Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Magnús vill lágmarka rof á námi barna vegna útlandaferða: „Það er barninu einfaldlega fyrir bestu“

Magnús vill lágmarka rof á námi barna vegna útlandaferða: „Það er barninu einfaldlega fyrir bestu“
Magnús Þór Jónsson, for­maður Kenn­ara­sam­bands Íslands – Mynd: Kennarasamband Íslands

Und­an­farnar vikur hefur verið hávær umræða meðal kenn­ara og skóla­stjórn­enda í grunn­skólum á Íslandi um fjar­veru nem­enda frá skóla. Þá sér­stak­lega að nem­endur virð­ast í auknum mæli vera að fara í inn­an­lands- og utan­lands­ferðir með for­eldrum sínum á skóla­tíma en dæmi eru um að nem­endur sleppi allt að fimm vikum úr skóla vegna ferða­laga.

„Í mörgum löndum gilda strangar reglur um slík leyfi og eru þau að jafn­aði ekki veitt vegna ferða­laga. Í Þýska­landi og Lúx­em­borg hafa barna­vernd­ar­yf­ir­völd stigið inn þegar fjar­vera skóla­barna fer yfir viss mörk, t.d. vegna ferða­laga. Það er ljóst að tíðar ferðir sem auka fjar­veru frá skóla geta valdið miklu álagi og haft áhrif á and­lega líðan nem­enda,“ skrif­aði Steinn Jóhanns­son, rektor Mennta­skól­ans við Hamra­hlíð, í pistli um málið í sein­ustu viku.

„Það sem kannski skiptir mestu máli er að auka virð­ingu for­eldra og nem­enda fyrir því að skóla­sókn skiptir máli og hefur áhrif á náms­ár­angur. Hætt er við því að nem­andi sem er fjar­ver­andi vegna tíðra ferða­laga til­einki sér þá skoðun að fjar­vera úr skóla sé í lagi.“

Nám er samstarfsverkefni

Mannlíf hafði sam­band við Magnús Þór Jónsson, for­mann Kenn­ara­sam­bands Íslands, til að spyrja hann út í ferða­lög nem­enda og mögu­leg áhrif sem þau gætu haft á nem­endur.

„Mik­il­vægt er að for­ráða­menn séu í sam­ráði við skóla barna sinna ef mögu­leiki er á röskun náms vegna ferða­laga,“ sagði Magnús Þór. „Nám er sam­starfs­verk­efni heim­ilis og skóla og það á einnig við þegar kemur að þætti eins og fjar­veru sem þess­ari. Sér­stak­lega þarf að horfa til hver staða hvers ein­stak­lings er og gera allt sem hægt er til að lág­marka það rof sem kemur á námi vegna þessa. Hér á við nám á öllum skóla­stigum og á öllum aldri, ekk­ert síður á ung­linga­stigi grunn­skól­anna eða á fram­halds­skóla­stigi.“

Í lögum um grunn­skóla er skóla­stjórn­endum veitt mikið frelsi varð­andi leyf­is­veit­ingar til ferða­laga og getur því verið mik­ill munur milli skóla þegar kemur að slíkum leyf­is­veit­ingum. Hvert mál fyrir sig er því í raun geð­þótta­á­kvörðun hvers og eins skóla­stjóra. Magnús Þór er þó ekki á þeirra skoðun að það þurfi að breyta þeim lögum.

„Skóla­stjórar og skóla­meist­arar bera ábyrgð á öllum þáttum skóla­starfs þegar kemur að umgjörð þess og það er mjög mik­il­vægt að þar verði engin breyt­ing á. Skóla­stjórn­endur leiða sam­starf skóla og heim­ila í hverjum skóla og eru best til þess fallnir að finna far­sælar lausnir þegar kemur að leyfum nem­enda sinna og mögu­legri röskun á námi. Á sama hátt er það á þeirra ábyrgð að til­kynna þar til bærum yfir­völdum ef þeir telja fjar­veru barns vegna slíkra ferða­laga vera á þeim stað að það skaði nám þess og líðan.“

Mikilvægt að setja börnin í fyrsta sætið

En hvaða skila­boð vill Magnús senda til for­eldra?

„Ein­fald­lega að vera í sam­ráði við skóla barna sinna ef til þess kemur að ferða­lög valda röskun á námi barna. Það er mjög mik­il­vægt að slíkt sam­ráð eigi sér tím­an­lega stað og að þær ákvarð­anir sem þar eru teknar séu svo fram­kvæmdar á meðan á ferða­lagi stendur. Það er barn­inu ein­fald­lega fyrir bestu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina