf en áætlað var að fljúga vél­inni úr landi.

Samkvæmt Aust­ur­frétt kom flug­vélin til Horna­fjarðar frá Evrópu í lok ágúst í fyrra og stóð þar þar til á mið­viku­dag. Aust­ur­frétt sendi fyr­ir­spurn til Sam­göngu­stofu um málið en í svari stofn­un­ar­innar kemur fram að flug­stjóri vél­ar­innar hafi óskað eftir að fá að fljúga henni til Bret­lands frá Höfn. Spánn var svo loka­á­fanga­stað­ur­inn með elds­neyt­is­stoppum á leið­inni.

Þar sem Horna­fjarð­ar­flug­völlur er ekki gildur milli­landa­flug­völlur þarf und­an­þágu fyrir slíku flugi en beiðn­inni var hafnað vegna þess að rök­stuðn­ing­ur­inn þótti ekki nægj­an­legur. Kaus þá flug­stjór­inn að fljúga vél­inni til Egils­staða en Sam­göngu­stofa hafði ekki gefið leyfi fyrir því.

Ekki vildi betur til en svo að við lend­ingu á Egils­staða­flug­velli sprakk á vinstra aðal­hjóli vél­ar­innar. Í um tvo klukku­stundir var vélin stopp á flug­braut­inn, á meðan henni var komið út af og var því brautin lokuð á meðan. Ekki hafði lok­unin þó áhrif á áætl­un­ar­flug sam­kvæmt Aust­ur­frétt. Var atvikið til­kynnt til Rann­sókn­ar­nefndar sam­gönguslysa. Fengust þær upp­lýs­ingar frá nefnd­inni að þar sem afleið­ing­arnar hefðu ekki verið alvar­legri teld­ist ekki um rann­sókn­ar­efni að ræða, heldur flug­at­vik.

Eft­ir­lits­menn voru sendir austur eftir að Sam­göngu­stofa fékk ábend­ingu um að ástand flug­vél­ar­innar væri ekki ásætt­an­legt, eftir að hún fór frá Horna­firði. Fundu þeir meira athuga­vert við vél­ina en sprungna dekkið, meðal ann­ars það að hún hafði ekki loft­hæfi. Var því ástand hennar metið óásætt­an­legt og hún í kjöl­farið kyrr­sett.

Flug­vélin hefur verið skráð í Portúgal en hún ber ein­kenn­is­staf­ina CS-DOQ en hún er af gerð­inni Cessna 551 Citation II/SP og er smíðuð árið 1979. Hún tekur átta far­þega.

Flug­mála­yf­ir­völd í Portúgal vinnur með Sam­göngu­stofu að úrlausn máls­ins en stofn­unin hóf á mið­viku­dag hlað­skoðun á vél­inni, en það er umfangs­mikil örygg­is­út­tekt gerð eftir sam­evr­ópskum reglum og er skráð í mið­lægan gagna­grunn. Hefur lög­regl­unni á Aust­ur­landi verið til­kynnt um málið. Fram kemur í frétt Aust­ur­fréttar að vélin sé skráð í einka­eigu, sam­kvæmt flug­síðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil