Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Viðskiptaráðuneytið borgaði fyrir flug og gistingu afmælisgesta Valgerðar

Viðskiptaráðuneytið borgaði fyrir flug og gistingu afmælisgesta Valgerðar
Val­gerður Sverr­is­dóttir í afmæl­is­veisl­unni. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Afmæl­is­veisla Val­gerðar Sverr­is­dóttur árið 2000 vakti hneykslan margra en ráðu­neyti hennar borg­aði flug og gist­ingu fyrir starfs­menn ráðu­neyt­is­ins sem mættu í veisl­una.

Fram­sókn­ar­konan Val­gerður Sverr­is­dóttir, þáver­andi iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, hélt upp á fimm­tugs­af­mæli sitt árið 2000 með pompi og prakt norður í Grenivík. Tals­verða hneiksli vakti þegar DV upp­ljóstr­aði um að ráðu­neyti Val­gerðar borg­aði flug og gist­ingu fyrir þá starfs­menn sem þáðu boðið en makar þeirra fengu 50 pró­sent afslátt. Ráðu­neyt­is­stjóri Val­gerðar bar við þeirri vörn að ferðin norður hafi komið í stað­inn fyrir árlega sum­ar­ferð starfs­manna ráðu­neyt­is­ins. Kostaði þetta skatt­greið­endur um 300.000 krónur árið 2000 sem í dag væri 947.530 kr. miðað við verð­lag dags­ins í dag.

Hér má lesa umfjöllun DV um málið:

Afmæl­is­veisla við­skipta­ráð­herra á Grenivík:

Greiddi flug og gist­ingu fyrir afmæl­is­gest­ina

– kom í stað sum­ar­ferðar, segir ráðu­neyt­is­stjóri


Val­gerður Sverr­is­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, bauð öllum starfs­mönnum ráðu­neyta sinna í fimm­tugs­af­mæli sitt á Grenivík um síð­ustu helgi og lét ráðu­neytið borga. Um var að ræða flug og gist­ingu norður á Akureyri og fengu makar starfs­manna 50 pró­senta afslátt. Samkvæmt almennri verð­skrá kost­aði þetta upp­á­tæki ráð­herr­ans skatt­greið­endur um 300 þús­und krónur. í ráðu­neytum Val­gerðar Sverr­is­dóttur starfa 30 manns. „Það voru 14 starfs­menn sem þáðu boðið og 10 makar,“ sagði Þorgeir Örlygs­son, ráðu­neyt­is­stjóri Val­gerðar, í gær. „í stað þess­arar ferðar fellum við niður sum­ar­ferð starfs­manna sem farin hefur verið hér á hverju ári eins og í öðrum ráðu­neytum og reyndar víða í fyr­ir­tækjum úti í bæ þannig að þetta kemur út á eitt,“ sagði Þorgeir Örlygs­son sem neit­aði því spurður hvort ráð­herr­ann hefði boðið fleirum í fimm­tugs­af­mæli sitt á kostnað ráðu­neyt­is­ins. Mikið fjöl­menni var í afmæl­is­veislu Val­gerðar Sverr­is­dóttur á Grenivík og starfs­menn hennar og makar aðeins hluti þess fjölda. Þeir gistu í sveitag­ist­ingu miðja vegu milli Greni­víkur og Akur­eyrar aðfara­nótt síð­ast­lið­ins sunnu­dags að veisiu lok­inni og héldu við svo búið heim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni