Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Halla Hrund býður sig fram til forseta Íslands

Halla Hrund býður sig fram til forseta Íslands
Halla Hrund Mynd: Aðsend

Halla Hrund Loga­dóttir orku­mála­stjóri og aðjúnkt við Harvard háskóla gefur kost á sér til emb­ættis for­seta Íslands í for­seta­kosn­ing­unum sem fram fara þann 1. júní nk. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Höllu.

Eft­ir­far­andi frétta­til­kynn­ing barst fjöl­miðlum rétt í þessu:

Halla Hrund er fædd í Reykja­vík 12. mars 1981. Eig­in­maður hennar er Kristján Freyr Krist­jáns­son, fram­kvæmda­stjóri og með­stofn­andi hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­is­ins 50skills. Þau eiga tvær dætur, Hildi Kristínu, 11 ára, og Sögu Frið­gerði, 4 ára. 

Halla Hrund er með BA gráðu í stjórn­mála­fræði frá Háskóla Íslands, meistara­gráðu í alþjóða­sam­vinnu með áherslu á hag­fræði og orku­mál frá The Fletcher School við Tufts háskóla, og meistara­gráðu í opin­berri stjórn­sýslu frá Harvard háskóla með áherslu á umhverfis- og orku­mál.

Halla Hrund var skipuð orku­mála­stjóri árið 2021, fyrst kvenna. Hún starfar jafn­framt sem aðjúnkt við Harvard þar sem hún kennir á meist­ara­stigi. Frá árinu 2017 hafði hún starfað sem með­stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri við mið­stöð Norð­ur­slóða, Arctic Ini­ti­ative, við Harvard. Árið 2019 var Halla Hrund valin Young Global Leader og kom Halla Hrund að kort­lagn­ingu breyt­inga­þátta Norð­ur­slóða á vett­vangi World Economic Forum. Frá árinu 2015-2021 vann  Halla Hrund að nýsköp­un­ar­verk­efn­inu Arctic Innovation Lab í sam­vinnu við fjölda háskóla og var leið­bein­andi í ýmsum orku­tengdum nýsköp­un­ar­hröðlum. 

Halla Hrund hefur setið í stjórn Orku­sjóðs frá árinu 2015. Sama ár hóf hún störf sem stunda­kenn­ari við Háskól­ann í Reykja­vík (HR), þar sem hún kennir nám­skeið um stefnu­mótun á sviði orku­mála með áherslu á lofts­lags­mál. Halla Hrund var fram­kvæmda­stjóri Iceland School of Energy við HR frá árinu 2013 fram til árs­ins 2016. Árin 2011 til 2013 var Halla Hrund for­stöðu­maður alþjóða­þró­unar við HR. 

Fyrst eftir útskrift úr stjórn­mála­fræði árið 2005 lá leið Höllu Hrundar til Brussel í Belgíu þar sem hún starf­aði á vegum utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins að menn­ing­ar­málum. Þar hélt hún meðal ann­ars eina stærstu menn­ing­ar­há­tíð sem Ísland hefur haldið erlendis með þátt­töku Þjóð­leik­húss­ins, Íslenska dans­flokks­ins, Iceland Airwaves, Lista­safns Reykja­víkur og fleiri aðila. 

Frá Brussel fór Halla Hrund til Tógó í Vestur-Afríku þar sem hún tók þátt í nýsköp­unar- og kennslu­verk­efni í höf­uð­borg lands­ins, Lomé. Halla Hrund fór síðan til Parísar og vann í nokkra mán­uði hjá OECD, Efnahags- og fram­fara­stofnun Evrópu, áður en hún hélt áfram í námi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

InnlentForsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
InnlentForsetakosningar 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina