Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Kvíðir bandormi Bjarna: „Hvurn djöfulinn kemur skattinum það við hvar ég held til þessa dagana?“

Kvíðir bandormi Bjarna: „Hvurn djöfulinn kemur skattinum það við hvar ég held til þessa dagana?“
Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra Mynd: XD.is

Anna Krist­jáns­dóttir hefur áhyggjur af afnámi per­sónu­af­sláttar þeirra Íslend­inga sem flúið hafa okrið í land­inu.

Dag­bók­ar­færsla Önnu Krist­jáns­dóttur frá því um helg­ina hefur vakið athygli en þar talar hún um áhyggjur sínar af því að nú ætli íslenska ríkið að seil­ast í vasa þeirra Íslend­inga sem flúið hafa okrið á Íslandi og flutt til ann­arra landa, með því að hirða af þeim per­sónu­af­slátt­inn.

„Æ, bless­aður skatt­ur­inn.

Skömmu fyrir síð­ustu jól bár­ust mér hræði­legar fréttir. Þær bár­ust mér ekki frá opin­berum fjöl­miðlum, né frá hinu opin­bera, heldur frá fyrrum nágranna og öryrkja sem sest hafði að í Svíþjóð, en hann hafði ekki lengur efni á að búa á Íslandi. Skyndi­lega fékk hann skila­boð frá Trygg­inga­stofnun rík­is­ins um skerð­ingu bóta vegna afnáms per­sónu­af­sláttar til handa þeim sem höfðu flúið okrið á Íslandi og reyndu að lifa af erlendis, í hans dæmi í Svíþjóð, sem er að sjálf­sögðu miklu betra land og ódýr­ara að búa í en spill­ing­ar­landið Ísland.“ Þannig hefst færsla Önnu. Því næst segir hún frá því að Skatt­ur­inn hafi í mars krafið hana um að gera grein fyrir dval­ar­stað hennar.

„Það tókst að fresta þessum nýju álögum á gamla fólkið um eitt ár, en það breytti ekki því að þegar ég fékk skatt­fram­talið í hend­urnar í byrjun mars, þurfti ég að gera grein fyrir dval­ar­stað mínum síð­asta árið. Hvurn djöf­ul­inn kemur skatt­inum það við hvar ég held til þessa dag­ana? Ég hefi enga við­veru­skyldu neins­staðar. Er ekki nóg að ég greiði mína skatta og skyldur til hins opin­bera eins og áður fyrr? Er verið að hegna mér fyrir að njóta dvalar á sól­ar­strönd? Er búið að end­ur­vekja vist­ar­bandið sem ég hélt að hefði verið afnumið að mestu í lok nítj­ándu aldar?“

Þá bendir Anna á að hinn nýji for­sæt­is­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son sé sá sem lagði fram hið svo­kall­aða band­orms­frum­varp um afnám per­sónu­af­sláttar í fyrra. „Nú eru liðnir rúmir þrír mán­uðir af nýju ári, komin ný rík­is­stjórn undir for­sæti manns­ins sem lagði fram band­orms­frum­varpið um afnám per­sónu­af­sláttar síð­asta haust þá sem fjár­mála­ráð­herra. Í sak­leysi mínu spyr ég, er öllum alveg sama? Eigum við sem höfum kosið að treina okkur lífið með veru á ódýrri sól­ar­strönd að greiða auka­skatt fyrir það að dvelja erlendis. Við slítum ekki veg­unum, við leggj­umst ekki á heil­brigð­is­kerfið nema að mjög tak­mörk­uðu leyti og höfum fyrir löngu síðan greitt skatt­ana okkar til yfir­valda, En nú á að refsa okkur auka­lega fyrir að spara rík­inu heil­brigðis­kostn­að­inn.“

Anna krefst svo að bar­áttu­sam­tök eldri borg­ara beiti sér gegn yfir­vof­andi afnámi per­sónu­af­sláttar:

„Ég ákalla þá sem þykj­ast berj­ast fyrir rétti öryrkja og eldri borg­ara. Hvort sem þeir heita Lands­sam­band eldri borg­ara, Félag eldri borg­ara, eða Öryrkja­banda­lag Íslands. Hingað til hefi ég ekki heyrt neitt frá þeim varð­andi þetta mál. Er þeim alveg sama. Eru þessi eldri­borg­ara­sam­tök ein­hver skrípa­leikur? Ég vil fá að heyra frá þeim, eru þau til­búin til að berj­ast eða eru þau enn föst í sinni bar­áttu fyrir 15.000 króna mán­að­ar­greiðslum frá Trygg­inga­stofnun rík­is­ins sem er löngu töpuð bar­átta?“

Í loka­orðum sínum veltir Anna fyrir sér hvort þessi sam­tök eldri borg­ara séu að gera eitt­hvað í mál­inum án hennar vit­undar.

„Það má vel vera að þau séu að gera heil­mikið án þess að mér hafi borist það til heyrna, haldið harm­on­iku­dans­leiki og prjóna­nám­skeið, en hafa þau gert eitt­hvað til að afnema þessi ólög sem urðu að lögum fyrir síð­ustu jól þótt vissu­lega tæk­ist að fresta gild­is­töku þeirra um eitt ár. Eða eru þau kannski á fullu að vinna að þessum málum án þess að láta mig vita? Ef svo er, bið ég þau inni­lega afsök­unar,Eða er þetta það sem núver­andi stjórn­völd hafa kallað áhyggju­laust ævi­kvöld?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina