Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Tvítugur Eskfirðingur handleggsbrotinn af lögreglunni: „Þú ert ekki dauður ennþá“

Tvítugur Eskfirðingur handleggsbrotinn af lögreglunni: „Þú ert ekki dauður ennþá“
Sveinn Jónsson Mynd: Trausti Hafsteinsson

Hinn tví­tugi Sveinn Jónsson ferð­að­ist alla leið­ina frá Eski­firði á Aust­ur­landi til Reykja­víkur í febr­úar 1988. Ætlaði hinn ungi maður að hefja vinnu í borg­inni, sem hann hafði nýverið verið ráð­inn í. Ekki var hann búinn að vera lengi í borg ótt­ans þar til hann fékk að finna fyrir tevatn­inu en þeir sem báru ábyrgð á því voru feðgar. Feðgar með lög­reglu­skjöld.

Sveinn sagði frá því DV á sínum tíma, að hann hefði orðið fyrir því óhappi þar sem hann gekk út af veit­inga­staðnum Fóget­anum í Reykja­vík, að falla í hálku og lenda á bif­reið sem þar stóð. Bíl­stjóri bif­reið­ar­innar brást hinn versti við og sak­aði hinn unga hrak­falla­bálk að hafa beyglað bíl­inn og rispað. Ekki sá Sveinn né sam­ferð­ar­fólk hans skemmdir á bílnum en samt sem áður gaf hann bíl­stjór­anum nafn sitt og heim­il­is­fang, svo hann gæti haft við hann sam­band dag­inn eftir. Lög­reglan knúði svo dyra þar sem Sveinn dvaldi og bað hann um að koma með sér í lög­reglu­bíl­inn. Þar er hann hand­járn­aður, þrátt fyrir að streit­ast á móti, enda taldi hann sig sak­lausan með öllu. Þegar á lög­reglu­stöð­ina var komið tók ekki betra við. Kona sem stödd var þar bað Svein um skil­ríki og þegar hún sá  að hann var Esk­firð­ingur hóf hún að sögn Sveins, að ausa yfir hann sví­virð­ingum en í dag myndi það kall­ast hat­urs­orð­ræða, gagn­vart Aust­firð­ingum. Neitaði hann þá að fara úr jakka sínum, enda sár­móðg­aður vegna dóna­skap­ar­ins sem honum var sýndur. Við það tóku lög­reglu­menn­irnir svo harka­lega á honum að hann hand­leggs­brotn­aði. Var hann þá fluttur á sjúkra­hús þar sem gert var að sárum hans. Eftir að í ljós kom að Sveinn væri tví­hand­leggs­brot­inn auk þess að vera skadd­aður á oln­boga, létu lög­reglu­menn­irnir sig hverfa. Ákvað Sveinn að kæra með­höndlun lög­regl­unnar en ekki fylgdi frétt­inni hvernig það mál fór.

Hér má lesa frétt DV frá 19. febr­úar 1988:

Sveinn Jónsson, tví­tugur Esk­firð­ingur:

„Þú ert ekki dauður ennþá“ – sagði einn lög­reglu­mað­ur­inn

„Þú ert ekki dauður ennþá. Þetta sagði einn þriggja lög­reglu­manna sem fóru með mig á slysa­deild eftir að þeir höfðu hand­leggs­brotið mig,“ sagði Sveinn Jónsson, tví­tugur Esk­firð­ingur. Sveinn varð fyrir óhugn­an­legri lífs­reynslu um síð­ustu helgi. Án þess að hann hefði neitt til saka unnið sótti lög­reglan hann í heima­hús og honum var síðan mis­þyrmt á lög­reglu­stöð­inni.

„Þetta hófst með því að ég var ásamt þremur öðrum að koma af veit­inga­hús­inu Fóget­anum. Ég varð fyrir því að ég rann til á hálkunni og skall á bíl. Eigandi bíls­ins brást hinn versti við. Hann sagði að ég hefði beyglað bíl­inn og rispað. Ég og fólkið, sem var með mér, sáum engar skemmdir á bílnum. Samt gaf ég bíl­eig­and­anum nafn mitt og heim­il­is­fang og gaf honum þar með kost á að hafa sam­band við mig dag­inn eftir.

Það leið ekki langur tími þar til var bankað heima hjá mér. Bróðir minn fór til dyra. Fyrir utan voru þrír ein­kenn­is­klæddir lög­reglu­þjónar og eig­andi bíls­ins sem ég hras­aði á. Lög­reglan vildi fá að tala við mig. Þegar ég kem út segj­ast þeir vilja fá mig í lög­reglu­bíl­inn. Ég hafði ekk­ert á móti því enda hafði ég ekk­ert af mér gert og taldi að ég ætti ekki von á neinu slæmu. Þegar ég var kom­inn inn í lög­reglu­bíl­inn var ég hand­járn­aður. Ég streitt­ist á móti en fékk ekki við neitt ráðið. Lög­reglu­menn­irnir ákváðu að  fara með mig á lög­reglu­stöð­ina.

Þegar þangað var komið var farið með mig til varð­stjóra. Hann spurði mig nokk­urra spurn­inga. Eftir það segir hann við lög­reglu­menn­ina að þeir skuli fara með mig í fanga­geymslu. Þar var ég leiddur í fata­geymslu. Kona, sem þar var, bað mig um skil­ríki. Þegar hún sá að ég er frá Eski­firði byrj­aði hún að sví­virða mig og Aust­firð­inga almennt, sagði alla sem þaðan koma hið versta fólk. Þegar mér var sýndur slíkur dóna­skapur og sví­virð­ingar neit­aði ég að fara úr jakk­anum. Tveir lög­reglu­mann­anna voru enn til staðar. Þegar ég neit­aði að fara úr réð­ust þeir að mér. Þeir sneru mikið upp á vinstri hand­legg­inn. Þegar hand­legg­ur­inn var orð­inn stífur af snún­ingnum hélt annar mér á meðan hinn barði hand­leggnum í borð­brún. Ég fann strax mikið til og var nærri því að missa með­vit­und. Þeir sögðu við mig eitt­hvað á þá leið að ég væri ekk­ert alvar­lega slas­aður, hefði í mesta lagi farið úr liði og ætl­uðu samt að setja mig inn í fanga­klefa. Þá fóru þeir að gera sér grein fyrir að ég hafði meiðst mikið. Í því kom þriðji lög­reglu­mað­ur­inn og í fram­haldi af því ákváðu þeir að fara með mig á slysa­deild. í lög­reglu­bílnum kveink­aði ég mér og sagði þá einn lög­reglu­mann­anna: „Hvað er þetta, þú ert ekki dauður ennþá.“

Sveinn Jónsson

Þegar við komum á Borg­ar­spít­al­ann er farið með mig í mynda­töku. Þá kom í ljós að ég var tví­brot­inn á vinstri upp­hand­legg og einnig skadd­að­ist oln­bogi eitt­hvað. Lög­reglu­menn­irnir fóru við svo búið. Þeir kvöddu mig ekki. Ég var á Borg­ar­spít­al­anum um nótt­ina. Daginn eftir sækir bróðir minn mig. Við förum beina leið til Rann­sókn­ar­lög­regl­unnar og ég kæri. Þar var mér vel tekið og eftir að skýrsla hafði verið tekin af mér var ég hvattur til að fá mér lög­fræð­ing. Það gerði ég strax eftir helg­ina. Lög­mað­ur­inn hefur sagt mér að það liggi ljóst fyrir að lög­reglu­menni­mir höfðu enga heim­ild til hand­töku. Ég fer að sjálf­sögðu fram á miska­bætur og víst er að ég kem hvergi til með að gefa eftir í þessu máli,“ sagði Sveinn Jónsson. Sveinn kom til Reykja­víkur fyrir tveimur vikum. Hann var að fara að vinna á nýjum vinnu­stað. Af því getur ekki orðið fyrr en í fyrsta lagi í maí. Hann á eftir að vera í gifsi í átta vikur og síðan tekur end­ur­hæf­ing við. Hann sagð­ist hafa mikla óbeit á lög­reglu­mönn­unum sem fóru svo illa með hann. Sveinn vissi ekki í fyrstu að eig­andi bíls­ins væri lög­reglu­þjónn og að hann og sá sem gekk lengst í ofbeld­inu væru feðgar.

„Maður er alveg varn­ar­laus gegn svona lög­uðu. Það er bölv­an­legt að lenda í slíku. Ég sé ekki fram á að fá neina pen­inga út úr þessu á næst­unni. Fyrst ég er kom­inn til Reykja­víkur ætla ég að vera hér áfram. Ég get ekki gert nauð­syn­leg­ustu hluti án hjálpar og auk þess er ég að verða aura­lít­ill og verð óvinnu­fær í nokkrar vikur. Þetta verð ég allt að þola og það án þess að hafa nokkuð til unnið.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina