Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Jesús er helsta fyrirmynd Arnars – Ekki rómantískur í Hollywood-skilningi en kann að elska

Jesús er helsta fyrirmynd Arnars – Ekki rómantískur í Hollywood-skilningi en kann að elska
Arnar Þór Jónsson er for­maður Lýð­ræð­is­flokks­ins

Senn rennur út frestur til að safna lág­marks­fjölda með­mæl­enda, ætli maður sér að sækj­ast eftir því að verða for­seti Íslands. Á átt­unda tug manna hefur að und­an­förnu safnað með­mælum en nokkrir hafa nú þegar náð þeim áfanga og eru því gjald­gengir í fram­boð.

Mannlíf lagði spurn­inga­lista fyrir þeim fram­bjóð­endur sem náð hafa lág­marks­fjölda með­mæla, svo þjóðin fái að kynn­ast þeim betur. Munu svör fram­bjóð­end­anna vera birt á næstu dögum.

Arnar Þór Jónsson hæsta­rétt­ar­lög­maður er næsti fram­bjóð­andi sem svarar spurn­ingum Mannlífs. Í svörum hans má sjá ýmis­legt áhuga­vert, til dæmis það að Jesús Kristur er hans helsta fyr­ir­mynd í líf­inu og að hann hlusti helst á Barokk tón­list.

Hér má lesa svör Arnars:

Upp­á­halds­staður á Íslandi?

Vest­manna­eyjar, þar sem ég er fæddur.

Á for­seti að sitja lengur en tvö kjör­tíma­bil?

Að mínu mati ætti það að vera nógu langur tími. Viðmið um hámarks­tíma í emb­ætti hafa verið sett víða um heim. Að baki slíkum tíma­tak­mörk­unum standa góð rök.

Hvaða breyt­ingar viltu sjá á stjórn­skipan Íslands?

Stjórn­skip­anin sem slík er ágæt­lega traust og stjórn­ar­skráin er okkar besta vörn gegn ofríki stjórn­valda og mis­beit­ingu valds. Ef ég ætti að nefna eitt­hvað sem mætti taka til umræðu væri það bæta við annarri umferð í for­seta­kjöri, þannig að kosið verði milli tveggja efstu í síð­ari umferð. Einnig væri rétt að ræða hvort skerpa mætti skil milli lög­gjafar- og fram­kvæmda­valds. Per­sónu­kjör til Alþingis væri einnig sjálf­sagt að ræða.

Hver er þinn upp­á­halds for­seti?

Þar sem þetta er opin spurn­ing leyfi ég mér að nefna Thomas Jeffer­son, sem var aðal­höf­undur sjálf­stæð­is­yf­ir­lýs­ingar BNA og mót­aði margar grund­vall­ar­hug­myndir vest­ræns stjórn­skip­un­ar­réttar, m.a. um rétt­indi ein­stak­lings­ins og tak­markað rík­is­vald. Ég hef einnig sér­stakt dálæti á Jóni Sig­urðs­syni „for­seta“ þótt ekki hafi hann orðið for­seti sjálf­stæðs Íslands.

Finnst þér að gera eigi kröfu um fleiri fjölda með­mæl­enda fram­bjóð­enda til emb­ættis for­seta Íslands?

Mér finnst sjálf­sagt að upp­færa þennan fjölda til sam­ræmis við fólks­fjölgun á Íslandi frá 1944. En þrösk­uld­ur­inn má heldur ekki vera of hár, því fram­boð til for­seta á ekki aðeins að vera fyrir þá sem eru þegar þjóð­þekktir.

Hver er þín helsta fyr­ir­mynd í líf­inu?

Jesús Kristur, enda var hann sannur leið­togi. Ástæð­urnar eru nánar þessar:

Hann reis upp gegn spilltu pen­inga­veldi (Jóh. 2:14-16)

Stóð ótta­laus frammi fyrir blóð­þyrstum múg

  • Gekk í gegnum mann­þröng í Nasaret sem vill kasta honum fram af fjalls­brún (Lk 4:28-29)
  • Varði seku kon­una (Jóh. 7.53-8.11)
  • Varði læri­sveina sína gegn róm­verskri her­deild (Jóh. 18:8)

Boðaði fagn­að­ar­er­indið þrátt fyrir ógn og hót­anir

Sneri aftur til Galíleu til að halda áfram starfi Jóhann­esar skír­ara sem hafði verið fang­els­aður og tek­inn af lífi (Mk. 1:14)

  • Hélt áfram þótt ýmsir hópar ráð­gerðu og reyndu að ráða hann af dögum (Jóh. 5:16; Mk. 7:5; Jóh. 8:59; Jóh. 10:20; Lk 13-31; Jóh. 11:53; Lk. 19:47).   

Bugaðist ekki við yfir­heyrslu dóm­ar­ans (Matt. 27:1-26)

Andmælti fals­kenn­ingum áhrifa­mik­illa manna

  • Vann lækn­is­verk á hvíld­ar­degi (Mk. 2:7; Matt. 12-10)
  • Svaraði fræði­mönnum sem ásök­uðu hann (Mk 3:22)
  • Benti á hræsni farísea og fræði­manna (Lúk. 11.53-54)
  • Kenndi í must­er­inu þrátt fyrir morð­hót­anir (Mk. 11:27-28)

Mætti ofsóknum og pynt­ingum af hug­rekki.

  • Hafði mörg tæki­færi til að hörfa, hætta við, umorða boð­skap sinn en gerði það ekki (Matt. 27:27-50)

Mætti dauð­anum af hug­rekki (Jóh. 10:18; Jóh. 15:13).

Hver er upp­á­halds­tón­list þín?

Barokk tón­list.

Hefurðu neytt ólög­legra fíkni­efna?

Nei.

Gerði Ólafur Ragnar Grímsson rétt með því að beita neit­un­ar­vald­inu á sínum tíma?

Já, Icesave málið var af þeirri stærð­argráðu að þjóðin sjálf átti að eiga síð­asta orðið, sbr. 26. gr. stjskr.

Hver var stærsta stundin í lífi þínu?

Þegar ég gift­ist kon­unni minni, Hrafn­hildi Sig­urð­ar­dóttur – og þegar börnin okkar fimm fædd­ust.

Hver eru mestu von­brigðin?

Að hafa ekki fengið betri söng­rödd, en konan og börnin vega það upp.

Fal­leg­asta ljóðið?

Ljóðið Vitinn eftir Pétur Sig­urðs­son, sem birt var í Sjó­manna­dags­blaði Vest­manna­eyja 1967:

Vitinn

Þar sem ber­ast er land, út á bjarg­tanga köldum,

einatt bar­inn af stormum og rjúk­andi öldum;

þar sem brimið er mest, þar sem brot­sjóir rísa

er þér boðið að standa, að vaka og lýsa.

Þú átt bjarg­fasta lund, þú ert byggður á kletti,

þaðan bifast þú aldrei, þig meist­ari setti,

til að beina þeim leið fram­hjá boðum og strandi,

sem á brot­hættu fleyj­unum sigla að landi.

Upp úr kólg­unni lyftir þú höfð­inu háa,

yfir hraunið og flúðir og sandana gráa,

þannig verða þeir allir, sem langt vilja lýsa,

upp af lág­mennsku auðn­inni sterkir að rísa.

Engin böl­sýni kæft getur bloss­ana þína,

þú ert bjart­sýnn á lífið og þol­inn að skína,

þú ferð aldrei að vilja þíns umhverfis svarta,

sem er and­stæða verst þínu ljóselska hjarta.

Þó að óstjórn og laus­ung og ofbeldi ríki,

þó að ægi­legt nátt­myrkur huga manns sýki,

þó að storm­arnir tryllist, er stjörn­u­rnar hylja,

ekk­ert sturlar þinn frið og þinn bjarg­fasta vilja.

Víða sendir þú geisla að leita og leiða,

miklu ljós­magni þarft þú að dreifa og eyða

út í myrkur og auðn, þó að engan þú finnir,

þessu eilífðar starfi þú trú­fastur sinnir.

Þótt aldrei þú spyrjir frá eyjum né veri,

hvort árangur starf þitt í heim­inum beri,

þá lama‘ ekki áhyggjur ljósiðju þína,

því að líf þitt og yndi er þetta — að SKÍNA.


Besta skáldsagan?

Brennu-Njáls saga, ef hana má flokka sem skáld­sögu. Annars Meist­ar­inn og Margar­íta eftir Búlgakov.

Hvað er það besta við Ísland?

Ósnortin víð­erni, hreint vatn, ferskt loft, gott fólk, merk saga, djúpar rætur.

Kanntu á þvotta­vél?

Að sjálf­sögðu.

Ef þú ættir eina ósk, Íslend­ingum til hags­bóta, hver væri hún?

Að við náum að standa vörð um sjálf­stæði okkar, sem ein­stak­linga og sem þjóðar, kom­andi kyn­slóðum til góðs.

Að þínu mati, hvert er helsta hlutverk forseta Íslands?

Að tala von og kjark inn í hjörtu Íslend­inga. Minna á að við eigum hér sam­eig­in­lega hags­muni, sem við getum sam­ein­ast um að gæta, þótt vissu­lega séum við ólík. Sem for­seti vil ég mynda góð og sönn tengsl við íslensku þjóð­ina. Hlusta og þjóna í þeirri von að við náum að standa þétt saman eins og fjöl­skylda um okkar sam­eig­in­lega heim­ili, sem er Ísland. Á þessum grunni getur for­seti verið tals­maður þjóð­ar­innar út á við og staðið vörð um full­veldi lands­ins.

Borðarðu þorramat?

Já.

Ertu róm­an­tísk/ur?

Ekki í Hollywood skiln­ingi, en ég kann að elska.

Í stuttu máli; hvers vegna ætti að kjósa þig til emb­ættis for­seta Íslands?

Vegna þess að ég mun standa vörð um lýð­ræðið og vera dyggur og trúr þjónn fólks­ins í land­inu, verja stjórn­ar­skrá lýð­veld­is­ins, verja sjálf­stæði Íslands, vera málsvari frelsis og sjálfs­á­kvörð­un­ar­réttar. Ég er engum háður. Enginn flokkur, ekk­ert valda­kerfi, engin pen­inga­öfl ráða yfir mér eða stjórna því hvernig ég tala. Ég vil verja hrein og góð gildi, verja sak­leysið og verja Ísland. Standa vörð um íslenska tungu, leggja rækt við íslenska menn­ingu, vera rödd friðar og sátta. Ég er ekki á þess­ari veg­ferð fyrir sjálfan mig, heldur til að verja fram­an­greindar hug­sjónir. Það geri ég ekki einn, heldur með mína traustu og sterku eig­in­konu mér við hlið og von­andi studdur af þeim sem unna landi og þjóð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

InnlentForsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
InnlentForsetakosningar 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu