Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Gary Barlow er enn reiður vegna andláts dóttur hans: „Ég hef ekki fundið frið með það ennþá“

Gary Barlow er enn reiður vegna andláts dóttur hans: „Ég hef ekki fundið frið með það ennþá“
Gary Barlow

Gary Barlow er enn „reiður“ vegna and­láts dóttur hans Poppy og við­ur­kennir að eiga enn erfitt með að finna „frið“, 12 árum síðar.

Hinn 53 ára söngv­ari og eig­in­kona hans Dawn eign­uð­ust stitt fjórða barn þegar Poppy kom í heim­inn í ágúst 2012 en því miður fædd­ist hún and­vana. Aðeins örfáum dögum síðar átti Gary að koma fram með Take That í loka­at­höfn­inni á Olymp­íu­leik­unum í London. Söngv­ar­inn tal­aði nýverið um miss­inn en hann seg­ist aldrei hafa í raun náð að vinna úr missi stúlkunnar sinnar og að hann finni enn fyrir bit­ur­leika vegna þess að þetta hafi komið fyrir fjöl­skyldu hans.

Gary segir: „Ég tala ekki um þetta í smá­at­riðum og ég geri það ekki vegna þess að ég er bók­staf­lega enn að átta mig svo­lítið á þessu. Til­finn­ingar kon­unnar minnar voru allt aðrar en mínar. Ég hef verið reiður í langan tíma, ég hef ekki fundið frið með það ennþá.“

Gary ótt­að­ist að and­lát Poppy gæti leitt til þess að hann og Dawn myndu skilja, þar sem mörg pör sem hafa upp­lifað slíkan missi geta ekki unnið úr því. En í raun­inni urðu Back for Good laga­höf­und­ur­inn og fyrr­ver­andi dans­ar­inn Dawn, sem saman eiga þrjú önnu börn, Daniel, Emily og Daisy, nán­ari sem par.

Gary og Dawn

Í við­tali í The Imperfects hlað­varp­inu, þar sem fólk deilir bar­áttu sinni  og ófull­kom­leika á hug­rakk­ann hátt, sagði Gary: „Töl­fræðin vakti hjá okkur áhyggjur þegar þetta gerð­ist fyrir okkur. Eitthvað um 95 pró­sent para hætta saman þegar eitt­hvað slíkt kemur fyrir þau. Ég held að það sé vegna þess að karlar takast á við þetta öðru­vísi en konur. Konan mín stendur sig miklu betur en ég, hún er miklu sterk­ari mann­eskja en ég. Hún hefur í raun verið ótrú­leg í gegnum þetta.“

„Við erum eitt af heppnu pör­unum því fyrir okkur hefur þetta fært okkur sífellt nær og við eigum líka fjögur önnur börn og það hefur hjálpað okkur. Það yngsta varð ekki fyrir áhrifum vegna and­láts­ins en þau eldri tala enn mikið um þetta. Þetta er mjög flók­inn hlutur sem ekk­ert okkar ætti nokkurn tíma að þurfa að ganga í gegnum. Ég býst við að þetta hafi gert mig sterk­ari, ég held það. Ég held að svona hlutir verði að gera það, er það ekki? Það kom augna­blik þar sem ég velti fyrir mér hvort við kæmust ein­hvern tíma aftur þangað sem við vorum áður en ég held við séum komin þangað.“

Gary við­ur­kennir að hafa fundið huggun í tón­list sinni og í hvert skipti sem hann komi fram með Take That hugsi hann um Poppy. Tón­list­ar­mað­ur­inn, sem samdi lagið Let Me Go í minn­ingu Poppy sagði í hlað­varp­inu: „Fyrir mig er besta leiðin venju­lega sú að tala ekki um erf­ið­leik­ana, heldur skapa tón­list.“

„Ég er með fullt af tón­list sem heldur henni á lífi fyrir mig á kvöldin. Þegar ég sé áhorf­endur syngja með, það er lífið fyrir mig, það er það sem hún kom með og það er hérna fyrir framan mig og ger­ist nokkrum sinnum í viku á svið­inu og þannig held ég henni nálægt mér. Konan mín hefur aðra tækni sem hún notar.“

Gary heiðr­aði Dawn, maka sinn til 24 ára og lýsti henni sem hinni mögn­uð­ustu konu og stöð­ugum stuðn­ingi í lífi hans. „Hún er mjög sér­stök, virki­lega sér­stök. Hún er mamma sem hlustar ekki á neitt bull. Hún ól börnin okkar upp, ekki ég. Ég vinn vinnu sem tekur yfir allt, ég ferð­ast um allan heim, hún gaf vinn­una sína upp á bát­inn til að ala börnin okkar upp. Lagði sína drauma á hill­una en ég fæ enn að lifa mína. Hún hefur staðið sig frá­bær­lega, allir sem hitta börnin okkar tala alltaf um hvað þau eru frá­bær. Hún er ynd­is­leg kona, hún er frekar hörð við mig, ég verð að vera heið­ar­legur með það.“

Fréttin er unnin upp úr frétt Mirror.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu