Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Tveir bræður Vigfúsar fórust með Bakkavík: „Ég var alltaf með fulla rænu“

Tveir bræður Vigfúsar fórust með Bakkavík: „Ég var alltaf með fulla rænu“
Vigfús Mark­ús­son skip­stjóri.

Vigfús Mark­ús­son ólst upp á Eyr­ar­bakka og þar með í nálægð við sjó­inn og hann hefur aldrei unnið í landi. Hann fór snemma á sjó­inn og var rétt rúm­lega tví­tugur þegar hann og tveir bræður hans voru á Bakkavík ÁR 100 þegar bát­ur­inn fórst í sept­em­ber árið 1983. Báðir bræður hans fór­ust í sjó­slys­inu. Vigfús var kom­inn aftur á sjó­inn um mán­uði síðar og eftir að hafa klárað Stýri­manna­skól­ann hefur hann verið feng­sæll skip­stjóri. Harm­ur­inn er alltaf innra með honum.

Þann 7. sept­em­ber árið 1983 fórst vél­bát­ur­inn Bakkavík ÁR 100 eftir að hafa fengið á sig brot­sjó fyrir utan sundið sem markar inn­sigl­ing­una til Eyr­ar­bakka. Þrír bræður voru um borð; Vigfús, Þórður og Sigfús Mark­ús­synir. Vigfús var „alt mulig mand“, Þórður var skip­stjóri og Sigfús var vél­stjóri. Þeir tveir síð­ar­nefndu áttu bát­inn.

Bakkavík ÁR 100

„Við vorum austur á bugt á snur­voð. Túrinn var búinn og við vorum á leið­inni heim á Eyr­ar­bakka. Þegar við vorum að nálg­ast var Þórður að pæla í að fara bara í Þor­láks­höfn; það var að falla út. En svo hætti hann við og beygði inn á bakk­ann eins og venju­lega. Það var annar búinn að fara rétt á undan okkur inn. Það var ekk­ert að veðri,“ segir Vigús og bætir við að honum hafi liðið illa þegar Þórður ákvað að fara inn og að hann hafi eig­in­lega verið búinn að ákveða að hætta eftir þennan túr. Hann var þá rúm­lega tví­tugur.

Brot reis upp hjá sker­inu Brynka og fór Bakka­víkin á hlið­ina. Síðan kom annað brot á bát­inn og þá fór hann á hvolf og var sokk­inn innan 15 mín­útna.

„Ég var inni í brú þegar þeir komust út, strák­arnir, og þegar maður var að kafa þá lenti maður beint á dekk­inu. Við vorum með auka­björg­un­ar­bát, sem þurfti ekki á þessu bátum, og hann blés upp. Ég synti að honum og komst um borð í bát­inn og náði síðan Sigfúsi. Þórður var búinn.“ Látinn. „Ég náði honum inn.“

Neyð­ar­blysum var skotið á loft og þess má geta að tveir menn stóðu á bryggj­unni og sáu það sem átti sér stað. Markús segir að þeir hafi verið að velt­ast í bátnum í á annan tíma í brim­inu. „Ég var kom­inn í Ölf­usárós.“ Brot kom síðan á björg­un­ar­bát­inn og sprengdi hann.

Ljósmynd úr síð­ustu ferð bræðr­anna.

„Ég sagði Sigfúsi að reyna að synda í land; hann hafði verið í hálf­gerðu tauga­á­falli þegar ég náði honum inn í bát­inn. Sigfús var góður sund­maður, en hann náði ekki að synda í land.“

Vigfúsi tókst að hanga á bátnum og voru það tveir menn frá Stokks­eyri sem komu á báti og björg­uðu honum. Þá var togið í björg­un­ar­bátnum fast vafið um annan fót­inn á honum. „Það er eins og ég hafi ekk­ert átt að fara.“

Málverk eftir Ragnar Páll Ein­ars­son sem tók hann þrjú ár að mála.

Hann segir að það hafi skipt máli að hann var „þykkur“ og svo hafði hann lært köfun. „Það hjálp­aði mér við öndun.“

Þess má geta að for­eldrar bræðr­anna voru vanir að fylgj­ast með þegar bát­ur­inn var að koma að landi, en þennan dag lagði faðir þeirra sig í hádeg­inu. Oft hafði á heim­il­inu verið setið í hring og talað um báta. „Það var ekki talað um annað en báta.“

Og bátur bræðr­anna var kom­inn á hafs­botn.

„Ég fann ekki fyrir kulda fyrr en ég var kom­inn í sjúkra­bíl­inn. Ég man að ég sagði lög­regl­unni að kveikja á hel­vítis mið­stöð­inni; ég var kom­inn svo­lítið neð­ar­lega í hita­stigi. En ég var alltaf með fulla rænu.“

Sjá þátt­inn í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina