Helga Vala Helgadóttir sér einn jákvæðan punkt vegna myndun nýrrar ríkisstjórnar.
Lögmaðurinn og fyrrverandi þingmaðurinn Helga Vala Helgadóttir segist í nýrri Facebook-færslu sjá einn ljósan punkt í sambandi við nýju ríkisstjórnina. Hún er ánægð með að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir sé aftur komin í utanríkisráðuneytið í stað Bjarna Benediktssonar sem að hennar mati stóð sig illa í því ráðuneyti. Þá segist hún hissa á að Vinstri grænir myndu leggjast „svona flatt að afhenda Bjarna forsætis“.
Hér má lesa færsluna:
„Minn jákvæði túkall þrátt fyrir að ég hafi nú bara aldrei séð annað eins rok við myndun einnar ríkisstjórnar.
Ég er ánægð með að Þórdís Kolbrún sé komin aftur í utanríkisráðuneytið. Það var ekkert sérstaklega beisinn tíminn hjá þeim sem leysti hana af síðustu mánuði þar á bæ.Um annað held ég að sé best að hafa fæst orð, nema þó það að á ýmsu öðru átti ég von en að VG legðist svona flatt að afhenda Bjarna forsætis og að Sjallinn myndi treysta framsókn fyrir fjármálunum. En… svo lengist lærið sem lífið … eins og sagt er.“































Athugasemdir